Fréttablaðið - 11.01.2023, Blaðsíða 16
Með 100 kWst
rafhlöðu fær bíllinn
allt að 800 km drægi en
tveir rafmótorar gefa
bílnum samtals 670
hestöfl.
Peugeot, eins og margir
aðrir bílaframleiðendur,
notaði CES-tæknisýninguna
í Las Vegas til að frumsýna
nýjasta tilraunabíl merkisins.
Peugeot Inception er stór og
sportlegur fólksbíll sem er
byggður á stóra STLA-undir-
vagninum, en sá undirvagn
er skalanlegur og verður
undir Peugeot-bílum fram-
tíðarinnar.
njall@frettabladid.is
Bíllinn er fimm metrar á lengd og
milli hjóla hans er 100 kWst raf-
hlaða með allt að 800 km drægi.
Tveir rafmótorar eru í bílnum hvor
á sínum öxli svo að hann er fjór-
hjóladrifinn. Samtals eru þeir 670
hestöfl og því getur bíllinn farið í
hundraðið á undir þremur sekúnd-
um. Rafkerfi bílsins er 800 volt sem
er í fyrsta skipti sem Peugeot byggir
þannig bíl. Útlit bílsins er með enn
meiri áherslum á þrískipt aðalljós
en áður og hvassar línur hans munu
fara að sjást í framleiðslubílum Peu-
geot strax á þessum áratug.
Eins og búast mátti við frá Peu-
geot er innanrými hans sér á parti.
Innanrýmið kallast Hypersquare
og er með ferköntuðu stýri og er
stafrænn stjórnbúnaður á öllum
fjórum hornum þess. Peugeot
áætlar að kynna fyrstu framleiðslu-
bílana með Hypersquare-innan-
rýminu strax árið 2026. Þar sem
stýrið er tölvustýrt er engin stýrisás
og því var hægt að hanna innan-
rýmið upp á nýtt.
Fyrir aftan stýrið er sérstakur
hringlaga skjár sem sýnir helstu
upplýsingar, en bíllinn er líka með
fjórða stigs sjálfkeyrslubúnaði.
Þegar það er gert hverfur skjárinn
ofan í mælaborðið. n
Flatarmál glers í yfirbyggingu Inception er 7,25 fermetrar en hluti þess er yfir afturljósunum. MYNDIR/STELLANTIS
Hypersquare-
innanrýmið er
algerlega ný
hönnun og er
ferkantað stýri
og hringlaga
skjár eins og ein-
hver öfugmæli.
njall@frettabladid.is
Ameríski tæknirisinn Qualcomm
hefur smíðað tilraunabíl til að
kynna næstu kynslóð tæknibún-
aðar síns og frumsýndir gripinn á
CES-tæknisýningunni í Las Vegas.
Meðal þess sem kynnt var í nýja
bílnum er næsta kynslóð gervi-
greindar og raddstýringarbúnaður.
Bíllinn hefur ekki fengið nafn
enda aðeins nokkurs konar
kynningarbás fyrir hinn nýja
Snap dragon stafræna undirvagn.
Að sögn Qualcomm sýnir hann
notkunarmöguleika næstu kyn-
slóðar ökumanna. Bíllinn er kúpu-
laga með hurðum sem opnast sitt
í hvora áttina og risastórum upp-
lýsingaskjá sem nær yfir alla breidd
bílsins. Gervigreindin getur lesið
andlit farþeganna og stillt hluti eins
og sæti, miðstöð og upplýsingakerfi
eftir þeirra þörfum. Með sérstökum
hljómbúnaði er bílnum skipt í
hljóðsvæði fyrir hvern notanda.
Notkun snertiskjás er minnkuð
með nýjum raddstýringarbúnaði.
Risaskjárinn kemur frá taívanska
fyrirtækinu AUO og er 55 tommur
enda á milli. Auk þess eru tveir
stórir skjáir í aftursætum þar sem
hægt er að spila leiki og horfa á efni
frá streymisveitum. Meðal annarra
samstarfsaðila eru fyrirtæki eins og
Amazon Music, Bose, Zoom og Vec-
tor Unit leikjaframleiðandinn. n
Qualcomm smíðar bíl til tæknikynningar
Fjögur mismunandi svæði í bílnum eru fyrir hvern notanda hans.
MYNDIR/QUALCOMM
Skjárinn fyrir framsæti er 55 tommur á breidd og gegnum hann má til dæmis
fá myndsímtöl.
Peugeot Inception
frumsýndur á CES
Felgurnar undir bílnum eru prófunarfelgur en búast má við stærri felgum á
næstu kynslóð X2. MYND/AUTO EXPRESS
Fyrstu njósnamyndir af BMW iX2
njall@frettabladid.is
Von er á annarri kynslóð BMW X2
á næstunni og Auto Express-vef-
miðillinn sýndi á dögunum fyrstu
myndir af rafútgáfu sama bíls.
Bíllinn mun nota sama undirvagn
og BMW X1 og því mun margt vera
svipað í tæknibúnaði þessara bíla.
Það sem vekur athygli er breytt
útlit X2 og þá sérstaklega að aftan-
verðu, en hliðarlínu hans svipar
meira til bíla eins og X4 coupe. Að
framan svipar rafbílnum mikið til
iX1 með sömu gerð af framljósum
og svipuðu formi á grilli. Aftur-
glugginn hallar aðeins lítillega og
þótt afturljósin séu vandlega falin
sjást þau nógu mikið til að líkjast
ljósunum á X1. Undirvagninn er
UKL2 eins og í iX1 sem þýðir að
bíllinn fær líkast til sömu 64,7 kWst
rafhlöðu með 308 hestafla rafmót-
orum og 494 Nm togi. BMW iX1 er
5,7 sekúndur í hundraðið en aðeins
þyngri iX2, ætti samt að vera innan
við sex sekúndur þangað. Drægi iX1
er 440 km en þegar betra loftflæði
nýs iX2 er haft í huga má jafnvel
búast við betri tölum þar. n
njall@frettabladid.is
Eftir frumsýningu Mercedes á
GLC-jepplingnum í fyrra er nú
röðin komin að GLC Coupe. Von
er á bílnum síðar á árinu en Auto
Express birti nýjustu njósnamynd-
ir af bílnum á dögunum með mjög
litlum dulbúningi. Bíllinn fer í sölu
seint á þessu ári og mun keppa við
BMW X4 til að mynda.
Að framan má sjá að notast
verður við sama framenda og á
GLC að mestu leyti. Notast er við
sama tvískipta grillið með þriggja
arma stjörnum á víð og dreif.
Þessu til viðbótar verður
hann með Digital Light-
ljósabúnaðinum sem
getur skipt um form
ljóskeilunnar. GLC
Coupe kemur á sama
MRA2-undirvagni
og C-línan og þess
vegna er innréttingin að mestu
leyti sú sama. Fyrir miðju er 11,9
tommu snertiskjár með MBUX-
kerfi. Fyrir framan ökumann er
svo 12,3 tommu upplýsingaskjár.
Þar sem þaklínan að aftan er
talsvert hallandi mun það taka
nokkuð af 600 lítra farangursrými
GLC-jepplingsins. Líkt og í honum
mun Coupe-útgáfan fá rafmagn í
öllum sínum útfærslum, allt frá 48
volta tvinnkerfi upp í þrjár gerðir
tengil tvinnbíla með allt að 100
km drægi. Í þeim öllum er 31 kWst
rafhlaða og 134 hestafla rafmótor.
Öflugri útgáfan mun skila 376
hestöflum samtals og 650 Nm togi.
Ekki er von á rafútgáfu þar sem að
EQC fyllir þann bás. n
Nýjustu myndir af GLC Coupe
Mercedes-Benz GLC Coupe er
enn straumlínulagaðri en áður með
mikið afturhallandi afturenda.
njall@frettabladid.is
Eins og aðrir framleiðendur pall-
bíla er Ram pallbílamerkið með
rafdrifinn pallbíl á prjónunum, en
Ram notaði einmitt CES sýninguna
í Las Vegas til að frumsýna til-
raunaútgáfu bílsins sem væntan-
legur er á næsta ári. Um tiltölulega
fullbúinn bíl er að ræða og auðvelt
að ímynda sér að hann fari ekki
langt frá því sem sýnt var í Las
Vegas.
Útlit bílsins er langt frá því sem
við höfum áður séð í kassalaga Ram
pallbílum. Allar línur eru ávalari og
díóðuljós sem ná yfir alla fram-
hliðina og þá einnig merki bílsins,
eru mjög áberandi. Hliðarhurðir
sem opnast í sitt hvora áttina gætu
jafnvel náð á framleiðslustigið. Inni
í bílnum eru tvær sætaraðir með
tveimur sætum hvor, en hægt er
að fjarlægja aftursætin og einnig
miðjustokkinn. Hægt er að lengja
í pallinum og opna inn í farþega-
rýmið svo að hægt er að flytja hluti
sem eru allt að 5,5 metrar að lengd.
Inni í bílnum er tvískiptur miðju-
skjár en aðeins er framrúðuskjár
fyrir ökumanninn. Bíllinn verður
smíðaður á skalanlegum STLA-
undirvagni Stellantis sem býður
upp á 800 volta rafkerfi. n
Ram með rafdrifinn pallbíl á CES
Áætlað er að framleiðsluútgáfa Ram rafmagnspallbílsins komi á markað 2024.
4 BÍ L A BL A ÐI Ð 11. janúar 2023 MIÐVIKUDAGUR