Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 16
Kalt stríð
Þær ömurlegu aðstæður og veru-
leiki sem íbúar í Úkraínu búa við á
þessari stundu og vöknuðu upp við
fyrir rúmlega viku síðan hefur ekki
farið fram hjá neinu okkar. Veruleiki
sem fæst okkar þekkja sem betur fer.
Brostið er á skelfilegt stríð í Evrópu
þar sem öflugt hernaðarveldi ræðst á
friðsama nágranna sína. Í aðstæðum
sem þessum skiptir miklu máli að
fólk á flótta fái öryggi og skjól, þessi
hópur samanstendur mestmegnis
af konum og börnum. Fleiri Evrópu-
menn hafa ekki verið á flótta frá því
árið 1945 og ástandið því mjög alvar-
legt. Við Íslendingar ætlum að axla
okkar ábyrgð og nú þegar sér maður
mikinn samhug og velvilja fólks út
um allt samfélagið. Stjórnvöld hafa
verið að auka fjárhagslegan stuðning
til mannúðarmála í Úkraínu en það
er einnig skylda okkar að taka vel
á móti þessu fólki sem er að flýja
stríðið og sækir um dvöl í okkar
landi.
Frá því kalda stríðinu lauk með
falli Sovétríkjanna þá höfum við
á Íslandi búið við mikið öryggi og
í raun lítið spáð í því, öryggi okkar
hefur á þessum tíma þótt sjálfsagt. Í
síðustu viku breyttist það snögglega.
Lítið fer nú fyrir þeim aðilum sem
kyrjuðu „Ísland úr NATO, herinn
burt“ heldur hafa atburðir síðustu
daga sýnt okkur mikilvægi þess að
vera í NATO. Úkraína er t.d. ekki í
NATO enda fær landið ekki þann
stuðning sem það þyrfti.
Við Suðurnesjamenn þekkjum
það vel að hafa fjölmennt varnarlið
hérna á okkar slóðum og gekk sú
samvera alla tíð nokkuð vel. Vera
varnarliðsins hafði yfir höfuð mjög
góð áhrif á okkar samfélag og það
var mikill missir þegar herinn hvarf
á brott árið 2006. Ekki bara efna-
hagslega heldur var vera varnar-
liðsins bara stór partur af fjölbreyttri
tilveru okkar enda Reykjanesbær
mikið fjölmenningarsamfélag. Núna í
ljósi aðstæðna í heiminum er nokkuð
ljóst að umsvif NATO á Keflavíkur-
flugvelli eiga eftir að aukast mikið á
næstu vikum/mánuðum. Fjöldi fólks
á vegum bandalagsins eiga eftir að
koma hérna í skamman eða lengri
tíma og nýta sér þá um leið ýmsa
þjónustu hér í nærumhverfinu. Við
eigum einnig að taka vel á móti öllu
þessu fólki sem kemur víða að því
ef til átaka kæmi eru það þessi lönd
sem senda syni sína og dætur í stríð
til þess að verja okkar frelsi og til-
veru. NATO er varnarbandalag og
við ættum að vera þakklát fyrir veru
okkar í því ágæta bandalagi.
Mundi
Kemur kaninn aftur með
Wendy's eða verða bollurnar
úr Grindavík að duga?
LO
KAO
RÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
FIMMTUDAG KL. 19:30 HRINGBRAUT OG VF.IS
Víking sjávarfang og bollurnar
Kvikan menningarhús í Grindavík
og tónlist í Suðurnesjamagasíni
Grindvískur bragur
Már og Ísold
í úrslit Söngva-
keppninnar
STARF GÆÐA- OG VERKEFNASTJÓRA
Suðurnesjabær óskar eftir að ráða öflugan liðsmann til að sinna
starfi gæða- og verkefnastjóra. Um er að ræða nýtt og lifandi
starf sem snertir flesta þætti í starfsemi Suðurnesjabæjar.
Gæða- og verkefnastjóri heyrir undir stjórnsýslusvið.
Megináhersla starfsins er verkefnastjórnun og þátttaka
í þverfaglegum verkefnum, rekstur gæðakerfis og
eftirfylgni með ábendingum og umbótaferlum.
Starfssvið:
■ Verkefnastjórnun.
■ Rekstur gæðakerfis.
■ Rekstur ábendingakerfis og eftirfylgni ábendinga.
■ Ferlagreining- og endurskoðun
ferla þvert á svið og deildir.
■ Innri úttektir, þ.á.m. vegna jafnlaunakerfis.
Menntun, reynsla og hæfni:
■ Gerð er krafa um háskólapróf.
■ Viðbótarmenntun, s.s. á sviði verkefna-
stjórnunar eða gæðastjórnunar, er kostur.
■ Þekking og reynsla á gæða- og verkefna-
stjórnun er skilyrði.
■ Þekking og reynsla á stafrænum kerfum.
■ Þekking og reynsla af opinberri
stjórnsýslu er kostur.
■ Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
■ Nákvæmni, samviskusemi og skipulagshæfileikar.
■ Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og
lausnamiðuð hugsun.
Umsóknir, merktar „Gæða- og verkefnastjóri“, skal senda á netfangið
afgreidsla@sudurnesjabaer.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bergný Jóna Sævarsdóttir, sviðsstjóri
stjórnsýslusviðs, bergny@sudurnesjabaer.is eða í síma 425 3000.
STARF AÐSTOÐARMANNS BYGGINGAFULLTRÚA
Suðurnesjabær auglýsir laust til umsóknar nýtt starf aðstoðar-
manns byggingarfulltrúa á skipulags- og umhverfissviði.
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi
sveitarfélagi. Leitað er eftir öflugum og drífandi
einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið:
■ Yfirferð hönnunargagna.
■ Úttektir og eftirlit með mannvirkjum
og framkvæmdum.
■ Þátttaka í innleiðingu rafrænnar
stjórnsýslu byggingarmála.
■ Umsjón með viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins.
■ Samskipti við málsaðila, íbúa og stofnanir.
■ Önnur tilfallandi verkefni á skipulags-
og umhverfissviði.
Menntun, reynsla og hæfni:
■ Iðn-eða tæknimenntun sem nýtist í starfi.
Nám í tækni- eða byggingarfræði er kostur.
■ Þekking og reynsla af byggingarmálum er skilyrði.
■ Góð tölvufærni er áskilin.
■ Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
■ Kunnátta í skjalavistunar- og landupplýsinga-
kerfum er kostur
■ Góð skipulags- og samskiptafærni.
■ Góð færni í íslensku, bæði í ræðu og riti.
■ Dugnaður, vinnusemi og sveigjanleiki.
Umsóknir, merktar „Aðstoðarmaður byggingafulltrúa“, skal senda
á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Ben Einarsson, sviðsstjóri skipulags-
og umhverfissviðs, jonben@sudurnesjabaer.is eða í síma 425 3000.
SUÐURNESJABÆR AUGLÝSIR LAUS TIL UMSÓKNAR
TVÖ NÝ OG ÁHUGAVERÐ STÖRF INNAN SVEITARFÉLAGSINS
Umsóknarfrestur um
bæði störfin er til og
með 28. mars 2022.
Launakjör eru skv.
starfsmati og kjara-
samningi Sambands
íslenskra sveitar-
félaga og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknum um
bæði störfin skal
fylgja starfsferilskrá
og kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar
og hæfni viðkomandi
í starfið.
Áhugasamir ein-
staklingar eru hvattir
til að sækja um.