Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 11
hættir að dæla eftir hálfa öld Olíukóngurinn Steinar Sigtryggson, umboðsmaður Olís í fimmtíu ár, hefur lifað tímana tvenna. „Ætli það sé ekki að hafa kynnst mikið af fólki og auðvitað líka margar ánægjustundir með starfs- fólki og viðskiptavinum í þessa hálfa öld,“ segir Steinar Sigtryggson, umboðsmaður Olís þegar hann er spurður um hvað standi upp úr eftir að hafa verið í fimmtíu ár í framlínu eldsneytissölu og tengdra vara á Suðurnesjum. Steinar hefur lengi verið kallaður olíukóngurinn af vinum sínum enda verið í kringum olíu og bensín í hálfa öld. Eitthvað sem nær allir hafa þurft og nota þegar ekið er af stað í bílnum eða hvers kyns ökutækjum eða vinnuvélum. Þegar hann er spurður út í þróunina í rafbílavæð- ingu segist hann nú ekki hafa miklar áhyggjur af því. „Á löngum tíma í rekstri hefur margt komið upp, m.a. ýmislegt sem hefur haft mjög mikil áhrif á tekjur okkar. Það hefur alltaf eitthvað komið í staðinn og þannig verður það áfram,“ segir Steinar og rifjar upp þegar hrun varð í útgerð og þegar hitaveitan leysti húsakyndingu með olíu af hólmi. Olíukóngurinn kippir sér ekki upp við svona breyt- ingar og fagnar þróuninni, hver sem hún er. Elsti sonur hans, Kjartan hefur til dæmis selt fleiri rafbíla en bíla með dísel eða bensíni, að undan- förnu. Hættir eftir fimmtíu ár Framundan eru breytingar hjá Steinari og hjá Olís á Suðurnesjum utan Grindavíkur, sem hann hefur stýrt af samviskusemi og dugnaði í öll þessi ár. Það eru ekki margir ein- staklingar sem eiga svona langan tíma að baki í rekstri. Nú er okkar maður að leggjast í helgan stein en það á ekkert alltof vel við hann. Steinar er vanur að vinna mikið en hann verður 75 ára á árinu og ætti þess vegna að vera meira úti á golfvelli, þar sem hann unir hag sínum vel, heldur en á skrifstofunni í Njarðvík. „Ég er að hætta. Þetta er orðið fínt og það eru breytingar framundan hjá Olís. Ég verð eitthvað til taks næstu mánuði,“ segir Steinar. Breytingarnar verða þannig að húsnæðinu í Njarðvík þar sem fyrsta ÓB stöðin var opnuð verður breytt á þann veg að tveir nýir veitingastaðir, Grill 66 og Lemon, verða opnaðir. Áfram verður vörusala Olís sem þjónustar mikinn fjölda fyrirtækja, stofnana og einstaklinga á Suður- nesjum. Nýlegir eigendendur Olís eru stórfyrirtækið Hagar sem ætlar sér enn stærri hluti á Suðurnesjum. Þessi breyting er liður í því. Við settumst niður með Steinari á Marriott hótelinu við Aðaltorg til að fara aðeins yfir langa sögu kappans í rekstri og lífi hans. Við Aðaltorg eru einmitt nýjustu ÓB dælurnar og fljótlega eftir opnun, skömmu fyrir heimsfaraldur, seldust þar flestir bensín- og olíulítrar á Suðurnesjum enda blasa Olís dælurnar við ferða- mönnunum þegar þeir koma með bílaleigubílana eftir Íslandsferð. víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.