Fréttablaðið - 19.01.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 19. janúar 2023
Áfengislausir bjórar rjúka upp í sölu
og framleiðslan hefur aukist mikið.
elin@frettabladid.is
Mikil aukning hefur verið í sölu
á áfengislausum bjór í Noregi. Á
síðasta ári jókst salan um 12,2 pró
sent. Á síðustu fimm árum hefur
salan tvöfaldast, fór úr 490 þúsund
lítrum árið 2017 í 940 þúsund lítra
árið 2022. Þetta ber vott um lífs
stílsbreytingu fólks, sérstaklega
þeirra yngri. Svipað hefur verið
upp á teningnum hér á landi. Fleiri
og fleiri velja áfengislausan lífsstíl.
Könnun sem gerð er af UNG2023
í Noregi sýnir að 27prósent ungs
fólks velja nú frekar áfengislausa
drykki.
Tvítug norsk stúlka greinir frá
því í netmiðli VG að hún hafi
ákveðið að leggja áfengið á hilluna
og taka upp áfengislausan lífs
stíl. Hún segist hafa rekið sig á
skilningsleysi hjá félögunum og
þess vegna hefur hún verið að taka
upp fyrir TikTok þar sem hún sýnir
að vel er hægt að skemmta sér án
áfengis. Því hefur verið vel tekið.
Foreldrar hafa skrifað við færslur
hennar og þakkað fyrir innleggið.
Núll prósent vinsælir drykkir
Áfengislausir drykkir hafa orðið að
tískuvöru, bæði í Noregi og annars
staðar í heiminum, segir vörustjóri
í norsku vínbúðinni Vinmono
polet við VG. Janúar hefur reyndar
verið áfengislaus mánuður hjá
mörgum undanfarin ár eftir ára
mótaheit.
Aukning á sölu áfengislausra
drykkja er þó yfir allt árið og fram
leiðendur hafa brugðist við með
auknu úrvali. n
Áfengislaus
lífsstíll í tísku
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Elti ekki tískustrauma
Sylvía Erla Melsteð er með eigin fatastíl sem tekið er eftir og er ótrúlega hæfileikarík á
mörgum sviðum. Undanfarin ár hefur hún látið gott af sér leiða til samfélagsins auk þess
sem hún hefur gefið út tónlist, heimildarmynd og bækur.
Sylvía Erla Melsteð gaf út sína fyrstu barnabók 2021 um lesblinda hundinn Oreo og hefur fylgt henni eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
sjofn@frettabladid.is
Sylvía Erla brennur fyrir því að
finna lausn fyrir þá sem hafa
ekkert bakland og vantar aðstoð í
skólakerfinu. Þessa dagana er hún
að þróa forrit sem heitir AskStudy
sem vonandi á eftir að vera regn
hlíf sem nemendur geta gripið í til
að fá aðstoð.
Sylvía kláraði BS í viðskipta
fræði í fyrra, ásamt því að vinna í
fjölmörgum verkefnum samhliða
því. „Ég hef verið að vinna í að gera
meiri tónlist sem ég hlakka til að
gefa út.
Ég gerði ásamt Sagafilm og hópi
af frábæru fólki heimildarmynd
ina Lesblinda sem var sýnd á RÚV
2021. Í framhaldi af myndinni hef
ég haldið fyrirlestra í skólum um
lesblindu og þrautseigju. Þetta er
mjög skemmtilegt því að þetta eru
frábærir og kurteisir krakkar sem
ég hlakka til að fylgjast með þegar
þau breyta heiminum til góðs,“
segir Sylvía.
Sylvía gaf út sína fyrstu barnabók
2021 um lesblinda hundinn Oreo.
„Síðastliðið haust fórum við Oreo
í skipulagsátak með Hagkaup og
Morgunblaðinu. Átakið fólst í því
að efla lestur, gera lærdóm/heima
nám skemmtilegt, hvetja krakka til
að hreyfa sig, fara fyrr að sofa, hrósa
öðrum og sjálfum sér, og ekki síst að
hvetja þau til að minnka skjánotk
un. Markmiðið var einnig að gera
krakkana sjálfstæðari með því
að þau skipuleggi sig sjálf. Þannig
varð Skipulagsbókin mín til en þar
fá krakkar stig fyrir að fylgja skipu
lagi sínu samkvæmt ofangreindum
markmiðum. Einnig er komin