Fréttablaðið - 19.01.2023, Blaðsíða 28
Einn frægasti hátíðardagur landsins, sjálfur bóndadagurinn og
upphaf þorra er á morgun, föstudaginn 20. janúar. Það er því
ekki of seint að verða bóndanum úti um góða bóndadagsgjöf
og fór Fréttablaðið því á stúfana. Hér eru tillögur að gjöfum
sem ættu að geta glatt flesta bændur.
odduraevar@frettabladid.is
benediktboas@frettabladid.is
Láttu þjóðþekktan
tónlistarmann halda
einkatónleika í stofunni
Hversu auðvelt er að heyra
í þekktum tónlistarmanni
og fá hann til að
halda einkatón
leika fyrir bónd
ann? Kannski
ekkert svo
auðvelt, en
það myndi
allavega
gleðja!
Miða á enska boltann
Þjóðaríþrótt Íslendinga er lík
lega enski boltinn. Flestir ef
ekki allir bændur
eiga sitt lið og
hvað er betra en
að verja einni
helgi í Bretlandi?
Slam dunk
bóndadags
gjöf er miði
á einn leik
í þeim
enska.
Landsliðstreyja
Ísland er að fara að vinna HM í
handbolta. Og hversu gaman
væri þá að gefa bóndanum
eina landsliðstreyju sem hann
getur verið í þegar við lyftum
bikarnum?
PlayStation 5
Segir eitthvað eins mikið „Ég
elska þig“ og að gefa bónd
anum vinsælustu leikjatölvu
í heimi sem virðist enn vera
af skornum skammti í öllum
helstu búðum landsins? Þessi
gjöf sýnir fram á hversu langt
þú ert til í að ganga til að gera
bóndann hamingju
saman.
Föt með andliti
Hversu gaman er að láta
bóndann hlæja? Og hvað er
fyndnara en að gefa honum
flík, mögulega sokka, með
andlitinu þínu á? Ekkert. Það
er ekkert fyndnara!
Súkkulaði
Gott súkkulaði er góð bónda
dagsgjöf. Svo er líka hægt að
láta merkja súkkulaðið, sem
er nett. Svo er súkkulaði frá
bært í forleikinn og bara alls
konar.
Verkfæri fyrir handlaginn
heimilisföður
Hvort sem það eru vinnubuxur,
verkfærasett, borvél eða skipti
lyklasett þá eru verkfæri eða
önnur áhöld til heimilishaldsins
alltaf góð hugmynd.
Rakspíri
Hvað er verra en illa lyktandi
bóndi? Ekkert. Það er ekkert
verra. Þetta er svona gjöf
sem er sigur fyrir þig og sigur
fyrir bóndann.
Tesla
Annar hver maður vill eiga Tesla.
Það er bara staðreynd. Ekki
skemmir fyrir að
þeir voru að
lækka í verði.
Hvað segir
meira að þú
elskir maka
þinn en að núlla
út bensínkostnað
heimilisins?
Eitthvað dónó
Kryddaðu kynlífið með heimsókn í einhverja
kynlífsbúðina og keyptu eitthvað skemmtilegt,
hvort sem það er Þorrablow nú eða bara ný og
seiðandi nærföt.
Miði til að losna undan
skyldum heimilisins
Hversu skemmtilegt er að
geta horft á einn góðan bolta
leik eina kvöldstund án þess
að þurfa að hafa áhyggjur af
húsverkunum? Láttu drauma
bóndans rætast.
Skotveiðinámskeið
Það er ekkert fallegra en að sjá stórt dýr falla.
Það langar alla bændur inn við beinið að taka
saklaust líf dýrs. Ekki verra ef þú gefur hníf með
svo bóndinn geti fláð dýrið að verkinu loknu.
Góður matur eða
morgunmatur í rúmið
Það þarf ekki allt sem er gott
að kosta. Komdu bóndanum á
óvart með morgunmat í rúmið
eða bjóddu honum út að borða.
Nú svo gætirðu líka eldað uppá
haldsmáltíðina hans.
Ferð á tónleika með
Bruce Springsteen
Það fíla allir bændur Bruce
Springsteen. Hver
væri ekki til í
að hafa fæðst
í Bandaríkj
unum? Spring
steen lætur
bóndanum líða
þannig og
þá er
tak
markinu
náð.
Tattú
Það er fátt skemmtilegra en
gott húðflúr. Svo skemmir
ekki fyrir ef bóndinn
ákveður að setja nafnið þitt á
líkama sinn. Þá er sambandið
greypt …í húð.
24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 19. jAnúAR 2023
fiMMTUDAGUR