Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
á timarit.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson,
s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Thelma Hrund Hermannsdóttir. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Fulltrúar B- og J-lista í bæjarstjórn
Suðurnesjabæjar vilja fækka bæjar-
fulltrúum á næsta kjörtímabili úr
níu í sjö. Kostnaður við hvern bæj-
arfulltrúa er um fjórar milljónir á
ári og með fækkun um tvo sparast
um 32 milljónir á kjörtímabilinu.
Ákveðið var við sameiningu Garðs
og Sandgerðis í Suðurnesjabæ að
fjölga bæjarfulltrúum í níu til að
fá sem flesta að borðinu við þau
verkefni sem fylgdi sameiningunni.
Bæjarfulltrúarnir sem lögðu fram
tillöguna segja sjö bæjarfulltrúa
ráða við verkefnið á komandi kjör-
tímabili.
Bókun frá B- og J-lista:
„Samkvæmt 11. gr. sveitarstjórnar-
laga nr. 138/2011 skal fjöldi aðal-
manna í sveitarstjórn þar sem íbúar
eru 2.000-9.999 vera 7-11. Íbúar
Suðurnesjabæjar eru um 3800 og
önnur sveitarfélög á landinu með
svipaðan fjölda íbúa hafa flest 7 aðal-
menn í sveitarstjórn, þeim fjölgar í 9
þegar íbúafjöldi nær 5000. Því telja
fulltrúar B- og J-lista mikilvægt að
endurskoða fjölda bæjarfulltrúa og
fækka þeim úr 9 í 7.
Ástæða fjölgunar bæjarfulltrúa
í byrjun síðasta kjörtímabils var
að fá sem flesta að borðinu til að
vinna að sameiningarferli sveitar-
félaganna Sandgerðis og Garðs. Nú
hefur sú vinna staðið yfir í fjögur ár
og teljum við að verkefnum sveitar-
félagsins geti vel verið sinnt af 7
bæjarfulltrúum eins og hjá öðrum
sveitarfélögum af svipaðri stærð.
Með þessu er hægt að hagræða í
launakostnaði sveitarfélagsins og
gera störf sveitarstjórnar skilvirkari.
Kostnaður sveitarfélagsins fyrir
hvern bæjarfulltrúa er í kringum
4.000.000 á ári, sem gerir í kringum
32.000.000 fyrir kjörtímabilið.
Þrátt fyrir að ekki er hægt að
verða við þessu fyrir sveitarstjórnar-
kosningar núna í maí 2022 viljum
við fulltrúar B- og J-lista vekja at-
hygli á þessu og með því hvetja
nýja bæjarfulltrúa til þess að fylgja
málinu eftir. Þá hvetjum við nýja
bæjarfulltrúa, samhliða því að fækka
aðalmönnum í sveitarstjórn, til þess
að endurskoða skipan nefnda og
ráða með það að markmiði að gera
nefndarstörf sveitarfélagsins skil-
virkari og auka aðkomu einstakra
nefndarmanna að stefnumótun
sveitarfélagsins í veigamiklum
málum sem snerta alla íbúa.“
Allir bæjarfulltrúar á fundinum,
Daði Bergþórsson, Fríða Stefáns-
dóttir, Katrín Pétursdóttir, Haraldur
Helgason, Laufey Erlendsdóttir,
Pálmi Steinar Guðmundsson, Einar
Jón Pálsson, Magnús Sigfús Magn-
ússon og Hólmfríður Skarphéðins-
dóttir, tóku til máls um tillöguna en
afgreiðsla hennar var að hún var
lögð fram.
– og spara 32 milljónir króna á kjörtímabilinu
Vilja fækka bæjarfulltrúum
úr níu í sjö í Suðurnesjabæ
Bláa lónið býðst til að styðja sam-
félagið á Reykjanesi með því að
taka að sér umsjón með Seltjörn
og umhverfi hennar þannig að hún
nýtist vel íbúum og gestum þeirra.
Erindi um málið og samningsdrög
voru lögð fyrir umhverfis- og skipu-
lagssvið Reykjanesbæjar.
Umhverfis- og skipulagsráð tekur
vel í hugmyndina sem gengur út
á glæða náttúruperluna Seltjörn
auknu lífi m.a. með því sleppa fiski í
vatnið og bjóða almenningi að veiða í
vatninu. Umhverfis- og skipulagsráð
samþykkir framlögð samningsdrög
fyrir sitt leyti.
Um tímabundinn samning til 5
ára yrði að ræða, uppsegjanlegan
frá beggja hendi og öll uppbygging
á svæðinu skal samrýmast gildandi
skipulagi. Aðgengi almennings að
svæðinu verði tryggt sem og gott
samstarf við Skógræktarfélag Suð-
urnesja og Módelflugfélag Reykja-
nesbæjar sem er með starfsemi á
svæðinu. Umhverfissvið Reykja-
nesbæjar yrði eftirlitsaðili með
samningnum og öll uppbygging/
breytingar á svæðinu yrðu bornar
undir það.
Aukið líf við Seltjörn og í Sól-
brekkuskógi kallar síðan á aukinn
kraft í hjóla- og göngustígateng-
ingu bæði við Reykjanesbæ og við
Grindavík sem hefur verið í undir-
búningi.
Erindi var vísað til bæjarráðs til
afgreiðslu.
Bláa lónið vill glæða náttúru-
perluna Seltjörn auknu lífi
Horft yfir Seltjörn að vetrarlagi. VF-mynd: Hilmar Bragi
Enginn slasaðist lífshættulega í
hörðum árekstri bifreiða á Grinda-
víkurvegi í síðustu viku. Lögreglan
á Suðurnesjum segir ekki hægt að
gefa upplýsingar að svo stöddu um
aðdraganda slyssins en rannsókn
er enn í fullum gangi og eftir á að
taka skýrslu af ökumanni sem lenti
í slysinu.
Sá sem slasaðist mest í árekstr-
inum átti að losna af sjúkrahúsi í
þessari viku.
Frá slysstað á Grindavíkurvegi í
síðustu viku. VF-mynd: Sigurbjörn Daði
Enginn í lífshættu
Fjöldi lögreglubíla frá lögreglunni á Suðurnesjum veittu ökumanni í ofsa-
akstri eftirför um götur Reykjanesbæjar aðfaranótt síðasta föstudags.
Eftirförin hófst við Hafnargötu í Keflavík og endaði í Innri Njarðvík en
eftirförin fór m.a. í gegnum Ásbrú.
Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum,
staðfesti að flestar lögreglubifreiðar embættisins hafi tekið þátt. Sem betur
fer varð ekkert slys en ökumaður var handtekinn og yfirheyrður. Hann var
svo látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Fjöldi lögreglubíla veittu
eftirför í Reykjanesbæ
Kostnaður Reykjanesbæjar við
hvatagreiðslur var 73,6 milljónir
króna á síðasta ári. Alls var nýting
á greiðslunum 56,7% en greiddar
voru 40.000 krónur með hverju
barni.
Hafþór Birgisson íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi fór yfir þróun hvata-
greiðslna 2016–2021 á síðasta fundi
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
nesbæjar en hvatagreiðslur árið
2016 voru 15.000 kr. á hvert barn og
kostuðu sveitarfélagið 17.580.000
kr. Nýtingin þá var 48%.
Aukin ásókn í
hvatagreiðslur
2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM