Fréttablaðið - 11.01.2023, Síða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Adda Soffía er dugleg að stunda hlaup og CrossFit, og nú með enn
liðugri hné vegna Joint Rewind frá Feel Iceland. MYND/AÐSEND
Kollagen
frá Feel Iceland er
hrein, íslensk nátt-
úruafurð og fæst
bæði sem duft og í
hentugum hylkjum.
„Ég fann mína hillu í háloftunum
og vil hvergi annars staðar vinna
en í f lugvél. Flugvélin hentar mér
reyndar svo vel að ég ákvað að
læra að fljúga. Það hefur verið
draumurinn minn til langs tíma
en ég hafði lengi vel ekki trú á því
að ég gæti orðið flugmaður. En svo
lét ég bara vaða og stefni á að ljúka
atvinnuflugmannsnáminu sem
allra fyrst.“
Þetta segir Adda Soffía Ingvars-
dóttir, snyrtifræðingur og flug-
freyja hjá Icelandair.
„Flugfreyjulífið er ekki bein-
línis ævintýralíf þótt maður sé
á ferð og flugi um allan heim, en
það er alveg fáránlega skemmtileg
vinna og vinnustaður. Ég veit það
er klisja að segja að enginn dagur
sé eins, en þannig er það nú samt í
f luginu. Maður er aldrei með sama
fólkinu og sér ekki fyrir hvað getur
komið upp á. Maður verður hins
vegar víðsýnni og lærir að dæma
ekki aðra heldur taka öllu fólki
eins og það er,“ segir Adda Soffía.
Það hentar henni ekki að sitja
niðurnegld við skrifborð í átta
tíma á dag.
„Í fluginu vinn ég sirka fimmtán
daga í mánuði og þá er maður á
fullu allan tímann. Vinnunni fylgir
auðvitað óreglulegur svefn og það
tekur líkamlega á að vera í f lugvél
í marga klukkutíma, auk þess sem
það getur verið líkamlega erfitt að
lyfta hlutum og standa á fótunum
tímunum saman. Því skiptir miklu
að hugsa vel um sig og í hverju
einasta stoppi reyni ég að hreyfa
mig, fara í líkamsræktarsal á
hótelinu eða út að hlaupa.“
Fer aldrei förðuð í háttinn
Adda Soffía er fædd og uppalin á
Akureyri en flutti suður á mölina
þegar hún hóf nám í snyrtifræði
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
þar sem hún dúxaði í sinni
deild.
„Ég lærði snyrtifræði
vegna óbilandi áhuga
míns á húðinni. Ég var
mjög bráðþroska og
fékk snemma bólur en
tók það föstum tökum
og held ég hafi hreinsað
húðina mína kvölds og
morgna frá því ég var
tíu ára. Ég get eflaust
talið á fingrum annarrar
handar þau skipti sem
ég hef farið í háttinn
með málninguna
framan í mér. Ég hef því
alltaf gefið mér tíma til
að hreinsa húðina, sama
hversu þreytt ég hef
verið,“ segir Adda Soffía.
Hún vann sem sminka
í þrettán ár, bæði
sjálfstætt og í Make
Up Store og segir
snyrtifræðinámið
hafa nýst sér vel í
verkefnum lífsins.
„Meðal ann-
ars vann ég um
tveggja ára skeið
sem „beauty
director“ hjá tíma-
ritinu Glamour
sem var eitt það
lærdómsríkasta og
skemmtilegasta
tímabil sem ég hef
átt. Þar kynntist ég
fullt af fólki og fékk
að nýta nám mitt og
sérþekkingu á því sem mér þykir
svo einkar áhugavert, húðinni og
húðumhirðu. Ég er enn afar dugleg
að segja fólki að flækja ekki dag-
lega húðumhirðu með of mörgum
húðvörum heldur byrja á einföld-
um hreinsi og rakakremi, því það
er eins með húðina og mataræðið
eða ræktina, að ef það verður of
flókið er hætta á að maður haldi
það ekki út.“
Kollagen í hentugum
hylkjum
Það var hjá tískutíma-
ritinu Glamour sem
Adda Soffía komst á snoðir um
Feel Iceland kollagen.
„Það var árið 2016 og síðan hef
ég notað kollagenið nær óslitið.
Ég nota kollagenduftið við og við
í grauta eða búst en ég er mikill
talsmaður kollagen-hylkjanna því
ég ferðast svo mikið í f luginu og
finnst þá þægilegast að hafa hand-
hæg hylkin meðferðis. Þau gera
enda alveg sama gagn og kollagen-
duftið og ávinningurinn
er sá sami,“ greinir Adda
Soffía frá.
Hún tekur daglega inn
kollagen hylkin Joint
Rewind og Age Rewind frá
Feel Iceland.
„Ég tek inn Joint Rewind
fyrir liðheilsuna. Ég hleyp
mikið og hef stundað
CrossFit í sex ár en er
að upplagi frekar léleg í
hnjánum. Eftir að ég fór að taka
inn Joint Rewind fann ég fljótt
mikinn mun til hins betra en í því
eru efni sem geta styrkt brjóskið
og mig grunar að það geri gæfu-
muninn fyrir góða hnéheilsu mína
í dag. Ég prófaði að gera tilraun á
sjálfri mér til að sannreyna hvort
kollagenið hefði virkilega svona
mikil áhrif og hætti þá að taka inn
kollagenið í nokkrar vikur, eða
þar til ég vaknaði einn morguninn
og ætlaði varla að geta rétt úr
fótunum. Ég ákvað því strax að
halda áfram með Joint Rewind
því munurinn er drastískur. Ekki
einungis verða liðirnir mýkri og
liðugri heldur varnar kollagenið
því líka að maður fái strengi. Ég
sé því ekkert annað geta komið í
staðinn fyrir Feel Iceland kollagen
fyrir mín stirðu liðamót og er alsæl
með árangurinn. Ég mæli hiklaust
með Joint Rewind fyrir þau sem
eru slæm í liðum og veigra sér við
að taka inn kollagenduft og finnst
það vesen,“ segir Adda Soffía.
Hárið vex og vex með kollageni
Hún tekur inn Age Rewind frá Feel
Iceland fyrir húðina.
„Ég bæði finn og sé að það gerir
mér gott. Kollagen er nauðsynlegt
fyrir húð, hár og neglur. Það kemur
í veg fyrir ótímabæra öldrun og
eykur teygjanleika, mýkt, raka og
ljóma húðarinnar. Hárvöxturinn
tók líka mikinn kipp og hárið á
mér vex og vex og vex. Ég fékk
töluvert hárlos þegar ég var með
dóttur mína á brjósti og slíkt getur
tekið langan tíma að lagast, en ég
fann fljótt hvernig hárið styrktist
eftir að ég fór að taka inn kolla-
genið. Hárið á mér hefur aldrei
verið jafn sítt og nú og er auk þess
orðið mjög þykkt, en það þakka ég
kollageninu í Age Rewind,“ segir
Adda Soffía.
Hún er heilluð af því að Feel
Iceland kollagen sé hrein og
heilnæm náttúruafurð, unnin úr
íslensku þorskroði.
„Fyrir fjörutíu, fimmtíu árum
borðuðu Íslendingar meiri fisk,
innmat og kjöt á beini, en í dag
kemur kollagen sem bætiefni í
staðinn fyrir það hjá nútímafólki
sem fær ekki nóg af kollageni úr
fæðunni.“
Kollagenið hressir og bætir
Adda er sjaldgæft nafn en Adda
Soffía var skírð í höfuðið á ömmu
sinni sem féll frá 2021.
„Amma hét Kristín Ragnhildur
og var alltaf kölluð Adda. Hún
bjó vestur á Snæfjallaströnd við
Ísafjarðardjúp og kallaði sko ekki
allt ömmu sína. Oft var eina leiðin
til að komast að bænum með bát
og þegar afi var langdvölum burtu
vegna vinnu sinnar var amma ein
heima með búskapinn og sjö börn.
En hún var ekkert að kvarta heldur
gerði það sem gera þurfti. Hún var
mikill töffari og mér mikil fyrir-
mynd. Ég hugsa að ég eigi margt
fleira sameiginlegt með ömmu en
nafnið,“ segir Adda Soffía sem eins
og amma hennar gerir ekki stór-
mál úr því smávægilega.
„Ég hef tamið mér að dvelja
ekki við vandamál heldur finna
frekar lausnir. Ég hef alltaf farið
mínar eigin leiðir og bjargað mér.
Ég reyni að gera sem mest til að
láta mér líða vel og hugsa vel um
líkamann því maður fær víst bara
eitt stykki. Ég lifi að vísu óreglu-
legu lífi, vakna á ýmsum tímum og
er mikið í f lugvél en þá er gott að
hafa rútínu í óskipulaginu, eins og
kollagenið frá Feel Iceland og að
stunda reglulega heilsurækt,“ segir
Adda Soffía sem gefur sér alltaf
tíma til að hreyfa sig, þótt ekki sé
nema korter til að svitna og koma
kerfinu í gang.
„Það er mín útrás og hleðsla.
Ég nota orku til að búa til orku.
Þannig finnst mér ég virka best.
Það er mín leið til að tækla áreiti
og annríki hvunndagsins, þá verð
ég skýrari í kollinum og líður hvað
best, bæði andlega og líkamlega.
Maður þarf að vera „fit to fly“ til að
tækla daginn í f luginu og við erum
öllu vön í 40 þúsund fetunum. Eða
eins og ég segi við nýliðana: Það
eru ekki allir að fara í skemmtiferð
og maður veit aldrei í hverju maður
lendir. Þá er gott að vera vel nærður
og taka inn góð bætiefni, eins og
kollagenið frá Feel Iceland sem
flýtir fyrir endurheimt, hressir og
bætir.“ n
Feel Iceland vörurnar fást meðal
annars í Lyfju, Heilsuhúsinu,
Lyfjum og heilsu, Hagkaup,
Fjarðarkaupum, Apótekaranum,
Fríhöfninni og Nettó. Einnig í
vefversluninni feeliceland.com.
Nánar um Feel Iceland kollagen á
feeliceland.com
Ég fékk töluvert
hárlos þegar ég var
með dóttur mína á
brjósti og slíkt getur
tekið langan tíma að
lagast, en ég fann fljótt
hvernig hárið styrktist
eftir að ég fór að taka inn
kollagen frá Feel Iceland.
Ég er mikill tals-
maður Feel Iceland
kollagen-hylkjanna því
ég ferðast svo mikið í
fluginu og finnst þá þægi-
legt að hafa handhæg
hylkin meðferðis. Þau
gera enda alveg sama
gagn og duftið og ávinn-
ingurinn er sá sami.
2 kynningarblað A L LT 11. janúar 2023 MIÐVIKUDAGUR