Fréttablaðið - 11.01.2023, Síða 30

Fréttablaðið - 11.01.2023, Síða 30
Ég hef til dæmis verið að lesa safn af írskum álfasögum sem er eitt af þessu sem ég hef verið að skoða. Jón Gnarr AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@ frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Jón Gnarr undirbýr nú stofnun Gnarristan. Það er ekki land heldur hlaðvarp þar sem grínistinn hyggst ræða eigin hugðarefni við alls kyns fólk í samstarfi við Baldur Ragnarsson og félaga í Hljóð- kirkjunni. odduraevar@frettabladid.is „Þetta er voða mikið svona nörda hjá mér,“ segir grínistinn góðkunni Jón Gnarr um undirbúning sinn að eigin hlaðvarpi sem mun bera heitið Gnarristan. Hann var einmitt í þann mund að fara að hitta fyrsta viðmælandann þegar Fréttablaðið náði af honum tali. Gnarristan verður framleitt í samstarfi við Hljóðkirkjuna, hlað- varpsstöð í eigu Skálmaldarbræðr- anna Baldurs og Snæbjörns Ragn- arssona. Þeir hafa meðal annars gert einn vin- sælasta hlaðvarpsþátt landsins, Drauga fortíðar, en það var einmitt í þeim þætti sem boltinn fór að rúlla hjá Jóni. „Ég hafði verið með þetta lengi í maganum og svo kynntist ég Baldri þegar hann og Flosi Þor- geirsson fengu mig í Drauga fortíðar til að ræða Jóhannes Birkiland og þá svona fór ég eitthvað að ámálga þetta við hann Baldur og þetta er afleiðing þess.“ Jón viðurkennir að hugmyndin hafi í raun smellpassað inn í heim Hljóðkirkjunnar. Í Draugum for- tíðar kryfja þeir Baldur og Flosi eitt málefni úr fortíðinni í hverjum þætti og Jón ætlar að feta svipaða braut. „Baldur ætlar að aðstoða mig við þetta og mig langar til þess að fjalla um ýmis hugðarefni mín í hverjum þætti,“ segir Jón. „Stefnan er að taka fyrir eitt mál- efni í hverjum þætti og hafa ákveðið þema. Nálgast það svo út frá ólíkum hliðum,“ segir Jón sem bætir því við spurður að þetta verði líklega ekki mjög umdeild málefni. „Þetta verður voða mikið innan vísinda, tækni og sögu. Mig langar að fá til mín góða gesti til að ræða um alls kyns sér- tæk mál,“ segir Jón sem segist hafa hugsað þetta lengi. „Ég er svo oft að lesa eitthvað sem mér finnst vera áhugavert en er svo kannski ekkert sérstaklega aðgengi- legt. Ég hef til dæmis verið að lesa safn af írskum álfasögum sem er eitt af þessu sem ég hef verið að skoða.“ Jón segir klárt að þetta verði eitt af viðfangsefnum Gnarristan. „Ég fullyrði það að mig langar einhvern tímann til þess að gera þátt um álfa og álfatrú. Þá gæti ég til dæmis talað við einhvern þjóðfræðing sem hefur kynnt sér álfasögur. Þetta er meðal annars stefnan.“ Hann bætir því við að þetta verði um allt á milli himins og jarðar. „Ég hef áhuga á svo miklu þannig að þetta verður eitt og annað. Sumir þættirnir gætu jafnvel fjallað um einhverja sjónvarpsþætti sem er ákveðin ástríða sem ég hef og jafn- vel viðtöl við eitthvert fólk sem kemur við sögu í þessum þáttum og svona.“ Fyrsti þáttur kemur út í febrúar og verða þættirnir áskriftarþættir þó að einhverjir verði aðgengilegir öllum. „Baldur er með tæknilegu atriðin á hreinu. En ég er byrjaður að vinna að þessu og er einmitt að fara að hitta viðmælanda hérna eftir örskamma,“ segir Jón fullur af eld- móði. n Jón Gnarr hyggst leggja land undir fót í Gnarristan Jón Gnarr hefur lengi verið með hugmyndina að hlaðvarpinu Gnarristan í kollinum FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Baldur Ragnars- son verður Jóni til halds og trausts. Jón Gnarr þekkir hvern krók og kima í Gnarristan. frettabladid.is Þú finnur allar nýjustu fréttir dagsins á frettabladid.is. Innlendar og erlendar fréttir, léttar fréttir, íþróttafréttir, viðskiptafréttir, skoðanapistla, spottið og auðvitað blað dagsins ásamt eldri blöðum. Hvað er að frétta? 18 Lífið 11. janúar 2023 MIÐVIKUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.