Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 8
Guðný Kristjánsdóttir hefur starfað með Leikfélagi Keflavíkur í fjóra áratugi. Hún lék héra í Rauðhettu og úlfinum árið 1981, sama ár og hún fermdist. Þetta var á þeim árum sem Leikfélag Keflavíkur var með aðstöðu í Félagsbíói. Þarna smitaðist Guðný af leiklistarbakteríunni til lífstíðar. Leikfélagið var ungt þegar Guðný hóf að starfa með félaginu, rétt 20 ára. Leikfélag Keflavíkur stóð því líka á tímamótum þegar Guðný fagnaði 40 árum með félaginu. Leikfélagið er 60 ára og það sem meira er, afmælisverkið er 100. leikverkið sem Leikfélag Keflavíkur setur á svið. Það var því þreföld ástæða til að fagna. Skemmtilegt að taka þátt í þessari sögulegu sýningu Leikfélag Keflavíkur er sextíu ára og þið setjið upp metnaðarfulla sýningu, Fyrsta kossinn, sem tengist þér á mjög margan hátt, og þú tekur þátt í henni. „Þetta er skemmtilegt á 40 ára leikafmælinu mínu að fá að taka þátt í þessari sögulegu sýningu sem dóttir mín og tengdasonur semja. Hin dótt- irin er aðstoðarleikstjóri, eigimað- urinn spilar tónlistina að hluta og svo er sýningin sett upp í minningu tengdaföður míns, Rúnars Júlíus- sonar. Jú, vissulega tengist sýningin fjölskyldunni sterkum böndum.“ Þetta verkefni er búið að vera í undirbúningi lengi. „Já, krakkanir voru búin að vera með þetta í maganum í tvö ár. Þegar við lásum yfir þetta fyrst, þá fannst mér þetta ekkert svakalega merki- legt handrit en Guð minn góður, það átti eftir að breytast þegar við vorum komin með þessa frábæru leikara, leikstjórann, danshöfundinn og svo endar þessi sýning á einhverri sprengju. Þetta var bara eitthvað annað og fólk talaði um að það vildi koma aftur og aftur. Það var slegið sýningarmet núna í Frumleikhúsinu með tuttugu og fjórum troðfullum sýningum. Við hefðum klárlega geta sýnt þetta áfram. Nú er bara að vona að við eigum eina sýningu eftir, því við sóttum um að fara sem áhuga- verðasta áhugaleiksýningin í Þjóð- leikhúsið. Við krossleggjum fingur. Fyrsti kossinn á fullt erindi í Þjóð- leikhúsið. Það væri geggjað að komast þangað. Við höfum tvisvar farið áður. Með Stælta stóðhesta fyrir nokkuð mörgum árum síðan og svo Mystery Boy árið 2019. Það er frábær heiður að fara með sýningar þangað.“ Fulla kerlingin í Fyrsta kossinum „Ég byrjaði fermingarárið mitt 1981 að leika sem héri í Rauðhettu og úlfinum í Félagsbíói. Það var skemmtileg upplifun og þá má segja að áhuginn hafi kviknað fyrir alvöru. Ég var áður búin að vera í leikritum í skólanum og þurfti að vera út um allt og upp um allt. Þetta byrjaði þarna. Það var líka gaman að fá þetta hlutverk í Fyrsta kossinum. Fulla kerlingin og vön því úr öðrum leik- ritum, langelst, og það var skemmti- legt að takast á við þetta hlutverk. Þetta var ekki stórt en alveg ótrú- lega gaman. Að vera 55 ára og leika með krökkum frá sextán ára aldri og upp úr. Ég hefði getað átt þau öll, þau eru svo ung. Það var algjör heiður að geta haldið upp á 40 ára leikafmæli með þessu fólki í þessari sýningu. Ótrúlega skemmtilegt og ég er svo stolt.“ Með geggjaða sýningu í höndunum Áttuð þið von á því að þetta myndi slá svona í gegn? „Þetta kom okkur ekkert svo á óvart þegar við fórum að sjá æfing- arnar rúlla. Þá sáum við hvað við vorum með geggjaða sýningu í hönd- unum. Þar skemmir ekki leikstjórinn. Hann setti þessa sýningu þannig upp að hún er eins og hún er. Karl Ágúst Úlfsson var með frábært handrit í höndunum. Dóttir hans, Brynhildur, kom sterk inn og samdi alla dansana. Við erum með geggjaða dansara sem settu mikinn svip á sýninguna. Við erum með leikara sem spila lögin í hljómsveitinni. Þetta er magnað og ég held að það sé alls ekki algengt í svona leikfélögum að leikarar dansi, syngi og leiki á hljóðfæri. Með æfing- unni small þetta allt saman. Það var valinn maður í hverju hlutverki og leikstjórinn hafði gott auga fyrir því að velja í hlutverkin.“ Í Fyrsta kossinum er tónlistinni gert hátt undir höfði. Guðný segir að það hafi alls ekki verið auðvelt að velja lög í sýninguna, enda lögin sem tengjast Rúnari Júlíussyni fjöl- mörg. Hún segist hafa saknað ýmissa laga en lagavalið í Fyrsta kossinum small. „Og hvernig texta og tónlist var raðað saman var alveg snilldar- lega gert og þau eiga heiður skilið fyrir þetta afrek.“ Aðeins að þínum ferli á leiksviðinu. Hvað er eftirminnilegast eftir öll þessi ár? „Ég held að það sé fyrsta Kefla- víkurrevían árið 1989. Hún er hátt skrifuð hjá mér. Kannski af því að ég kynntist manninum mínum þar líka. Það kannski spilar inn í. Þarna vorum við í Félagsbíói og troðfylltum bíóið, sem tók 350 manns í sæti, sýn- ingu eftir sýningu. Leikfélagið átti svo mikinn pening að við fengum greiddar 2.000 krónur fyrir sýningar þegar það fór að líða á sýningartíma- bilið, því við vissum ekkert hvað átti að gera við alla þessa peninga. Þetta hafði aldrei gerst í sögu félagsins. Það er sýning sem stendur upp úr. Alltaf uppselt og brjáluð stemmning,“ segir Guðný. Þessar 2.000 krónur sem leikarar fengu fyrir hverja sýningu árið 1989 eru rúmlega 9.000 krónur á verðlagi dagsins í dag. „Svo fórum við í söngleikinn Gretti og hann var tímamótaverk hjá okkur. Þar komu margir inn í Leik- félag Keflavíkur sem síðan störfuðu lengi með félaginu. Það eru ekki allir sem koma og eru bara alltaf og það er skiljanlegt því þetta tekur brjálæðislegan tíma. Hvert æfinga- ferli tekur sex til átta vikur. Þú ert á hverjum degi í leikhúsinu og svo taka sýningarnar við. Þú ert ekki að fá neitt borgað fyrir þetta og þú ert í burtu frá fjölskyldunni og ekki að gera neitt annað á meðan. Fyrir mig að hafa tollað í þessu í öll þessi ár, fyrir utan allt annað sem ég hef gert, er ákveðið afrek. Ég ól ekki börnin mín ein upp en ég tók þátt í því. Það er ekki hægt að vera í svona nema að hafa góðan stuðning.“ Eiga minningar saman úr leikhúsinu Júlíus, eiginmaður þinn, hefur verið með þér í mörgum verkefnum hér og börnin ykkar hafa verið með ykkur líka? „Júlli bæði samdi og tók þátt í sýningum og við erum búin að vera í þessu saman ótrúlega mikið og það er svo skemmtilegt líka. Við eigum skemmtilegar minningar saman úr leikhúsinu. Börnin urðu bara líka að taka átt. Auðvitað höfðum við frá- bæra aðstoð frá foreldrum okkar sem aðstoðuðu við að gera okkur þetta kleift. Þegar börnin höfðu aldur til fóru þau að koma með okkur hingað á fullt erindi í Þjóðleikhúsið Fyrsti kossinn Afmælissýning Leikfélags Keflavíkur setti nýtt sýninga- og aðsóknarmet í 60 ára sögu félagsins. Guðný Kristjánsdóttir fagnar 40 ára leiklistarafmæli og heldur ótrauð áfram. Stundum á sviði, stundum bara í miðasölunni. Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Páll Ketilsson pket@vf.is Er ekki einmitt svo geggjað við þetta starf að það skiptir ekki máli hvort þú ert 55 ára og búin að vera í félaginu í 40 ár eða bara sextán ára að byrja? ... Guðný sem Fjóla tröllastelpa. 8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.