Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022
VETTVANGUR
Stöndum með
ljósi og hlýju
Jólin eru hátíð ljóssins enda
marka þessir köldu og dimmu
dagar á norðurhveli jarðar
þau tímamót að sólin byrjar sína
óhjákvæmilegu sigurgöngu, daginn
fer að lengja og eftir að við þreyjum
þorra og góu má gera sér vonir
um að það fari líka að hlýna. Það
er auðvitað engin tilviljun að við
skreytum hús okkar með ljósum
þessar dimmustu vikur ársins og
gerum okkur glaðan dag með vinum
og vandamönnum.
Árið sem er að líða hefur verið
býsna viðburðaríkt. Um síðustu
áramót var íslenskt samfélag enn
í klakaböndum heimsfaraldursins.
Þrátt fyrir að okkur hafi tekist að
bólusetja þjóðina með miklum árangri
sumarið 2021 var
ekki talið óhætt að
opna samfélagið
fyrr en nokkuð var
liðið á þetta ár. En
fögnuðurinn yfir
þeim tímamótum
hefur litast af nýju
áhyggjuefni því
örlögin höguðu því
þannig að daginn
eftir að tilkynnt
var um afnám
allra opinberra
sóttvarnaaðgerða á
Íslandi bárust hinar
hrikalegu fréttir um
innrás Rússlands í
Úkraínu. Landvinn-
ingastríð stórveldis
gegn nágrannaríki
sínu var hafið í Evrópu.
Óskiljanlegt fólskuverk
Innrás Rússa í Úkraínu er nánast
óskiljanlegt fólskuverk, enda eru
innlimunaráform Rússa í hróplegri
andstöðu við mikilvægustu reglu
alþjóðamála undanfarna áratugi
– að landamærum ríkja verði ekki
raskað með vopnavaldi. En á bak
við innrásina eru ekki einungis stór-
veldisdraumar Rússlandsforseta,
heldur er innrásin og hugarfarið á
bak við hana einnig birtingarmynd
átaka sem hafa farið harðnandi á
undanförnum árum. Rússlandsfor-
seti er eins konar fyrirliði þeirra
heimsleiðtoga sem hafa sagt mann-
réttindum og frjálslyndum lífsgild-
um stríð á hendur. Stjórnmálaöflum
sem ala á tortryggni og fordómum
hefur víða vaxið fiskur um hrygg, og
sums staðar hafa leiðtogar haft lítt
duldar stjörnur í augunum gagnvart
Pútín og horft án vanþóknunar á
hvernig hann hefur smám saman
þrengt að frelsi og mannréttindum
eigin þegna. En þeir sem ekki gerðu
sér grein fyrir hversu hættulegur
Pútín er ættu að gera það núna. Þeir
sem horfa upp á hinn ógeðfellda
stríðsrekstur hans í Úkraínu geta
ekki skákað í skjóli vanþekkingar,
enda hrannast sönnunargögn um
stríðsglæpi og vísvitandi fólskuverk
upp.
En þó er ástæða til að óttast
að þær efnahagslegu þrengingar
sem stríðið hefur valdið, og þær
fórnir sem mörg lönd í Evrópu hafa
fært til að bregðast við, geti kynt
undir óvönduðum og tækifæris-
sinnuðum afturhaldsöflum. Sums
staðar hefur tekist að afvegaleiða
umræðuna þannig að lygar og
afbakanir rússneskra stjórnvalda
og taglhnýtinga þeirra hafa skotið
rótum. Af þessum sökum er mikil-
vægt að halda uppi vörnum fyrir
þá heimsmynd lýðræðis, mann-
réttinda og réttarríkis sem reynst
hefur svo gifturík þeim þjóðum
sem hennar njóta. Sem betur fer
er mikil samstaða um þetta hér á
landi og í mínum huga er eitt af því
sem stendur upp úr á þessu ári hin
eindregna pólitíska samstaða sem
ríkt hefur um viðbrögð Íslands við
innrás Rússa. Stjórnmálaflokk-
arnir hafa allir stutt við einarða
afstöðu ríkisstjórnarinnar, enda sjá
flestir í hendi sér að mikilvægasta
hagsmunamál okkar Íslendinga
í utanríkismálum er að standa
með bandalagsríkjum okkar gegn
yfirgangi ríkja sem ekki virða
landamæri og
lögsögu nágranna-
ríkja sinna. Þá
blasir einnig við að
bandalagsþjóðir
okkar í Evrópu
hafa fórnað miklu
til að bregðast við
innrás Rússa og
við Íslendingar
erum heppin
að því leyti að
gríðarleg hækkun
húshitunarkostn-
aðar og orku lend-
ir mun mildilegar
á okkur en þeim.
En við leggjum
okkur fram til að
leggja okkar lóð á
vogarskálar rétts
málstaðar hvar sem við getum, með
beinum framlögum, þátttöku í refsi-
aðgerðum og pólitískum stuðningi.
Málstaður ljóssins
Þessi rétti málstaður er líka í
einhverjum skilningi málstaður
ljóssins gegn myrkrinu, hlýjunnar
gegn kuldanum. Stríðsrekstur
Pútíns hefur undanfarið snúist
um að tortíma innviðum Úkraínu
þannig að yfir kaldan veturinn
verði ótryggt með rafmagn, hita
og vatn. Selenskí forseti Úkraínu
gerði þetta einmitt að umtalsefni í
áhrifaríkri ræðu sinni fyrir banda-
ríska þinginu í vikunni. Hann sagði
að sums staðar yrði týra frá kert-
um eina ljósið á úkraínskum heim-
ilum yfir jólin. „En við munum ekki
barma okkur. Við dæmum ekki eða
berum okkur saman við þau sem
eiga auðveldari daga,“ sagði hann
og bætti við: „Við munum fagna
jólum jafnvel þótt það sé ekkert
rafmagn, því ljósið sem er trú á
okkur sjálf verður ekki slökkt.“
Ljósið hefur hafið sigurgöngu
sína á norðurhveli jarðar og þegar
kemur að stöðu Íslands í heimin-
um trúi ég því að við höfum tekið
okkur skýra og hárrétta stöðu með
hinum björtu gildum frjálsræðis,
mannréttinda og réttarríkis, og ég
trúi að heimsmynd sem byggist á
þeim sé bæði eftirsóknarverð og
sigurstrangleg.
Ég óska lesendum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
thordiskolbrun@althingi.is
Sums staðar hefur
tekist að afvegaleiða
umræðuna þannig að
lygar og afbakanir
rússneskra stjórnvalda
og taglhnýtinga þeirra
hafa skotið rótum. Af
þessum sökum er mik-
ilvægt að halda uppi
vörnum fyrir þá heims-
mynd lýðræðis, mann-
réttinda og réttarríkis
sem reynst hefur svo
gifturík þeim þjóðum
sem hennar njóta.
Fáðu meira út úr eigninni
Greenkey sjálfvirknivæðir og hagræðir
alla þætti í rekstri gististaða
• Hótel og gistiheimili
• Íbúðaklasar
• Íbúðir
• Sumarhús
• Síma- þjónustuver
og bakvakt
• Þrif og þvottur
Ármúli 21, Reykjavik • Sími 519 8989 • greenkey.is
Alhliða rekstrarþjónusta fyrir gististaði