Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 11
„Kvikan er að breytast í meira menningarhús fyrir íbúa. Í gegnum tíðina hefur verið hérna Saltfisksetur Íslands og við höfum verið meira ferðamannastopp. Núna höfum við rýmt stóra sýningarsalinn þar sem saltfisksýningin var og höfum breytt honum í fjölnota viðburðasal og erum að byggja upp dagskrá fyrir íbúa þar,“ segir Sunna J. Sigurðardóttir, verkefnastjóri framtíðarþróunar Kvikunnar, í samtali við Víkurfréttir. „Við erum að vonast til að hér komi ýmsir skemmtikraftar og listamenn og skelli sér á sviðið. Við erum með stórt svið, tuttugu fermetra svið og tvö hundruð sæti, jafnvel tvö hundruð og fimmtíu, þannig að það eru ýmsir möguleikar.“ Breytingar á Kvikunni hófust fyrir um tveimur árum síðan en síðan þá hefur verið heimsfaraldur kórónu- veiru og breytingarnar gengið á mis- jöfnum hraða. „Ég myndi segja að Kvikan sé farin að stimpla sig inn í hugum bæjarbúa sem þeirra hús í dag, menningarhús okkar bæjarbúa,“ segir Sunna. Ýmsir vikulegir viðburðir Þegar útsendarar Víkurfrétta heim- sóttu Kvikuna fyrir síðustu helgi voru þar nemendur úr Grunnskóla Grindavíkur á leiklistarnámskeiði. Sunna segir blaðamönnum frá því að nokkrum sinnum hafi verið settar upp smiðjur í Kvikunni þegar starfs- dagar séu í grunnskólanum. Að þessu sinni væri leiklistarsmiðja, þar sem tveir leiðbeinendur voru með um 40 krökkum á grunnskólaaldri sem skelltu sér á svið að prófa. Er markmið að auka virkni bæj- arbúa í húsinu? „Já, algjörlega. Við erum komin með ýmsa vikulega viðburði. Við erum með kaffi fyrir eldri borgara á miðvikudögum klukkan tíu. Hér eru foreldramorgnar á föstudögum klukkan ellefu og smiðjur fyrir krakka á fimmtudögum klukkan tvö. Svo vefur þetta utan á sig og við reynum að hafa einn opinn menn- ingarviðburð í viku á miðvikudögum og vonandi bætist svo bara ennþá meira í.“ Þó Grindvíkingar séu þekktir fyrir sjósókn, þá hefur alltaf verið hérna ríkt menningar- og íþróttalíf. „Já og við finnum að fólk hefur mikinn áhuga og ekki síst núna í Covid. Fólk vill gera eitthvað skemmtilegt saman hér í Grindavík en ekkert endilega fara eitthvað annað til að sækja menningu. Fólk vill hittast í bænum. Við erum komin með þennan fína sal og nú vantar okkur bara leiksýningar og skemmtiatriði eða í raun hvað sem er. Við erum opin fyrir öllu ef fólk hefur hugmyndir fyrir því sem má skella upp hérna, þá bara endi- lega heyra í okkur.“ Meiri tækifæri að loknum heimsfaraldri Og það eru tækifæri framundan, ef heimsfaraldri er að ljúka. „Heldur betur og vonandi getum við haldið áfram með barnadag- skrá og dagskrá fyrir eldri borgara og almenna dagskrá fyrir íbúana í bænum.“ Saltfisksetur Íslands hefur verið flutt upp á aðra hæð í Kvikunni og þar fer nokkuð vel um safnið og Sunna segist mjög ánægð með hvernig sýningin kemur út. Sýning- arhönnuðurinn hafi verið fenginn að borðinu þegar sýningin var flutt um hæð. Rýmið er minna en sýningin nýtur sín mjög vel. Annar stór viðburður mun einnig fá sitt rými í Kvikunni. Eldgosið í Fagradalsfjalli, sem hófst 19. mars í fyrra, mun fá sína gestastofu í húsinu í samstarfi við Reykjanes jarðvang og það verður að sögn Sunnu á allra næstu mánuðum. „Í Kvikunni verður áfram hægt að sækja upplýsingar fyrir ferðamenn og koma á safn þó svo fókusinn í húsinu hafi verið færður heim til að sinna íbúum bæjarins betur.“ Þá er verið að vinna að því að setja upp Guðbergsstofu aftur í húsinu í breyttri mynd og hún verður meira áberandi þegar gengið er inn í húsið. Kvikan er opin alla daga nema sunnudaga frá klukkan ellefu ár- degis til fimm síðdegis og aðgangur að Saltfisksetrinu er ókeypis og því tilvalið að gera sér ferð með fjöl- skylduna til Grindavíkur. Saltfisk- setrið er sýning sem sýnir mikil- vægan hlekk í sögu þjóðarinnar og þá ekki síst Grindavíkur, sem hefur í gegnum árin verið stór framleiðandi á saltfiski á Íslandi, þó svo breytingar séu að verða í vinnslu á fiski nú hin síðari ár. Menningarhús fyrir Grindvíkinga í Kvikunni Páll Ketilsson pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Sunna J. Sigurðardóttir. Sýning Saltfiskseturs Íslands er á 2. hæð Kvikunnar. Heiðabúar í samstarfi við Kölku og Græna skáta hafa komið upp flösku og dósagámum við allar grenndar- stöðvar Kölku á Suðurnesjum. Sam- starf þetta nær til þess að Grænir skátar koma með sína flösku og dósagáma þar sem fólk getur skilað af sér skilagjaldskyldum um- búðum og um leið styrkt skátastarf Heiðabúa. Heiðabúar fá stóran hluta af skila- gjaldinu en Grænir skátar sjá um að fylgjast með gámunum og flokka og telja umbúðirnar. Grænir skátar reka rúmlega 35 manna vinnustað þar sem allir starfsmenn þess eru með skerta starfsgetu. Grænir skátar leggja mikinn metnað í að stuðla að atvinnumöguleikum fólks með skerta starfsgetu, eins rennur allur hagnaður félagsins beint í æskulýðs- starf skáta. Flösku- og dósagámarnir eru vandaðir þýskir gámar þar sem í hverjum gám eru skynjarar til að auðvelda eftirlit með þeim. „Þannig getum við fylgst vel með öllum gám- unum, hvað kemur í þá og hvenær þarf að losa. Það er mikilvægt að fólk geti notað þá þegar það vill losa sig við flöskur og dósir og þessi tækni hjálpar okkur mikið við það eftirlit,“ segir Torfi Jóhannsson, verkefna- stjóri Grænna skátar. Grænir skátar hafa verið með svona grenndargámaþjónustu í Reykjavík í yfir tuttugu ár og síðustu fjögur ára fyrir austan fjall líka, frá Selfossi og austur að Reykholti. Heiðabúar er eitt elsta skátafélag landsins en það var stofnað árið 1937 og hefur verið starfrækt allar götur síðan. Í dag heldur skátafélagið úti æskulýðstarfi fyrir ungmenni á Suðurnesjum á aldrinum sjö til 25 ára. Einnig hefur verið starfrækt kofabyggð undanfarin ár. Frá leiklistarsmiðju í Kvikunni síðasta föstudag. Flösku og dósagámar við allar grenndarstöðvar Kölku Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennisHÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Orlofshús VSFK Sumar 2022 Opnað hefur fyrir UMSÓKN-SUMAR 2022 inn á orlofssíðu VSFK vsfk.is (grænn takki merktur Orlofsvefur) eða orlof.is/vsfk Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út sumarið 2022: 3 hús í Svignaskarði (veiðileyfi í neðra svæði Norðurá í boði) 1 hús í Húsafelli 64 (hundahald leyft) 2 hús í Ölfusborgum 4 hús við Syðri Brú (Grímsnesi) (hundahald leyft í húsi nr.10) 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri Útleigutímabil er frá föstudeginum 20.maí til og með föstudagsins 19. ágúst 2022. Félagsmenn fara inn á www.orlof.is/vsfk og skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum, fylla skal út Sumar Umsókn 2022 þar með allt að 4 valmöguleikum. Einnig er hægt að fara inn á vsfk.is – Orlofsvefur (grænn takki) Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 þriðjudagsins 29. mars 2022. Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi. Orlofsstjórn VSFK vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.