Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Blaðsíða 24
24 TÍMAVÉLIN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Morgunblaðið/Árni Johnsen Helga Möller syngur og leikur á gítar á Jóla- gleði gagnfræðaskóla Laugalækjar 1972. Ég sá mömmu berja jólasvein! Við hefjum ferðalag okkar fyrir heilum hundrað árum í Bolungarvík. Nema hvar? Þar sat Karl nokkur í koti sínu og ritaði Morgunblaðinu bréf sem birt var á aðfangadag. „Það er óneitan- lega um margt rætt og ritað nú á tímum, sem not er að og nauðsyn- legt,“ byrjaði hann. „En þó er það ennþá margt, sem þjóð vorri væri meiri þörf á að þekkja og þekkja betur heldur en sumt af því, sem þar er sagt.“ Að sögn Karls hafði það alltaf ver- ið svo, „og vonandi að verði, að guð hefir gefið hverju landi þá menn, sem útbúnir hafa verið mannviti, mannkærleika og margvíslegum hæfileikum fram yfir aðra, sem þjóðin hefir sótt til þrótt og þrek, og þar af leiðandi margt gott og gagn- legt. En það þarf ekki að leita svona langt að slíkum mönnum, sem sótt hafa og sækja fram fyrir fjöldann í svo feikna mörgu, sem almenningi er bæði gagn og gæfa að; því að slíkir menn eru alstaðar til, bæði í borgum og sveitum hvers lands. En sem oft og einatt er lítið minst nema þá lítilsháttar í líkræðum.“ Á þetta líka við, nú 100 árum síðar? Erum við ennþá mest að tala um ranga menn okkar á milli og þá væntanlega í fjölmiðlum? Svari nú hver fyrir sig. Næst berum við niður á að- fangadag 1947, eða fyrir 75 árum. Vel lá þá á Bretum sem færðu Þjóðverjum góðar gjafir í tilefni jólanna. Tvö ár voru frá lokum heimsstyrjaldarinnar síðari og ófriðardeilum þjóðanna tveggja í millum lokið. „Þjóðverjar hafa í dag fengið jólaskamtinn á bresku svæðunum og var það í fyrsta sinni að Þjóðverjar höfðu fengið ekta kaffi síðan hernámið byrjaði,“ stóð í forsíðufrétt Morgunblaðsins. „Þar að auki var þeim skamtað tvær teskeiðar af sultutaui, fimm sykurmolar og fimm súkkulaði- molar. Var þetta í sjerstökum jóladósum og þótti Þjóðverj- um mikið um. Karlmenn undir fimmtugsaldri fengu auk þessara jóladósa eina flösku af þýskum snaps, en þeir sem yfir fimmtugt voru komnir fengu auk dósarinnar flösku af ljettu víni. Konur og börn fengu tvær jóladósir en ekkert áfengi.“ Skál fyrir því, karlar yfir fimm- tugt! Fallegt af Bretum að bera ekki áfengi í blessuð börnin. Það hefði getað endað með ósköpum. Friður var leiðarahöfundi Morgunblaðsins einnig efst í huga í þessu sama tölublaði: „Upp úr skammdegi hins norræna vetrar rís jólahátíðin björt og fögur. Nær tvö þúsund ára gamall atburður verður nýr og lifandi í huga kristinna manna. Stríð og barátta allra alda hefur ekki megnað að deyfa liti og línur myndarinnar, sem helgisögnin frá Betlehem dró upp fyrir sjónum mannkynsins. Svo rík er þrá mannssálarinnar eftir friði og kær- leika, þrátt fyrir hina óróagjörnu hvöt til átaka og baráttu.“ Jól án sprenginga Eins og hendi sé veifað erum við komin fram til ársins 1972. Hugsið ykkur! Enn og aftur er aðfanga- dagur og enn og aftur eru menn byrjaðir að berjast; að þessu sinni á Norður-Írlandi. „Kaþólikkar og mótmælendur á Norður-Ír- landi vonast til þess, að þeir geti haldið jólin hátíðleg, án þess að sprengingar og ofbeldisaðgerðir verði til þess að spilla jóláhátíð- inni,“ stóð í frétt Morgunblaðsins. Ekki voru allir svo lánsamir að geta haldið jólin í faðmi fjöl- skyldunnar. „Nær allir togararnir, flest skip Eimskips, helmingur varðskipanna og þrjú Sambands- skip verða úti um jólin, og áhafn- irnar munu því halda jólagleðina á hafi úti,“ kom fram í Morgun- blaðinu. Leiðarahöfundur var til þess að gera stóískur en boðskapur hans til lesenda var á þessa leið: „Auðvitað á þjóðin nú við erfiðleika að etja, sem erfiðir eru úrlausnar. Það er um leið hart deilt um orsakir og leiðir til úrbóta. Við deilum líka um skipulag þjóðfélagskerfisins. Engu að síður erum við ein af fáum þjóðum, sem búa í sátt og samlyndi og hafa borið gæfu til þess að leysa úr ágreiningsefnum eftir lýðræðis- legum leiðum.“ Eitthvað var tæknin að stríða blaðinu þessi jólin en á bls. 2 var þennan skell að finna: „Af tækni- legum ástæðum verður Jólalesbók Morgunblaðsins, sem að þessu sinni er 64 síður, ekki dreift fyrr en eftir jól.“ Aðfangadagsblað Morgunblaðsins 1997 byrjaði strax með látum en á forsíðu var að finna frétt undir fyrirsögninni: Mamma sló jólasvein- inn. Og þá liggur leið okkar alla leið til New York. Ekki er upp á þessa Tímavél logið! Með þessum orðum hófst fréttin: „Jólasveinn í New York lenti í miklum vanda við vinnu sína í verslunarmiðstöð þegar sonur hans bar kennsl á hann og fyrrver- andi eiginkona hans krafði hann um barnsmeðlag og réðst að því búnu á hann með barsmíðum.“ Heldur var tíðin hagstæðari en nú og á blaðsíðu tvö mátti sjá mynd af bræðrunum Hannesi og Júlíusi Ingibergssonum að spila golf á Þorláksmessu. Þeir brugðu víst ekki út af vananum þegar þeir léku níu holur á golfvellinum á Korpúlfs- stöðum. Kaupmenn voru kátir fyrir jólin 1997 en jólaverslunin í Reykjavík hafði aukist töluvert á milli ára og töldu kaupmenn að fólk hefði almennt haft meira fé á milli handanna en árið á undan. „Virðist veltuaukningin víða vera á bilinu 15-30% og telja margir að verslun- in hafi aldrei verið meiri,“ stóð í Morgunblaðinu. Hamrahlíðarkórnum var hins vegar ekki skemmt og söng ekki Heims um ból í lok friðargöngu nið- ur Laugaveg á Þorláksmessu, sem friðarhreyfingar stóðu fyrir. Það var stjórnandi kórsins, Þorgerður Ingólfsdóttir, sem tók ákvörðun þar um, þar sem hún taldi það ekki við hæfi eftir ræðu sem flutt var á Ingólfstorgi þar sem göngunni lauk. Þorgerður sagði í samtali við Morgunblaðið að fulltrúi frá friðarhreyfingunum hefði haldið því fram í ræðunni að sagan um Krist væri skröksaga og annað í þeim dúr. Hún hefði tekið ákvörðun um þetta sjálf, en kórfélagar fylgt henni eftir í þessari ákvörðun. Hvenær er betra að stíga um borð í blessaða Tímavélina en á hátíð ljóss og friðar? Búið ykkur nú vel og komið með í ferðalag til jólanna 1922, 1947, 1972 og 1997, þar sem á vegi okkar verða rangir menn, þýskur snaps og Helga Möller. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Morgunblaðið/Ólavía Sigmarsdóttir BræðurnirÆvar Þorgeir og Mart- einn Óli Aðalsteinssynir í Klaust- urseli á Jökuldal gefa hreindýrun- um fjallagrös fyrir jólin 1997.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.