Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 6
FJÖR Á MIÐUNUM ÚTI FYRIR GARÐSKAGAVITA Spennandi mánuður framundan, marsmánuðurinn hefur iðulega verið einn af stærstu aflamánuðum á hverju ári og líka það sem gerist í mars er að ansi margir handfærabátar fara af stað, því undanfarin ár hefur hand- færaveiði verið mjög góð og þá aðallega við Garðskagavita og áleiðis að Stafnesi. Reyndar er búið að vera ansi mikið fjör á miðunum frá Reykjanesvita og út fyrir Garðskagavita og áleiðis inn á Faxaflóa. Mjög margir bátar hafa verið þar á veiðum, t.d. dragnótabát- arnir Siggi Bjarna GK, Benni Sæm GK, Sigurfari GK, Maggý VE og Aðalbjörg RE sem allir hafa landað í Sandgerði. Hásteinn ÁR hefur verið þar líka en landað í Þorlákshöfn. Mjög margir línubátar eru búnir að vera á veiðum, t.d. Daðey GK, Addi Afi GK, Margrét GK, Gísli Súrsson GK, Auður Vésteins GK, Kristján HF, Sandfell SU, Hafrafell SU, Geirfugl GK og Óli á Stað GK og allir hafa landað í Sandgerði. Stóru línubátarnir hafa einnig verið þarna, t.d Hrafn GK, Valdimar GK og Fjölnir GK en þeir hafa landað í Grindavík. Djúpt úti hefur svo Þórsnes SH verið á netaveiðum en hann veiðir í sig eins og sagt er og kemur með aflann til Stykkishólms eftir þrjá til fimm daga á veiðum og hefur mest komið með um 100 tonn í land í einni löndun. Síðan hafa ansi margir togarar verið þarna fyrir utan, t.d. Pálína Þórunn GK, Sturla GK, Sóley Sigur- jóns GK, Sigurborg SH, Hringur SH, Runólfur SH, Tindur ÍS, Jón á Hofi ÁR og Áskell EA. Þrátt fyrir allan þennan fjölda þá hefur veiðin verið góð og línu- og netabátarnir geta reyndar verið í friði frá togbátunum í línu sem er tekin út frá Sandgerði, norðvestur út frá Sandgerði og þaðan bein lína yfir Faxaflóann yfir að Snæfellsnesinu. Þegar þessi pistill er skrifaður eru ekki margar aflatölur komnar inn fyrir bátana en þó eitthvað og skal eitthvað verða nefnt. T.d. var Mar- grét GK með 11,5 tonn í einni löndun, Hafrafell SU með 21 tonn í tveimur, Óli á Stað GK 24 tonn í þremur og þar af 13,4 tonn í einni, Sandfell SU 35 tonn í þremur, Kristján HF 21 tonn í tveimur, Daðey GK 6,8 tonn í einni, Geirfugl GK 16 tonn í tveimur og allir hafa landað í Sandgerði. Í Grindavík er Dúddi Gísla GK 7,8 tonn í einni löndun í Grindavík. Þar er líka Vésteinn GK en aflatölur voru ekki komnar þegar þessi pistill var skrifaður. Netabáturinn Grímsnes GK er kominn í Njarðvík eftir að hafa verið á ufsaveiðum og er kominn á þorsk- veiðar í Faxaflóa, kominn með 28 tonn í fjórum róðrum, Maron GK 9,7 tonn í þremur og Halldór Afi GK 4,4 tonn í þremur, allir landa í Keflavík og Njarðvík. Enginn netabátur er að landa í Grindavík sem er ansi sérstakt en þar er reyndar Hraunsvík GK sem hefur reyndar ekkert landað síðan snemma í janúar á þessu ári. Erling KE hefur verið að landa í Sandgerði. Reyndar þá fækkar sífellt í flota Suðurnesja og síðan snemma í janúar hefur togarinn Berglín GK legið í Njarðvíkurhöfn. Búið er að taka öll veiðarfæri og toghlera úr togar- anum og hefur Nesfiskur tekið á þá ákvörðun um að hætta útgerð hans. Mun hann vera settur á söluskrá. Berglín GK á sér mjög langa sögu á Suðurnesjum. Hans fyrsta nafn var Jöfur KE og var hann þá sérsmíðaður til rækjuveiða og var t.d. fyrsta ný- smíði rækjutogara á Íslandi sem var með pillunarvél um borð og frysti heila og pillaða rækju. Reyndar var þessi búnaður síðan tekinn úr togar- anum og hann notaður sem rækju- frystitogari og veiddi líka rækju í ís. Nesfiskur kaupir togarann árið 1998 og hefur því Berglín GK verið í þeirra eigu í 24 ár og er togarinn í dag sá sem er með lengstu útgerðar- söguna hjá Nesfiski – en því er sem sagt lokið. Jón Steinar Sæmundsson Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Thelma Hrund Hermannsdóttir. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Við Seltjörn stendur gamalt, steinsteypt hús sem byggt var 1941 af útgerðamönnum. Húsið var notað sem íshús, ísinn sem tekinn var úr Seltjörn var notaður til kælingar á fiski í farskipum, skipum sem sigldu með fisk erlendis á stríðsárunum. Seltjörn er nokkuð stór tjörn í sigdæld sunnan við Kvíguvogastapa ekki langt frá Stapanum, vegamótum Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar. Segja má að Seltjörn sé falin náttúruperla þó svo að hún liggi þarna fyrir allra augum sem leið eiga um Grindavíkurveg. Búið er að leggja göngustíg umhverfis tjörnina svo gönguþyrstir geti svalað þorsta sínum. Rétt norðan við tjörnina er Sólbrekkuskógur sem er lítill, skjólsæll í fallegum brekkum með góðum göngu- stígum. Þar má einnig finna rjóður með bekkjum, borðum og einnig grill. við Seltjörn AUGNABLIK MEÐ JÓNI STEINARI Árshátíð Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður haldin á Réttinum laugardaginn 19. mars. Borðhald hefst kl. 19.00. Hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar leikur fyrir dansi. Skemmtiatriði og happdrætti. Miðasala verður á Nesvöllum föstudaginn 11. mars kl. 13.00–15.00 Miðaverð er 6.500 kr. Skemmtinefndin Berglín GK 300. aFlaFrÉttir á suðurNEsJuM 6 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Íshúsið

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.