Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ. ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR A S TA@A L LT.I S | 560-5507 UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR U N N U R@A L LT.I S | 560-5506 SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520 JÓHANN INGI KJÆRNESTED J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508 DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510 ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509 PÁLL ÞOR BJÖRNSSON PA L L@A L LT.I S | 560-5501 Gildir til 18. apríl Olíukóngurinn hættir að dæla eftir hálfa öld SÍÐUR 11–13 Gleðilega páskahátíð! Helguvíkurbruninn er stærsta verkefni í 109 ára sögu slökkvi- liðs Brunavarna Suðurnesja. Eldur kom upp í flokkunarstöð Íslenska gámafélagsins í Helguvík skömmu fyrir hádegi á laugardag og slökkvi- starf hafði staðið á þriðja sólar- hring þegar Víkurfréttir náðu tali af Jóni Guðlaugssyni, slökkviliðs- stjóra Brunavarna Suðurnesja, á mánudag. Þá var ennþá verið að dæla vatni á glæður í timburhaug á athafnasvæðinu við Berghóla- braut 5. Tilkynnt var um eldsvoðann til Neyðarlínunnar kl. 11:24 á laugar- dagsmorgun. Þegar slökkviliðsstjóri kom á vettvang brunans örfáum mínútum eftir að útkallið barst var ljóst að húsnæði fyrirtækisins var alelda. Þá þegar var tekin ákvörðun um að kalla út allt aðal- og varalið slökkviliðsins sem telur þrjátíu manns. Fjallað er um brunann og rætt við Jón Guðlaugsson, slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja, á síðu 10 í Víkurfréttum í dag. Helguvíkurbruninn stærsta verkefni slökkviliðs BS Á níunda hundrað barna tóku þátt í Nettó-mótinu í körfuknattleik sem fram fór í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Fjallað er um mótið á íþróttasíðum. VF-mynd: JPK Sjö listar í Reykjanesbæ Sjö framboðslistar bárust fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykja- nesbæ í vor. Öll framboðin voru úrskurðuð gild af yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar. B-listi Framsókn- arflokks, D-listi Sjálfstæðisflokks, M-listi Miðflokks, P-listi Pírata og óháðra, S-listi Samfylkingar og óháðra, U-listi Umbótar og Y-listi Beinnar leiðar. Þrjú framboð í Vogum Þrír framboðslistar verða í boði fyrir kjósendur í Sveitarfélaginu Vogum fyrir sveitarstjórnarkosn- ingarnar 14. maí nk. Það eru D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi Framboðsfélags E-listans og L-listi Lista fólksins. Fjórir listar í Suðurnesjabæ Fjórir framboðslistar verða í kjöri við sveitarstjórnarkosningar í Suð- urnesjabæ 14. maí næstkomandi. Listarnir eru B-listi Framsóknar- flokks, D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, O-listi Bæjarlistinnn og S-listi Samfylkingin og óháðir. Fimm framboð í Grindavík Alls verða fimm framboðslistar í kjöri við sveitarstjórnarkosningar í Grindavík 14. maí næstkomandi. Framboðin fimm, sem skiluðu inn listum fyrir lok framboðsfrests sl. föstudag, og voru öll metin gild af kjörstjórn. Þau eru Framsóknar- flokkurinn (B), Sjálfstæðisflokk- urinn (D), Miðflokkurinn (M), Samfylkingin og óháðir (S) og Rödd unga fólksins (U). Miðvikudagur 13. apríl 2022 // 15. tbl. // 43. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.