Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.12.2022, Page 29
2925.12.2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR
Slayerliði með hugljúft jólalag
AFP/Yamil Lage
Dave Lombardo er í jólaskapi í ár.
JÓL Þrasskóngarnir í Slayer
voru frægir fyrir allt annað en
ástarljóð og ballöður meðan þeir
voru og hétu. En mennmeyrna
með aldrinum og í vikunni sendi
Dave Lombardo, upprunalegur
trymbill Slayer, frá sér jólalag,
The Gift, ásamt eiginkonu sinni,
Paulu. „Þetta er rómantískt ást-
arlag fyrir hátíðirnar eftir mig og
konuna mína,“ sagði Lombardo á
youtube-rás sinni. Öðruvísi mér
áður brá, segja ugglaust margir.
BÓKSALA 12.-18. DESEMBER
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1
Reykjavík – glæpasaga
Ragnar Jónasson og Katrín
Jakobsdóttir
2 Kyrrþey
Arnaldur Indriðason
3 Játning
Ólafur Jóhann Ólafsson
4 Gættu þinna handa
Yrsa Sigurðardóttir
5 Hungur
Stefán Máni
6 Eden
Auður Ava Ólafsdóttir
7
Hamingja þessa heims
– riddarasaga
Sigríður Hagalín Björnsdóttir
8 Strákar sem meiða
Eva Björg Ægisdóttir
9 Guli kafbáturinn
Jón Kalman Stefánsson
10 Tól
Kristín Eiríksdóttir
11 Saknaðarilmur
Elísabet Jökulsdóttir
12 Drepsvart hraun
Lilja Sigurðardóttir
13 Útsýni
Guðrún Eva Mínervudóttir
14 Tugthúsið
Haukur Már Helgason
15
Fjällbacka-serían
– gauksunginn
Camilla Läckberg
16 Tættir þættir
Þórarinn Eldjárn
17 Jól í Litlu bókabúðinni
Jenny Colgan
18 Gratíana
Benný Sif Ísleifsdóttir
19 Opið haf
Einar Kárason
20 Veðurteppt um jólin
Sarah Morgan
Allar bækur
Ég hef alltaf haft gaman af góðum
sögum og þá skiptir ekki öllu máli
um hvað sagan er ef hún hreyfir
við tilfinningum og opnar víddir í
nýja heima.
Bækur og sögur
Haruki Murakami
eru þess eðlis. Ég
hef lesið allt sem
ég hef náð í eftir
hann en í sérstöku
uppáhaldi er
þríleikurinn 1Q84
sem gerist á öðru tilverustigi en
við eigum að venjast. Þar stýra
tungl hugsunum og hið óútskýr-
anlega ræður ríkjum en gengur
upp á einhvern
undarlegan og
skemmtilegan
hátt. Ljóðabókin
Leðurjakkaveður
eftir Fríðu Ísberg
hreyfir einnig við
mér. Einlæg ljóðin
segja sögur sem
fá nýja merkingu og aukna dýpt
þeim mun oftar sem þau eru
lesin.
Sögur Nóbelsverðlaunahafans
Kazuo Ishiguro hitta líka í mark
hjá mér en ég lauk
nýlega við bókina
Klara and the Sun
eftir hann sem er
í grunninn afar
sorgleg en hlý þar
sem mennska og
„vélmennska“
takast á í veröld
breytinga og lyfta siðferðilegum
álitamálum í hæstu hæðir.
Nýlega las ég einstaklega
góðan og nýstárlegan þríleik
eftir Karin Smirnoff um systkin
sem takast á við lífið eftir erfið
æskuár í Norður-Svíþjóð. Það
eru bækurnar Jag for ner till
bror,Vi for upp med mor og Sen
for jag hem.
KjellWestö lýsir lífi og sam-
skiptum fólks í finnsku samfélagi
og hefur einstak-
lega gott vald á
persónusköpun
og lýsir vel glímu
fólks við sig sjálft
og aðra. Bók hans
Den svavelgula
himlen sem ég
var að klára gerist
í Helsinki og er saga af einkalífi,
vináttu, ástum, leyndarmálum
og átökum vinahóps yfir áratuga
tímabil.
Bókin sem ég er að lesa núna
er eftir JohnAjvide Lindquist og
heitirVänlighet-
en.Hún fjallar
um samfélags-
breytingar með
yfirnáttúrlegum
undirtóni og
glímir við átök
vinsemdar og
hryllings.Ajvide
skrifaði líka Gräns og Låt den
rätta komma in.
Ég hef lesið mikið eftir Karl
Ove Knausgaard,meðal annars
öll sex bindin af Min kamp! Næsta
bók á leslistanum mínum er
bókin Morgenstjernen eftir hann.
Auk hennar á listanum eru að
sjálfsögðu líka nýjar íslenskar jóla-
bækur sem gera jólin að jólum.
Gleðileg lestrarjól.
BIRNA MARÍA ERAÐ LESA
Alltaf haft gaman af
góðum sögum
Birna María B.
Svanbjörnsdótt-
ir er dósent við
Háskólann á
Akureyri.
cbdrvk.is * Sími 766 6000 * cbdrvk@cbdrvk.is
cbdrvk.is
Sendum frítt
á Dropp
afhendingastaðiFæst í betri heilsubúðum og apótekum
Finndu okkur á
Gleðilega hátíð
AFP/Terje Bendiksby
Litli galdrakarlinn Ronnie
James Dio á tónleikum árið
2009.Ári síðar var hann allur.
sínum úr sveit sem bar nafn hans,
Jimmy Bain og Vivian Campbell, og
hlaut hópurinn nafnið Hear ‘N Aid.
Þetta var áður en nokkur maður
hafði heyrt um Guns N’ Roses
enda var það band rétt stofnað.
Fagurkerar og aðrir á rófinu veita
því ugglaust athygli að úrfellingar-
komman er ekki á sama stað í
nöfnum þessara tveggja sveita. Ef
þið haldið að ég sé núna að fara að
upplýsa ykkur um hverju það sætir
þá er það misskilningur. Ég hef ekki
grænan grun um það.
Stars er óður til hungraðs heims
og hefst á strengjaglamri Camp-
bells og Bains og angurværum orð-
um úr munni Ronnies James Dios
sjálfs: Who cries for the children?
I do …
Síðan taka við söngnum kappar
á borð við Dave Meniketti úr Y&T,
Eric Bloom úr Blue Öyster Cult,
Don Dokken úr Dokken, Kevin
DuBrow úr Quiet Riot, Rob Halford
úr Judas Priest, Paul Shortino
úr Rough Cut og Geoff Tate úr
Queensrÿche. Allt voru þetta vinsæl
bönd á þessum tíma en flestum
gleymd í dag, nema auðvitað Judas
Priest og kannski Queensrÿche hjá
þeim allra hörðustu.
Seinna í laginu má heyra línur á
borð við þessar:
We can be strong, we are fire and
stone
And we all want to touch a rainbow
But singers and songs will never
change it alone
We are calling you, calling you
Dio hlóð, sem kunnugt er, sjaldan
í sönglagatexta án þess að blessað-
ur regnboginn kæmi við sögu.
Í bakröddum mátti meðal annars
finna skáldaðar persónur, Derek
Smalls og David St. Hubbins úr
hinu ódauðlega en marglogna bandi
Spinal Tap. Samfélagsrýnirinn
umdeildi Ted Nugent raulaði einnig
með. Donald fóstri hans Trump átti
ekki heimangengt.
Málmlag án sólós á þessum tíma
var eins og hangiket án uppstúfs
og fingragaldrar voru framdir af
mönnum á borð við Craig Goldie
(Giuffria), Eddie Ojeda (Twister
Sister), Neal Schon (Journey),
Yngwie Malmsteen, Carlos Cavazo
(Quiet Riot) og svo auðvitað Vivian
Campbell. Á ryþmagítarnum voru
fóstbræðurnir úr Iron Maiden,
Dave Murray og Adrian Smith.
Hvar voru málmynjurnar?
Stars var ruddalega karllægt lag.
Sir Bob Geldof og Midge Ure höfðu
alla vega rænu á að bjalla í Banana-
rama og stilla þeim stöllum upp
fremst í myndbandinu við Do They
Know It's Christmas en þeir málm-
bræður voru með öllu kvenmanns-
lausir í kulda og trekki. Samt voru
alveg til málsmetandi málmynjur á
þessum tíma, svo sem Lita Ford og
Doro Pesch. Var virkilega enginn
með númerið hjá þeim? Alveg hefði
mátt mynstra rokkstelpur á borð
við Joan Jett og Pat Benatar í þetta
líka.
Mikið var í verkefnið lagt. Heil
plata gerð til að styðja við Stars
með böndum á borð við Kiss, Rush,
Motörhead og Scorpions. The Jimi
Hendrix Experience reis meira
að segja upp frá dauðum. Þá var
tekið upp myndband, þar sem saga
verkefnisins var rakin. Þegar allur
pakkinn var klár gengu Dio og
félagar aftur á móti á vegg. Útgáfu-
fyrirtæki sumra listamannanna
voru með múður og jafnvel dólg.
Eftir japl, jaml og fuður fengust öll
leyfi loksins heilu ári síðar og Stars
kom út 26. maí 1986.
Þá var mesti vindurinn úr verk-
efninu og ekki eins auðvelt að sigla
á öldunni sem Band Aid og USA for
Africa höfðu búið til. Stars komst
hæst í 26. sæti breska vinsældalist-
ans og MTV sýndi myndbandinu
lítinn áhuga. Eins stórkostlegt og
það nú er og innilega barn síns
tíma. Hafið þið ekki séð það hvet ég
ykkur til að kasta öllu frá ykkur nú
þegar! Meira að segja Sunnudags-
blaðinu. Einn af mörgum hápunkt-
um er þegar menn leggja lófann yfir
stu-ið í Studio á vegg í húsinu og
fá í staðinn dio. Hlírabolurinn hans
Robs Halfords er líka fyrir lengra
komna.
Ef til vill geigaði skotið 1986 en í
seinni tíð hefur Stars fest sig ræki-
lega í sessi í málmsögunni. Þannig
hafði sjónvarpsstöðin VH1 Hear 'N
Aid á toppnum þegar það valdi 100
bestu málmstundir sögunnar árið
2004.
Ég veit ekki alveg með það.