Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Qupperneq 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Qupperneq 21
2125.12.2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla JEPPABREYTINGAR VERKSTÆÐI VARAHLUTIR SÉRPANTANIR RYÐVÖRN ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri sem er eins og rithönd hjá mjög gömlum manni. Árið 2005 byrja bréfin að koma eins og með níræðri skrift þannig að hann hlýtur að verða bráðum 110 ára,“ segir Bergþór. „Svo skrifar hann alltaf „að eylífu“ með ypsilóni,“ segir hann. Sum árin koma pakkar með gjöfum sem Bergþór sækir út á pósthús. Eitt árið fékk hann pakka sem keyptur var í „Talandi“ eins og sendandinn kallar Taíland. Meðfylgjandi bréf var með gjöfinni: „Í sumar er leið fór ég með Herði Gretti, Gong Jing og Anisjasínjing,“ … sem sagt mæðgunun, „til Talands. Það geri ég ekki aftur. Jing-Ansilang lét þar blessa þessar sérsniðnu söngbuxur á ferð okkar um Taland. Þær munu færa þér auð mikinn og háa tóna sem Jing-Ansilang segir þig skorta. Ég er ekki sammála. Hún hefur enga þekkingu á góðum söng; frekar en öðru,“ les Bergþór upp. „Svo fylgdu buxurnar, röndóttar drapplitaðar stretsbuxur sem ná langt upp á maga, með fjórum áber- andi stórum tölum,“ segir Bergþór og segir greinilegt að báðar tengda- dæturnar séu frá „Talandi“. Emil missti auga Oft fær Bergþór með í bréfum myndir af fjölskyldunni. „Ég fékk mynd af fjölskyldunni þegar hún fór í heimsókn til Wisconsin. Þau eru öll í batíkbol- um,“ segir hann. „Svo kom eitt sinn mynd af Emil, sem er þriðji sonurinn, en hann missti auga í flugeldaslysi 2006 og er með lepp fyrir öðru auganu. Þessi mynd er bara prentuð út í heimaprentara en til að gera hana trúverðuga stendur aftan á: „Í sum- ar 2006, Akureyri“,“ segir Bergþór og hlær. Í öll þessi ár hefur sendandinn náð að fara huldu höfði, en Bergþór segist hafa marga grunaða. „En ég vil ekki vita hver það er þannig að ég geri ekki gangskör að því. Þetta er búið að valda mörgum heilabrotum, sérstaklega fyrstu árin,“ segir hann og segist gjarnan lesa upp úr bréfunum fyrir gesti og gangandi yfir hátíðirnar. „Þetta vekur alltaf mikla kátínu. Oftast eru þetta löng bréf þar sem hoppað er úr einu í annað. Stundum verður hann mjög grófur. Þetta er karlmaður en það gæti auðvitað verið kona sem skrifar þetta,“ segir hann. „Hann er með mikið hugmynda- flug, en frásagnirnar ganga mikið út á sjúkdóma og hvað honum sé illa við kerlingar sem eru inni á heimil- inu,“ segir Bergþór að lokum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bergþór geymir öll bréfin og gjafirnar frá óþekkta send- andandum og bíður spenntur hver jól eftir fréttum af þessu dularfulla fólki. Bréfin eru oft skreytt límmiðum. Ketill Áslákur kom að vestan með bifreið og verður hjá okkur þar til hann fer í aðgerð á Landspítalanum á enda- þarmi. Gyllinæðin var á stærð við egg. Ekkert okkar, né nágrannar okk- ar, hafa séð svona áður.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.