Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Side 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Side 22
22 MINNING MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.12.2022 Fæst í öllum apótekum HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf AFP/Andrew Cowie Terry Hall á tónleikum The Specials í Hyde Park í Lundúnum fyrir tíu árum. Fangaði kjarnann í lífinu sjálfu Það er með mikilli sorg og trega sem við tilkynnum andlát Terrys, okkar fallega vinar, bróður og eins besta söngv- ara, laga- og textahöfundar sem þessi þjóð hefur átt, eftir skamm- vinn veikindi. Terry var dásamlegur eiginmaður og faðir og ein ljúfasta og fyndnasta sál sem við höfum kynnst og alla tíð hreinn og beinn. Tónlist hans og framkoma fönguðu kjarnann í lífinu sjálfu … gleðina, þjáninguna, húmorinn og baráttuna fyrir réttlæti en þó einkum og sér í lagi ástina.“ Hún var hástemmd kveðjan sem eftirlifandi meðlimir bresku skahljómsveitarinnar The Specials sendu forsöngvara sínum, Terry Hall, að leiðarlokum en hann féll frá í vikunni, 63 ára að aldri, eftir snarpa glímu við briskrabbamein. The Specials var stofnuð árið 1977 í Coventry og varð partur af hljóðrásinni undir efnahagskreppunni og þjóðfélagsvær- ingunum í Bretlandi á árunum í kringum 1980. Tónlistin var eins konar blanda af ska og nýbylgju, stefnum sem réðu ríkjum á þessum tíma eftir að pönk- ið og diskóið höfðu þakkað fyrir sig. Stefnur gengu sér hratt til húðar í þá daga. Meðal laga sveitarinnar má nefna AMessage To You, Rudy, Rat Race og Ghost Town, sem tyllti sér á topp breska vinsældalistans. Meitlaður texti Halls þótti vera með puttann á pólitíska púlsinum. Sjálf- ur sagðist hann þó ekki sannfærður um að tónlist fengi nokkru breytt en mikilvægt væri eigi að síður að halda sínum sjónarmiðum á loft. The Specials leystist þó snemma upp, árið 1981, og Hall stofnaði Fun Boy Three ásamt félögum sínum Lynval Golding og Neville Staple. Leiðin að eyrum og hjörtum hlustenda var áfram greið og Fun Boy Three kom fjórum lögum á topp 10 í Bretlandi, þar á meðal hinu eitursvala The Lunatics (Have Taken Over the Asylum). Ekki hafði Hall þó eirð í sér til að staldra lengi við á því balli, því hann hætti 1983 og setti á laggirnar The Colourfield ásamt Toby Lyons og Karl Shale úr Swinging Cats. Samdi smell The Go Go's Þess má geta að Hall er einnig meðhöfundur stórsmells stúlknasveitarinnar The Go Go's frá 1981, Our Lips are Sealed. Á þeim tíma var hann að slá sér upp með Jane Weadlin úr The Go Go's en hún samdi lagið með honum. Síðar vann Hall að ýmsum sóló- verkefnum en The Specials komu að endingu saman aftur árið 2008, eins og gömul bönd gera. Árið eftir hituðu þeir meðal annars upp fyrir The Rolling Stones í Ricoh Arena í Coventry. Fyrir þremur árum sendi The Specials síðan frá sér nýja breiðskífu, Encore. Þá fyrstu í 37 ár með nýju efni. Sem fyrr var boðskapurinn pólitískur og Hall lét eftirfarandi orð falla í viðtali við tímaritið The Big Issue: „Glundroðinn vex mér í augum þegar ég hlusta á degi hverjum á stjórnmálamenn lýsa afstöðu sinni og ég hugsa með mér: satt best að segja þá treysti ég ekki neinum ykkar. Það er sorglegt vegna þess að lengi vel var ég dyggur stuðningsmaður Verkamannaflokksins. Þangað til Tony Blair gerði Noel Gallagher að forsætisráðherra, þá vissi ég upp á hár hvar ég stóð.“ Hall fæddist í Coventry árið 1959 og ólst þar upp. Hann rifjaði æsku sína einu sinni upp í miðlinum The Guide: „Ég óx úr grasi í umhverfi, þar sem maður hafði í raun ekki hugmynd um hvaðan maður var að koma. Innflytjendur voru á hverju strái í Coventry vegna þess að það var iðnaðarborg á höttunum eftir ódýru vinnuafli. Ég held að það sé engin tilviljun að band eins og The Specials hafi sprottið upp úr því.“ Æska Halls var enginn dans á rósum en hringur barnaníð- inga rændi honum á ferðalagi til Frakklands þegar hann var 12 ára og misnotaði hann. Hann þjáðist í framhaldinu af þunglyndi og hætti námi áður en hann varð 15 ára. Hall starfaði um tíma sem múrari og lærði hárgreiðslu en fann sig að lokum í tónlistinni. Þunglyndið fylgdi Hall alla tíð og eftir að hann reyndi að svipta sig lífi árið 2004 var hann greindur með geðhvörf. Hall eignaðist tvo syni með fyrri eiginkonu sinni Jeanette Hall og einn með þeirri seinni, Lindy Heymann. Fullkomið hljóðfæri Fjölmargir hafa minnst Halls í vikunni. Þeirra á meðal Elvis Costello sem lagði megináherslu á gæði söngraddar hans. „Rödd Terrys var fullkomið hljóðfæri fyrir hin sönnu og þörfu lög The Specials. Einlægnin skín út úr svo mörgum laga hans, í gleði og sorg.“ Matt Goss úr áttubandinu Bros mærði líka sönghæfileika Halls. „Ég er miður mín yfir því að einn af mínum uppáhaldssöngvurum, Terry Hall, sé allur. The Specials fanga allt sem æska mín hverfðist um, þeir voru BANDIÐ sem dró okkur út af heimilunum og inn á skólaböllin og klúbbana.“ Boy George var einnig brugðið. „Hræðilegt að heyra þetta með Terry Hall. Ég dýrkaði hann sem listamann. Sorgardagur!“ Terry Hall, söngvari The Specials og Fun Boy Three, sem gerðu garðinn frægan fyrir um fjór- um áratugum, lést í vikunni, 63 ára. Hans er minnst með mikilli hlýju sem einstaks hæfileika- manns og skeleggs samfélagsrýnis. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Einlægnin skín út úr svo mörgum laga hans, í gleði og sorg.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.