Fréttablaðið - 11.01.2023, Síða 20

Fréttablaðið - 11.01.2023, Síða 20
V8-bensínvélin fær að halda sér í G63- útgáfunni. njall@frettabladid.is Þegar Mercedes-Benz G-lína kom á markað árið 2018 hafði bíllinn lítið breyst í um 40 ár. Nú er von á andlitslyftingu bílsins á þessu ári og náðst hafa njósnamyndir af bílnum í væntanlegu útliti með lítils háttar dulbúningi. Bíllinn mun koma í sama búningi þegar kemur að málmhlutum en breytingar verða á stuðara sem fær ný loftinntök. Bíllinn á myndinni er AMG G63 og er grillið á honum einnig breytt. Meiri breytinga er að vænta innandyra en G-línan er nú eini bíllinn án MBUX-afþreyingar- kerfisins en til stendur að bæta úr því núna. Hvort það þýðir algera endurhönnun á mælaborði bílsins á þó eftir að koma í ljós. Búast má við sömu vélum og áður og samkvæmt myndum AutoExpress er tvöfalt pústkerfið einnig sjáanlegt sem þýðir að V8-vélin fær að halda sér. Rafdrifin útgáfa er væntanleg árið 2024 og mun einfaldlega heita EQG en tilraunaútgáfa hans var frum- sýnd á Bílasýningunni í München árið 2021. n Styttist í andlitslyftingu G-línu Litlar breytingar verða á útliti fyrir utan framenda. MYND/AUTO EXPRESS njall@frettabladid.is Mercedes hefur tilkynnt að 10.000 nýjar hleðslustöðvar verði settar upp áður en áratugurinn er á enda sem hluti af nýju hleðslustöðva- kerfi framleiðandans. Fyrstu 400 stöðvarnar með 2.500 hleðsluportum alls, verða settar upp í Bandaríkjunum og er áætlað að uppsetningu þeirra ljúki fyrir árið 2027. Þá verður bráðum farið að setja upp stöðvar í Evrópu og í Kína, en hver stöð mun hafa á bilinu 4-30 hleðslu- port. Þessar hleðslustöðvar verða öflugar og ráða við allt að 350 kW hleðslugetu og munu notendur geta pantað sér tíma í hleðslu. Engar áætlanir eru um uppsetn- ingu stöðva hérlendis eins og er. n Mercedes með net hleðslustöðva Byrjað verður á hleðslustöðvum í Bandaríkjunum en Evrópa og Kína fylgja í kjölfarið. njall@frettabladid.is Þrátt fyrir að Defender-jeppinn hafi komið á markað fyrir aðeins tveimur árum síðan er ekki langt í að rafdrifin útgáfa hans muni líta dagsins ljós. Áætlað er að Defender fái andlitslyftingu árið 2025 og þá komi rafdrifnar útgáfur hans líka í öllum stærðarútfærslum. Það þýðir að kaupendur geti fengið fyrstu bílana afhenta árið 2026. Að öllum líkindum má gera ráð fyrir nýjum undirvagni þar sem horfið verður frá D7-undir- vagninum og þess í stað komi MLA Flex-undirvagninn. Sá undirvagn getur bæði notast við 100% rafdrif eða brunahreyfla og er nú undir nýjustu gerðum Range Rover-jepp- anna. Búast má við rafútgáfum Range Rover og Range Rover Sport árið 2024. Land Rover hefur ekki verið fyrir róttækar breytingar á útliti að undanförnu og því má búast við að Defender haldi útliti sínu að mestu. Samkvæmt þessari tölvugerðu teikningu frá Avarvarii má sjá að líklegasta breytingin er á framenda bílsins eins og við var að búast. Auðvitað verða einhverjar breyt- ingar á innanrými og tæknibúnaði en þar sem almenn ánægja er með innanrými núverandi útgáfu er ekki von á miklum breytingum þar heldur. Þeir sem hafa áhyggjur af því hvort Defender verði minni jeppi geta verið rólegir því að rafdrif gefur meiri möguleika á að stýra átaki og bæta þannig tor- færueiginleika. Einnig má búast við meiri veghæð vegna slétts undirvagns. Búast má við að raf- hlaðan verði um 100 kWst og að drægi bílsins verði um 500 km. n Defender kemur rafdrifinn 2025 Ekki er gert ráð fyrir miklum útlits- breytingum á Defender þegar hann kemur á markað. MYND/AVARVARII 522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Vesturhraun 5 210 Garðabær á þinni leið 8 BÍ L A BL A ÐI Ð 11. janúar 2023 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.