Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 13.04.2022, Blaðsíða 16
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 14. MAÍ 2022 Kjörstaður og kjörfundur Kjörfundur hefst kl. 10 og lýkur kl. 22. Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2, gengið inn frá leikvelli. Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum á kjörstað. Framlagning kjörskrár Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna sveitarstjórnarkosninga liggur frammi á bæjarskrifstofum að Iðndal 2 frá 23. apríl. Athugasemdir varðandi kjörskrá má gera til sveitarstjórnar fram á kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár var 6. apríl. Framboðslistar Eftirfarandi framboðslistar bjóða fram í Sveitarfélaginu Vogum. D Sjálfstæðismenn og óháðir Björn Sæbjörnsson Andri Rúnar Sigurðsson Inga Sigrún Baldursdóttir Guðmann Rúnar Lúðvíksson Guðrún Sigurðardóttir Annas Jón Sigmundsson Bjarki Þór Kristinsson Þórunn Brynja Júlíusdóttir Kinga Wasala Sædís María Drzymkowska Sigurður Árni Leifsson Stefán Harald Hjaltalín Kristinn Benediktsson Hólmgrímur Rósenbergsson E Framboðsfélag E-listans Birgir Örn Ólafsson Eva Björk Jónsdóttir Friðrik Valdimar Árnason Ingþór Guðmundsson Hanna Lísa Hafsteinsdóttir Ragnar Karl Kay Frandsen Ingvi Ágústsson Guðrún Kristín Ragnarsdóttir Davíð Harðarson Marko Blagojevic Tinna Huld Karlsdóttir Elísabet Ásta Eyþórsdóttir Bergur Brynjar Álfþórsson Þorvaldur Örn Árnason L Listi fólksins Kristinn Björgvinsson Eðvarð Atli Bjarnason Ellen Lind Ísaksdóttir Anna Karen Gísladóttir Jóngeir Hjörvar Hlinason Inga Helga Fredriksen Berglind Petra Gunnarsdóttir Garðar Freyr Írisarson Karen I. Mejna Tómas Pétursson Guðmundur B. Hauksson Gísli Stefánsson Guðrún Kristmannsdóttir Benedikt Guðmundsson Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga Íbúð til leigu í Grindavík Til leigu þriggja herbergja íbúð að Ásabraut 16 í Grindavík. Laus 1. maí. Upplýsingar í síma 892-8352. SMáauglÝSiNgar vf is Þú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á – Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, Sigurður Óli Þórleifsson, fékk kaldar kveðjur hjá uppstillingarnefnd sem óskar ekki krafta hans áfram. „Þetta kemur mér mjög á óvart og ég fæ engin svör,“ segir Sigurður Óli Þórleifsson, oddviti Framsóknar- flokksins í Grindavík og forseti bæjarstjórnar, en hann verður ekki á lista flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í maí. Framsóknarflokkurinn myndaði meirihluta með Sjálfstæðisflokknum á kjörtímabilinu sem senn lýkur og gegndi Sigurður Óli stöðu forseta bæjarstjórnar. Þetta kom Sigurði vægast sagt í opna skjöldu, hann sagði sig úr flokknum og er vægast sagt ósáttur við vinnubrögð uppstill- ingarnefndar. „Páll Jóhann Pálsson leitaði til mín fyrir síðustu kosningar og ég tók að mér að leiða Framsóknarflokkinn en þetta voru mín fyrstu afskipti af pólitík. Kosningin kom vel út fyrir flokkinn og við mynduðum meiri- hluta með Sjálfstæðisflokknum og ég vek athygli á því að þetta voru fjögur mjög krefjandi ár þar sem við upplifðum fall Wow air með auknu atvinnuleysi í Grindavík, náttúru- hamfarir, jarðskjálfta og eldgos í kjöl- farið á því. Þá kom COVID kom við okkur eins og önnur sveitarfélög en ég tel bæjarstjórnina hafa staðið sig mjög vel við krefjandi aðstæður. Ég sem forseti bæjarstjórnar leiddi þá vinnu og tel mig hafa gert það vel. Rekstrarniðurstaða bæjarins hefur alltaf verið góð, Grindavík skorar hæst varðandi ánægju bæjarbúa svo ég get ekki betur séð en hér sé búið að vinna mjög gott starf. Ég tel vel hafa tekist upp við val fólks í nefndir á vegum bæjarins og reyndi ég að finna hæfasta fólkið í þau störf, þ.e. ég einskorðaði valið ekki endilega við fólk á listanum okkar. Þess vegna kemur þetta mér mjög á óvart.“ Það er mjög óvenjulegt að oddviti flokks sem sömuleiðis leiðir bæjar- stjórn, sé settur svona út í kuldann svo eitthvað hlýtur að hafa komið upp á? „Ekkert sem ég veit um, ég hef enga gagnrýni fengið á mín störf en skilst að ég sé of hliðhollur Sjálf- stæðisflokknum og segi já og amen við öllu því sem oddviti sjálfstæðis- manna leggur á borð fyrir mig. Því vísa ég algjörlega til föðurhúsanna og það vita þau sem sem sitja með mér í bæjarstjórn að það er ekki rétt.“ „Ég hef líka heyrt útundan mér að það vanti meiri átök á bæjar- stjórnarfundunum en ég er maður samvinnu, tel að flokkar þurfi að geta unnið saman og þá þarf að gera málamiðlanir. Auðvitað er tekist á en á endanum verðum við að komast að niðurstöðu og þar hefur samstarfs- flokkurinn þurft að gefa jafn mikið eftir og ég svo ég vísa þessari já-hygli algerlega til föðurhúsanna.“ Sigurður vissi ekki annað en hann væri að fara starfa næstu fjögur árin hið minnsta við bæjarstjórnarmálin. „Það er margt í þessu sem mér finnst bera vott um döpur vinnu- brögð, t.d. tímasetningin. Eins hef ég litlar sem engar skýringar fengið en ég hef ennþá bara getað talað við einn þeirra þriggja sem eru í uppstill- ingarnefndinni, Pál Jóhann. Hvorki Guðmundur Karlsson né Bryndís Gunnlaugsdóttir hafa svarað mér. Þetta með tímasetninguna er líka dapurlegt finnst mér en ég á litla möguleika á að gefa kost á mér í öðrum flokkum eða fara sjálfur fram. Eins og ég segi, það er allt frekar dapurt við þetta að mínu mati.“ Sigurður rekur MUSTAD Autoline í Grindavík en fyrirtækið sinnir línuútgerð víðsvegar um land. Eitt helsta áhugamál Sigurðar eru ferðir á leiki í enska boltanum og hefur hann verið ófáum Íslendingunum innan handar varðandi miðakaup. Hvað tekur við fyrst bæjarpólitíkin er kominn á ís? „Þegar einar dyr lokast þá opna nýjar, þannig er það bara. Ég hef rekið farsælt fyrirtæki undanfarin tvö ár og mun halda þeirri uppbygg- ingu áfram en við þjónustum línuút- gerðina, allt frá litlum handfæra- bátum yfir í stóru línuskipin. Ég er með umboð fyrir MUSTAD króka og beitningarvélar og sömuleiðis seljum við beitu. Stórt áhugamál hefur verið fótbolti og þá kannski helst enski boltinn. Ég var alþjóðlegur fótboltadómari í tíu ár og kynntist fjölmörgum í þeim ótalmörgu verk- efnum og hef ég verið fólki innan handar við að útvega miða á leiki.“ „Framsóknarfólk samþykkti þennan lista samhljóða og er ég sannfærð um að þetta er sterk liðs- heild sem er tilbúin að vinna að því að gera góða bæ enn betri,“ segir Bryndís Gunnlaugsdóttir í uppstill- ingarnefnd Framsóknar í Grindavík þegar hún er spurð út í brotthvarf núverandi oddvita flokksins. „Uppstillingarnefnd tók viðtöl við alla einstaklinga er höfðu áhuga á sæti ofarlega á lista, þ.e.a.s. 1.–8. sæti. Við tókum viðtöl við tíu einstaklinga og kom þá í ljós að fjórir aðilar höfðu áhuga á fyrsta sæti en því miður var of seint að boða til prófkjörs sam- kvæmt reglum Framsóknarflokksins. Í störfum undirbúningsnefndar var því rætt við Framsóknarfólk og al- menna kjósendur og reynt að átta sig á því hvernig hægt væri að stilla upp sterku liði til árangurs í sveitar- stjórnarkosningum. Í þeirri vinnu var meðal annars rætt við Fram- sóknarfólk í Grindavík sem og al- menna kjósendur. Uppstillingarnefnd lagði síðan til- lögu sína fyrir félagsfund en öllum er auðvitað heimilt að koma með aðrar tillögur á félagsfundi þar sem greitt er atkvæði um listann. Á félagsfundi Framsóknar í Grindavík komu engar tillögur um breytingar á lista og var tillaga uppstillingarnefndar sam- þykkt samhljóða. Það er því ljóst að frambjóðendur og félagsmenn fengu tækifæri til þess að breyta tillögu uppstillinganefndar og leggja fram aðrar tillögur.“ Eins og áður segir þá er óvenju- legt að oddvita sé ýtt svona til hliðar og hann fái ekki neinar skýringar. Bryndís hvatti blaðamann til að spyrja Sigurð hvers vegna hann hefði ekki mætt á félagsfundinn þar sem hann hefði getað óskað eftir stuðn- ingi áfram í fyrsta sætið. „Eftir að hafa hitt stjórn Fram- sóknarfélags Grindavíkur þá sá ég í hvað stefndi og því hvarflaði ekki að mér að mæta á þann fund. Þessu máli er því bara lokið hjá mér, áfram gakk,“ segir Sigurður Óli. Þrjú sætin hjá Framsóknar- flokknum í Grindavík: Ásrún Helga Kristinsdóttir, kennari, Sverrir Auðunsson, fram- kvæmdastjóri, og Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, kennari. - segir Bryndís Gunnlaugsdóttir „Sterk liðsheild“ Ósáttur oddviti framsóknar í Grindavík út í kuldann Sigurbjörn Daði Dagðbjartsson sigurbjornd@gmail.com 16 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.