Fréttablaðið - 19.01.2023, Side 2

Fréttablaðið - 19.01.2023, Side 2
Maður hefur kannski ræktað einhverjar sérviskur sem annars hefðu verið skólaðar úr manni. Ragnar Hólm, verkefnastjóri Sigur í fyrsta leik í Gautaborg Óðinn Þór Ríkharðsson átti flottan leik er Strákarnir okkar unnu sinn fyrsta leik í milliriðlum gegn Grænhöfðaeyjum á HM í handbolta í gærkvöld, leikið var í Gautaborg. Íslendingar eru nú með fjögur stig við topp síns riðils og fram undan er risavaxið verkefni gegn heimamönnum í Svíþjóð. Sjá Síðu 16 fréttablaðið/epa - einfaldara getur það ekki verið! Kynningarstjóri Akureyrar- bæjar hefur komið sjálfum sér og öðrum á óvart með blússandi myndlistarferli á miðjum aldri. bth@frettabladid.is Akureyri „Ég veit ekki hvort það er kostur eða galli að hafa byrjað svona seint að mála, en ég mála fyrst og fremst af svona miklum þrótti vegna þess að ég átta mig vel á að það er dálítið liðið á ævina og tími okkar er takmarkaður,“ segir Ragnar Hólm, verkefnastjóri kynn- ingarmála hjá Akureyrarbæ. Ragnar stendur á sextugu og hefur komið eins og stormsveipur inn í myndlistina síðustu ár. Hann málar og málar, jafnt með olíu- og vatnslitum, líkt og enginn sé morg- undagurinn. Velgengnin hefur verið slík að hann selur iðulega hverja einustu mynd á örskömmum tíma ef hann heldur sýningu. Ragnar sótti um inngöngu í Myndlista- og handíðaskólann sem ungur maður. Honum var hafnað um inngöngu þar sem hann þótti ekki draga nógu vel upp þvotta- klemmu. Hann lærði heimspeki og félagsfræði og vann lengi að mark- aðsmálum hjá Stöð 2. Svo f lutti hann aftur norður í sinn gamla heimabæ, Akureyri. Vatnslitamyndir Ragnars eru lág- stemmdar en hann er „coloristi“ er kemur að olíumálverkinu. Hann segir erfitt að meta hvort það hafi orðið honum happ að vera ekki skólagenginn í myndlist. „Maður hefur kannski ræktað einhverjar sérviskur sem annars hefðu verið skólaðar úr manni.“ Margs konar myndlistarmenntun hefur Ragnar þó sótt sér út fyrir landsteinana seinni ár. Hann segist einnig seint fá fullþakkað Guð- mundi Ármann myndlistarmanni fyrir ýmsa ráðgjöf og liðveislu. Málar í kapp við tímann „Ég er algjörlega tvískiptur,“ segir Ragnar þegar spurt er hvers konar listamaður hann sé. „Vatnslitirnir eru fyrst og fremst landslag, það er rosalega róandi að láta vatnið dansa eftir myndfletinum. En ef vatnslit- un er ballett þá er það að mála með olíu meira eins og box.“ Spurður hvort hrós og hvatning skipti hann máli, svarar Ragnar: „Já, mjög miklu máli, ég geng fyrir hóli og held það eigi við um alla menn. Eru ekki bara sumir feimnir við að viðurkenna það?“ Ragnar Hólm á orðið verk til sýnis á alþjóðlegum vettvangi og það er hugvekjandi staðreynd að kraftur- inn í honum eigi sér uppsprettu í vissunni um hverfulleika lífsins. „Ég gæti greinst með ólæknandi sjúkdóm á morgun. Þegar kallið kemur langar mig ekki að vita af mörgum ókláruðum myndum.“ n Ragnar Hólm á vinnustofu sinni. Málar eins og enginn sé morgundagurinn og hefur átt mikilli velgengni að fagna. fréttablaðið/auðunn  benediktboas@frettabladid.is ferðAlög Flugfélagið Play hefur ákveðið að framlengja áætlun sína til Las Palmas fram í júní. Hingað til hefur áætlun Play til Las Palmas aðeins náð yfir fjóra mánuði, eða frá desember og fram til mars, en vegna mikillar eftirspurnar hefur verið tekin ákvörðun um að lengja áætlunina um þrjá mánuði. „Þetta er það sem við viljum gera. Koma Íslendingum í sólina á ódýr- ari hátt og þeir hafa svo sannarlega gripið tækifærið,“ segir Birgir Jóns- son, forstjóri Play.  „Markaðshlutdeild farþega á leið til útlanda frá Íslandi hefur verið um 25 prósent frá janúar 2022 sam- kvæmt tölum frá Ferðamálastofu. Við finnum fyrir þessum mikla meðbyr og þess vegna erum við að framlengja áætlun okkar til Las Palmas, Íslendingum til hagsbóta,“ segir Birgir. n Play bregst við eftirspurn í sólina Margir vilja fremur sand og sjó en klaka og snjó. fréttablaðið/epa ser@frettabladid.is HeilBrigðiSMÁl Rúmlega sjötugur eiginmaður Magneu Erludóttur er kominn í rúmgott eins manns her- bergi á Hrafnistu eftir að hafa dvalið um skeið í þriggja manna herbergi á Landakoti. Magnea sagði nýverið í Fréttablaðinu að aðstæður hans þar hefðu verið ómanneskjulegar. Eiginmaðurinn glímir við heila- bilun – og þakkar Magnea það ekki síst umfjöllun blaðsins að tekið hafi verið á málum hans. „Umfjöllunin vakti svakalega mikla athygli,“ segir hún, „og ég fékk mikil og góð við- brögð við henni. Almenningur vill að hreyft sé við þessum málum. Það er greinilegt,“ segir hún. Maður hennar var um tíma á Vífilsstöðum, í góðu atlæti, en eftir að það húsnæði var selt undir einka- rekna læknisþjónustu var hann sendur „hreppaflutningum eins og hver annar sveitarómagi“ á Landa- kot, eins og Magnea orðar það. Þar blöstu þrengslin við og Magn- eu féll allur ketill í eld. „En núna á hann aftur heimili,“ segir Magnea og kveðst jafn glöð og hún er þakk- lát. „Hann er kominn í yndislegt og rúmgott herbergi á Hrafnistu með þremur gluggum, út af fyrir sig.“ n Úr þrengslum í rúmgott herbergi Magnea Erludóttir 2 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 19. jAnúAR 2023 fiMMtUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.