Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 24
Mundi
Þúsund manns í
Bingó!
Lífið er sem betur fer að komast í
réttan farveg á nýjan leik eftir heims-
faraldur og ljóst að þrá fólks í „eðli-
legt“ líf er mjög mikil. Í pistli mínum
fyrr í vetur talaði ég um að hliðin
væru að opnast þegar heilbrigðis-
ráðherra gaf það út að öllum tak-
mörkunum yrði aflétt í lok febrúar.
Greinilegt að löngun fólks í eðlilegt líf
var nokkuð meiri en mann grunaði.
Mannfagnaðir eru nú haldnir á
hverju strái, eru afar vel sóttir af fólki
úr öllum aldurshópum og gleðin skín
úr hverju andliti. Enda skal engan
undra því við eigum sennilega aldrei
eftir að taka þessum mannfögnuðum
sem sjálfsögðum hlut á nýjan leik
eftir þær raunir sem hafa dunið á
okkur síðustu tvö árin. Ef einhver
hefði t.d. sagt mér fyrir einhverjum
árum síðan að yfir 1.000 manns
myndu sækja BINGÓ-skemmtanir
hjá tveimur íþróttadeildum hér í
bæ þá hefði ég hlegið dátt að við-
komandi – en sú varð raunin núna
í lok mars og í byrjun apríl þegar
körfuknattleiksdeildir Keflavíkur
og Njarðvíkur stóðu fyrir fullorðins
Bingóviðburðum. Afar vel heppnað
hjá deildunum og fólk á öllum aldri
fjölmennti og skemmti sér vel. Eins
og ein „heldri“ kona orðaði það svo
vel við mig þá voru vinningarnir
aukaatriði, þótt þeir væru glæsilegir,
aðalmálið var að komast út og hitta
fólk, dansa og hafa gaman! Svona
hlutir hafa eðlilega verið af skornum
skammti síðustu tvö ár með öllum
þeim takmörkunum sem hafa verið
í gildi en núna erum við öll eins og
beljur á vorin að fagna langþráðu
frelsinu. Persónulega hef ég saknað
mannfagnaða gríðarlega enda haft
það sem aukastarf síðustu tuttugu
árin að taka að mér veislustjórn eða
ræðuhöld á alls kyns viðburðum.
Þetta er bara svo ótrúlega gaman
og er alveg ómissandi þáttur mann-
lífsins að fólk hittist og skemmti sér
saman. Enda hefur maður séð það
augljóslega síðustu vikur að fólk
hefur saknað mannfagnaða og við-
burða enda stemmningin heldur
meiri núna en í venjulegu árferði.
Mér þótti það svo gaman um daginn
þegar maður hringdi í mig utan af
landi fyrir nokkrum vikum síðan en
sá hafði bókaði mig sem veislustjóra
í brúðkaup sitt snemma árs 2020 en
því var frestað. Núna fékk ég sím-
talið og brúðkaup fer fram í ágúst
2022, reyndar ekki sama konan
sem hann ætlar að giftast en loksins
komið að þessu! Þarna verður pott-
þétt stuð!
LO
KAO
RÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
A Ð K V Ö L D I S K Í R D A G S Á H R I N G B R A U T O G V F . I S
Þeir félagar Grétar Magnússon, gullaldarliðsknattspyrnumaður úr Keflavík, og
Helgi Rafnsson, körfuboltamaður úr Njarðvík, lærðu báðir rafvirkjun og þegar litið
er til tuttugu ára aldursmunar á þeim er óhætt að segja að það hafi verið frekar
óvænt að leiðir þeirra lágu saman en fljótlega eftir það stofnuðu þeir rafverktaka-
fyrirtækið Rafholt. Keppnisskap og reynsla úr íþróttum hefur hjálpað þeim í rekstri
og uppbyggingu Rafholts sem nú er orðið stærsta fyrirtæki á sínu sviði hér á landi.
Grétar og Helgi eru eru gestir okkar í þættinum Suður með sjó
sem sýndur verður á Hringbraut og vf.is að kvöldi skírdags.
Þáttaröðin Suður með sjó heldur svo áfram í sumar
með fleiri áhugaverðum gestum.
VIÐ EIGUM
2 ÁRA AFMÆLI
Í APRÍL
3 RÉTTA MATSEÐILL
á aðeins 5.900 kr. á mann með fordrykk frá og með 14. apríl
matseðillinn mun breytast á tveggja vikna fresti
bókaðu borð á www.TheBridge.is
@thebridge.courtyardkef
@courtyardkef
ALLIR
VELKOMNIR
Nýtt nafn á Helguvík:
Vatnsleysa!