Fréttablaðið - 11.01.2023, Qupperneq 24
Hann er fæddur á Brjáns-
læk, sem var einnig
kallaður Brjámslækur,
og þaðan dregur hann
líklega nafnið. Ég sé
ekki betur en að hann
hafi tekið upp á þessu
sjálfur í Kaupmanna-
höfn.
Már Jónsson, sagnfræðingur
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Okkar ástkæri
Steingrímur Waltersson
lést að morgni 4. janúar á
Krabbameinsdeild Landspítalans.
Útför verður auglýst síðar.
Elín Rósa Finnbogadóttir
Kristbjörg Steingrímsdóttir Haraldur Ólafsson
Finnbogi Steingrímsson
Walter Hjartarson Kristbjörg Steingrímsdóttir
Gunnhild Ólafsdóttir
og systkini hins látna
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Sigríður Jónsdóttir
félagsráðgjafi,
sem lést á heimili sínu í Sóleyjarima
á gamlársdag verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju föstudaginn
13. janúar klukkan 13.00.
Aðstandendur
Elsku yndislega mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Björg Bjarnadóttir
Sigtúni 11, Patreksfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Patreksfirði fimmtudaginn
5. janúar. Útför hennar fer fram frá
Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 14. janúar
kl. 14.00. Streymt verður frá athöfninni á
www.youtube.com/@patreksfjardarkirkja
Sigríður Valdís Karlsdóttir Páll Hauksson
Ásgeir Andri Karlsson Hrefna Sigurðardóttir
Ólafía Kristín Karlsdóttir Rögnvaldur Bjarnason
Jónas Dalberg Karlsson Ásrún Kristjánsdóttir
Bjarnfríður Elín Karlsdóttir Örn Eiríksson
Sóley Guðjóna Karlsdóttir Þorsteinn Björnsson
ömmubörn og langömmubörn
Á laugardag fer fram málþing
um Gunnlaug Guðbrandsson
Briem sýslumann, 250 árum frá
fæðingu hans.
arnartomas@frettabladid.is
Næsta föstudag verða liðin 250 ár frá
fæðingu Gunnlaugs Guðbrandssonar
Briem sýslumanns. Ævi Gunnlaugs
er um margt merkileg en hann
var meðal annars fyrsti maðurinn
til að taka upp ættarnafnið Briem.
Í tilefni af þessum tímamótum
stendur Félag um átjándu aldar
fræði fyrir málþingi í Þjóðarbók-
hlöðu á laugardaginn þar sem ævi
og störf Gunnlaugs og ættmenna
hans verða tekin fyrir í fjórum
erindum.
Gunnlaugur var fæddur að
Brjánslæk í Barðastrandarsýslu
þann 13. janúar 1773. Foreldrar
hans voru Guðbrandur Sigurðs-
son prestur og kona hans Sigríður
Jónsdóttir. Guðbrandur lést þegar
Gunnlaugur var aðeins sex ára gam-
all og var prestssonurinn þá sendur í
fóstur í Sauðlauksdal.
Fimmtán ára gamall fór Gunnlaugur
í nám til Danmerkur og útskrifaðist frá
Listaháskólanum í Kaupmannahöfn
árið 1795. Þar á eftir hóf hann nám í
lögfræði og útskrifaðist tveimur árum
síðar. Hann sneri aftur til Íslands sum-
arið 1799 og gerðist þar aðstoðarmaður
Jóns Jakobssonar, sýslumanns í Eyja-
fjarðarsýslu. Gunnlaugur gekk að eiga
Valgerði Árnadóttur, en eitt af erindum
á málþinginu fjallar einmitt um hana.
Árið 1805 var Gunnlaugur skipaður
sýslumaður í Eyjafirði og sinnti hann
starfinu til æviloka. Honum var lýst sem
reglusömum embættismanni, ströngum
dómara og góðum lögfræðingi þótt lög-
fræðinám hans hafi verið í styttra lagi.
Þótt litlum sögum hafi farið af listiðkun
Gunnlaugs eftir að hann sneri heim til
Íslands sitja eftir hann þó nokkrir gripir
sem varðveittir eru í Þjóðminjasafni
Íslands og má sjá á vefsýningu safnsins
á sarpur.is.
Stælar í Kaupmannahöfn
En hvernig kom þá ættarnafnið Briem til?
„Hann er fæddur á Brjánslæk, sem var
einnig kallaður Brjámslækur, og þaðan
dregur hann líklega nafnið. Ég sé ekki
betur en að hann hafi tekið upp á þessu
sjálfur í Kaupmannahöfn,“ svarar Már
Jónsson sagnfræðingur. „Hann skrifar
Handlaginn
ættfaðir
Gunnlaugur þótti mikill prinsippmaður, reglusamur en strangur.
Ættartré Gunnlaugs dregið upp af honum
sjálfum á blað. Mynd/ÞjóðMinjasafn Íslands
Spjald úr fíngerðum laufviði útskorið af
Gunnlaugi, mögulega sem skjaldarmerki
fyrir hann og afkomendur hans.
1569 Theódóra verður keisaraynja af Býsansríki.
1693 Eldgos hefst í Etnu á Sikiley.
1897 Leikfélag Reykjavíkur var stofnað.
1918 Bjarndýr kemur á land í Núpasveit austan Öxar-
fjarðar. Fleiri birnir fylgdu eftir sama vetur.
1935 Amelia Earhart flýgur einmenn-
ingsflug frá Hawaii til Kali-
forníu, fyrst kvenna.
1960 Tjad lýsir yfir sjálfstæði.
1971 Bandaríska söngkonan
Mary j. Blige fædd.
1972 Austur-Pakistan verður
að Bangladess.
1992 Sjónvarpsþáttur Spaug-
stofunnar, 92 á stöðinni,
hefur göngu sína á RÚV.
2011 Hundruð látast í flóðum
og aurskriðum í Rio de
Janeiro.
Merkisatburðir
stutt æviágrip á latínu þegar hann sækir
um starf þar sem hann kallar þetta Pri-
amus og vísar þar í gríska goðafræði.
Þetta eru eiginlega bara einhverjir stæl-
ar í honum, en þarna í Kaupmannahöfn
vildu menn hafa ættarnöfn því Danir
skildu ekkert þessi íslensku föðurnöfn.“
Jarðamatsnefndin
Már flytur erindi á málþinginu þar sem
störf Gunnlaugs í jarðamatsnefndinni
1800–1806 verða tekin fyrir. Í kjölfarið
á róttækum breytingum af hálfu Dana
eftir móðuharðindin var ákveðið að
endurskoða fasteignamat á landinu.
„Þetta átti að vera róttæk endur-
skoðun þar sem Gunnlaugur og þrír
aðrir menn voru sendir um allt landið
að kalla saman bændur, og sem áttu að
gefa út skýrslu þar sem gerð yrði grein
fyrir hversu mikill búskapur gæti verið
á landinu, dúntekja og svo framvegis,“
útskýrir Már. „Þetta var svo tekið saman
í einhverja tölu og niðurstaðan átti að
vera hið nýja jarðamat.“
Verk nefndarinnar var stórt í sniðum
en alls þurfti að taka út mat á 5.400
jörðum. Gert var ráð fyrir að verkið tæki
um sex ár, sem það gerði.
„Þarna er auðvitað um gríðarlega
hagsmuni að ræða og mikil tortryggni
og þvermóðska sem þeir mættu,“ segir
Már. „Gunnlaugur og félagar hans í
nefndinni sektuðu fjölda bænda sem
gáfu ekki réttar upplýsingar eða sýndu
einhvers konar múður. Þetta hefur verið
heilmikið taugastríð á meðan þetta
gekk yfir.“
Jarðamatsnefndin lauk verki sínu og
í dag má finna bækur hennar í Þjóð-
skjalasafninu, snyrtilega og ítarlega vel
frágengnar.
„Að Gunnlaugur hafi verið skipaður
í þetta verk sýnir að mönnum hafi eitt-
hvað þótt í hann spunnið þarna í Kaup-
mannahöfn,“ segir Már. n
TímamóT FréTTablaðið 11. janúar 2023 mIÐVIKUDaGUR