Fréttablaðið - 19.01.2023, Qupperneq 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Kolbeins
Marteinssonar
bakþankar |
Árið 2007 opnaði ég reikning á
Facebook. Það var strax mikið
fjör. Þannig var maður sífellt
að pota í fólk, spila leiki, læka
og kommenta. En það lang-
skemmtilegasta var að tengja
aftur við fólk sem maður hafði
þekkt og átt góð samskipti
við í fortíð. Barnslegt sakleysi
Facebook breyttist samt hratt
með hækkandi aldri. Þar sem
keypt efni fékk sífellt meira
vægi.
Núna, 15 árum frá því að ég
fyrst fór inn á Facebook, er þessi
miðill rétt eins flestir sem náð
hafa 15 árum orðinn hundleiðin-
legur. Vinir manns sem áður gátu
skrifað skemmtilegar færslur
og kommentuðu hjá manni og
settu inn heilu myndaalbúmin
frá ferðalögum halda sér nú til
hlés og gefa kannski eitt læk á
mánuði. Áhugi fólks á miðlinum
fer að mér sýnist sífellt minnk-
andi í sambandi við sífellt f leiri
kostaðar færslur.
Facebook minnir mig í dag á
sjónvarpsdagskrána sem borin
var út í öll hús fyrir 30 árum.
Það litla sem var áhugavert
þar var falið innan um enda-
lausar auglýsingar. Facebook
hefur brugðist við þessu með
því að halda að okkur efni þar
sem aðilar rífast svo að blóðið
rennur. Enda fátt skemmtilegra
en að horfa á fullorðið fólk öskra
á hvert annað.
Í dag er staðan þannig að eina
skiptið sem mér finnst gaman
inni á Facebook er þegar maður
á afmæli. Þar fær maður fullt af
kveðjum frá fólki sem flest hafði
ekki hugmynd um að maður ætti
afmæli. Enda er það þannig að
það fyrsta sem Facebook hvetur
mig til að gera á hverjum degi er
að senda afmælisbarni dagsins
kveðju.
Hvað þessi skrif varðar þá
mun ég deila þessum pistli á
Facebook þar sem hann mun fá
nokkur læk og sniðugur frændi
minn kommentar eitthvað tví-
rætt. n
Deyjandi
unglingur
TAKK!
1. sætið í
ánægjuvoginni
6 ár
í röð
Við hjá BYKO erum ákaflega stolt af því, 6. árið í röð, að eiga ánægðustu
viðskiptavinina í flokki byggingavöruverslana. Íslenska ánægjuvogin
er félag í eigu Stjórnvísi og er framkvæmd í höndum Prósent. Mæld er
ánægja viðskiptavina í hinum ýmsu geirum reglulega yfir árið. Þessi
viðurkenning segir okkur að við séum á réttri vegferð og erum við
staðráðin í því að halda áfram að gera enn betur.
Takk fyrir okkur!
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Sparaðu tíma og
gerðu einfaldari
innkaup á netto.is