Fréttablaðið - 19.01.2023, Page 26

Fréttablaðið - 19.01.2023, Page 26
Þarna, þegar ég var bara fjórtán eða fimm- tán ára, vaknaði ein- hver óbilandi áhugi á sögu, leikritum og leiklist. Ingunn Lára Kristjánsdóttir Ég held að við séum bæði að fjalla um mismunandi leiðir til að finna nánd í verk- um okkar og einnig í heiminum. Kathy Butterly Listamennirnir Kathy Butt­ erly og Eggert Pétursson opna sameiginlega sýningu í i8 gallerí í dag. Þau vinna í ólíka miðla en hafa svipaða sýn á listina og vinnuferlið. tsh@frettabladid.is Bandaríski listamaðurinn Kathy Butterly sýnir skúlptúra ásamt mál­ verkum íslenska myndlistarmanns­ ins Eggerts Péturssonar í i8 gallerí. Í sýningartexta kemur fram að sýn þeirra beggja á listina einkennist af samtali við efni og aðferð og næmni fyrir smáatriðum. Kathy vinnur skúlptúra í keramik og er þetta í fyrsta sinn sem hún sýnir verk sín hér á landi. Hún segir sýninguna hafa komið til þegar Geneva Viralam, starfsmaður i8 í New York, sá sýningu á verkum hennar þar. „Ég var með sýningu í New York borg og Geneva sá sýninguna mína og spurði mig hvort ég hefði áhuga á því að halda sýningu á Íslandi með Eggerti. Ég sá verk hans og vissi að þarna væri tenging svo ég sagði já. Síðan gerði ég sex ný verk sérstak­ lega fyrir þessa sýningu,“ segir Kathy. Fundu tengingar Spurð um hvaða tengingar hún hafi fundið við verks Eggerts, segir Kathy: „Ég held að það sem sameini verk okkar, sem er eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á í minni vinnu og sé einnig í verkum hans, sé nánd. Ég held að við séum bæði að fjalla um mismunandi leiðir til að finna nánd í verkum okkar og einnig í heiminum. Þegar ég horfi á málverk Eggerts þá er það eins og hann sé að horfa á eitthvað mjög persónulegt og útvíkka það og stækka þannig að áhorfandinn sér það sem hann er að upplifa og horfa á. Í mínum verkum er ég að taka hugtök sem eru frekar stór, til dæmis lands­ lagið, umhverfið, plánetuna og alheiminn, smækka þau og þjappa þeim saman.“ Kathy segir að áhorfandinn þurfi því að koma mjög nálægt verkum hennar til að upplifa nándina sem er þeim eiginleg. „Þannig erum við á vissan hátt að gera það sama en á gagnstæða vegu,“ segir hún. Ert þú sammála því, Eggert? „Já, ég er það. Þetta er hárrétt.“ Íslensk og norsk flóra Eggert Pétursson er einn þekktasti listamaður Íslands en hann hefur áratugum saman fangað íslenska náttúru og f lóru í málverkum sínum. „Ég er náttúrlega alltaf að vinna með náttúruna og blómin. Það er samt einhver ákveðin saga á bak við hvert verk. Við völdum eiginlega úr nokkrum verkum þau sem pössuðu best við verk Kathy. Það var svona hluti af þessari pörun,“ segir hann. Eggert hefur sýnt margoft áður í i8 gallerí en hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem hann er paraður saman við listamann sem hann hefur ekki þekkt áður til. „Ég er með fjögur málverk og þrjú þeirra eru úr röð verka sem eru eig­ inlega skandinavísk og norsk flóra frekar en íslensk. Fyrir tíu árum síðan var ég í Noregi, konan mín var að vinna þar í um það bil eitt ár, og ég var tilneyddur til að skoða norsku blómin og finna tengingar við íslensku f lóruna. Hugmyndin að fjórða verkinu er nýrri, það eru blómabreiður undir Skaftafellsjökli, gulmaðra og bláklukka,“ segir Egg­ ert. Fiskabúr og stöplar Skúlptúrar Kathy samanstanda af tveimur formum, efra formið er mót af fjöldaframleiddu fiskabúri og hið neðra er eins konar fernings­ laga stöpull. „Ég bý til hlutana tvo, síðan brenni ég þá í brennsluofni einu sinni og byrja svo að bæta við litum. Ég geri ekki teikningar, ég vinn bara út frá innsæinu, og til þess að ég geti séð litinn þarf ég að setja formið inn í brennsluofninn og brenna það. Síðan tek ég það út og bregst við útkomunni. Þetta snýst að miklu leyti um ferlið við það að bæta við litnum, samtalið hefst um leið og lit­ urinn fer á formið og á endanum eru formin tvö sameinuð,“ segir Kathy. Ferningarnir, sem Kathy nefnir podiums (stöpull eða ræðupallur) eru órjúfanlegur hluti verka hennar og jafn mikill partur listaverksins og formin sem hvíla ofan á þeim. „Fyrst þegar ég fékk þessa hug­ mynd um að setja verkin ofan á ferninga hugsaði ég um þá meira eins og ræðupall, stað til að láta rödd sína heyrast. Síðan þróuðust þeir eiginlega yfir í jafnmikilvægan part verksins. Ég hugsa alltaf um ferning sem staðreynd. Þannig að það er mjög tilfinningalegur toppur og svo er staðreyndin á botninum.“ n Sameinast í gegnum næmni tsh@frettabladid.is Jólabókaf lóðið hefur greinilega runnið sitt skeið ef miða má við metsölulista Pennans Eymundsson fyrir dagana 11. til 17. janúar 2023, því þar er engan íslenskan rithöf­ und að finna á lista, ef frá er skilin Jóhanna Geirsdóttir, höfundur kennslubókarinnar Office 365. Bókin sem trónir efst á lista er skáldsagan Kannski í þetta sinn eftir breska höfundinn Jill Man­ sell og í öðru sæti er skáldsagan Violeta eftir chileska höfundinn Isabel Allende sem kom nýlega út í íslenskri þýðingu. Í þriðja sæti er svo sögulega skáldsagan Systraklukk­ urnar eftir Lars Mytting og í fjórða sæti er hin margumtalaða sjálfsævi­ saga Spare eftir Harry Bretaprins. Spare, eða Varaskeifa eins og tit­ illinn útleggst á íslensku, hefur sleg­ ið í gegn víða um veröld en engin önnur ævisaga í breskri útgáfusögu hefur selst jafn hratt og í jafn stóru upplagi. A f me t s ölu l i s t a Pe n n a n s Eymunds son má einnig sjá að skólar eru aftur komnir á fullt skrið eftir jólafrí því þar má finna þrjár náms­ bækur, hina áðurnefnda kennslu­ bók í Office 365 sem situr í tíunda sæti listans og svo tvær kennslu­ bækur í þýsku; Netzwerk neu A1 vinnubók og lesbók sem sitja í sjötta og sjöunda sæti. Listann má sjá í heild sinni hér að neðan. n Enginn íslenskur rithöfundur á metsölulista Ingunn Lára Kristjánsdóttir fréttamaður og leikari segir lesendum Fréttablaðsins frá listinni sem breytti lífi hennar, tveimur leikritum sem hún sá á unga aldri. „Ótrúlegt en satt þá höfðu tvö menntaskólaleikrit mikil áhrif á líf mitt. Þetta eru ekki einu sinni verk sem ég lék í. Árin 2005 og 2006 setti Fúría, leikfélag Kvennaskól- ans í Reykjavík, upp verkin Stræti eftir Jim Carwright og Í þágu þjóðarinnar eftir Timberlake Wer- tenbaker. Ég var sjálf í grunnskóla og mætti á þessi verk í Tjarnarbíói til að sjá systur mínar, Maríu og Kristínu, leika í þeim. Þetta eru tvö ádeiluverk skrifuð um það leyti sem Margaret Thatcher var forsætisráðherra Bretlands og voru bæði frumsýnd í Royal Court-leikhúsinu á sínum tíma. Þau eru virkilega áhrifa- mikil. Þarna, þegar ég var bara fjórtán eða fimmtán ára, vaknaði einhver óbilandi áhugi á sögu, leikritum og leiklist sem varð til þess að ég fór í bachelor-nám í leiklist í Rose Bruford í London og meistaranám í ritlist í Háskóla Íslands. Ég man að ég bað mömmu um að taka mynd af mér fyrir framan Royal Court-leikhúsið svo ég gæti átt hana seinna þegar ég myndi sjálf skrifa leikverk fyrir þetta stórmerkilega leikhús. Ég er enn að reyna að ná þessu takmarki í dag.“ n Sjálfsævisaga Harry Bretaprins Spare hefur heldur betur slegið í gegn víða um veröld. FréttabLaðIð/getty 1. Kannski í þetta sinn e. Jill Mansell 2. Violeta e. Isabel Allende 3. Systraklukkurnar e. Lars Mytting 4. Spare e. Prince Harry 5. Voðaskot e. Katrine Eng- berg 6. Netzwerk neu A1 vinnubók 7. Netzwerk neu A1 lesbók 8. Refsiengill e. Heine Bakkeid 9. Áður en við urðum þín kilja e. Lisa Wingate 10. Office 365 e. Jóhönnu Geirsdóttur Kathy Butterly og Eggert Pétursson sýna verk sín í fyrsta skipti saman á nýrri sýningu í i8 gallerí sem verður opnuð í dag. FréttabLaðIð/ernIr Nokkur af verkum Kathy Butterly og Eggerts Péturssonar á sýningunni í i8. Mynd/VIgFús bIrgIsson Ingunn Lára Kristjánsdóttir fyrir framan Royal Court- leikhúsið í Lundúnum árið 2015, Mynd/aðsend Listin sem breytti Lífi mínu | 22 menning FRÉTTABLAÐIÐ 19. jAnúAR 2023 FimmTUDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.