Víkurfréttir - 13.04.2022, Side 16
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Í SVEITARFÉLAGINU VOGUM 14. MAÍ 2022
Kjörstaður og kjörfundur
Kjörfundur hefst kl. 10 og lýkur kl. 22. Kosið verður í Stóru-Vogaskóla, Tjarnargötu 2, gengið inn frá leikvelli.
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum á kjörstað.
Framlagning kjörskrár
Kjörskrá í Sveitarfélaginu Vogum vegna sveitarstjórnarkosninga liggur frammi á bæjarskrifstofum að Iðndal 2 frá 23.
apríl. Athugasemdir varðandi kjörskrá má gera til sveitarstjórnar fram á kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár var 6.
apríl.
Framboðslistar
Eftirfarandi framboðslistar bjóða fram í Sveitarfélaginu Vogum.
D
Sjálfstæðismenn og óháðir
Björn Sæbjörnsson
Andri Rúnar Sigurðsson
Inga Sigrún Baldursdóttir
Guðmann Rúnar Lúðvíksson
Guðrún Sigurðardóttir
Annas Jón Sigmundsson
Bjarki Þór Kristinsson
Þórunn Brynja Júlíusdóttir
Kinga Wasala
Sædís María Drzymkowska
Sigurður Árni Leifsson
Stefán Harald Hjaltalín
Kristinn Benediktsson
Hólmgrímur Rósenbergsson
E
Framboðsfélag E-listans
Birgir Örn Ólafsson
Eva Björk Jónsdóttir
Friðrik Valdimar Árnason
Ingþór Guðmundsson
Hanna Lísa Hafsteinsdóttir
Ragnar Karl Kay Frandsen
Ingvi Ágústsson
Guðrún Kristín Ragnarsdóttir
Davíð Harðarson
Marko Blagojevic
Tinna Huld Karlsdóttir
Elísabet Ásta Eyþórsdóttir
Bergur Brynjar Álfþórsson
Þorvaldur Örn Árnason
L
Listi fólksins
Kristinn Björgvinsson
Eðvarð Atli Bjarnason
Ellen Lind Ísaksdóttir
Anna Karen Gísladóttir
Jóngeir Hjörvar Hlinason
Inga Helga Fredriksen
Berglind Petra Gunnarsdóttir
Garðar Freyr Írisarson
Karen I. Mejna
Tómas Pétursson
Guðmundur B. Hauksson
Gísli Stefánsson
Guðrún Kristmannsdóttir
Benedikt Guðmundsson
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga
Íbúð til leigu í Grindavík
Til leigu þriggja herbergja íbúð
að Ásabraut 16 í Grindavík.
Laus 1. maí.
Upplýsingar í síma 892-8352.
SMáauglÝSiNgar
vf is
Þú finnur allar
nýjustu fréttirnar
frá Suðurnesjum á
– Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, Sigurður Óli Þórleifsson, fékk kaldar
kveðjur hjá uppstillingarnefnd sem óskar ekki krafta hans áfram.
„Þetta kemur mér mjög á óvart og
ég fæ engin svör,“ segir Sigurður Óli
Þórleifsson, oddviti Framsóknar-
flokksins í Grindavík og forseti
bæjarstjórnar, en hann verður
ekki á lista flokksins fyrir komandi
bæjarstjórnarkosningar í maí.
Framsóknarflokkurinn myndaði
meirihluta með Sjálfstæðisflokknum
á kjörtímabilinu sem senn lýkur og
gegndi Sigurður Óli stöðu forseta
bæjarstjórnar. Þetta kom Sigurði
vægast sagt í opna skjöldu, hann
sagði sig úr flokknum og er vægast
sagt ósáttur við vinnubrögð uppstill-
ingarnefndar.
„Páll Jóhann Pálsson leitaði til mín
fyrir síðustu kosningar og ég tók að
mér að leiða Framsóknarflokkinn
en þetta voru mín fyrstu afskipti af
pólitík. Kosningin kom vel út fyrir
flokkinn og við mynduðum meiri-
hluta með Sjálfstæðisflokknum og
ég vek athygli á því að þetta voru
fjögur mjög krefjandi ár þar sem við
upplifðum fall Wow air með auknu
atvinnuleysi í Grindavík, náttúru-
hamfarir, jarðskjálfta og eldgos í kjöl-
farið á því. Þá kom COVID kom við
okkur eins og önnur sveitarfélög en
ég tel bæjarstjórnina hafa staðið sig
mjög vel við krefjandi aðstæður. Ég
sem forseti bæjarstjórnar leiddi þá
vinnu og tel mig hafa gert það vel.
Rekstrarniðurstaða bæjarins hefur
alltaf verið góð, Grindavík skorar
hæst varðandi ánægju bæjarbúa
svo ég get ekki betur séð en hér sé
búið að vinna mjög gott starf. Ég
tel vel hafa tekist upp við val fólks í
nefndir á vegum bæjarins og reyndi
ég að finna hæfasta fólkið í þau
störf, þ.e. ég einskorðaði valið ekki
endilega við fólk á listanum okkar.
Þess vegna kemur þetta mér mjög
á óvart.“
Það er mjög óvenjulegt að oddviti
flokks sem sömuleiðis leiðir bæjar-
stjórn, sé settur svona út í kuldann
svo eitthvað hlýtur að hafa komið
upp á?
„Ekkert sem ég veit um, ég hef
enga gagnrýni fengið á mín störf
en skilst að ég sé of hliðhollur Sjálf-
stæðisflokknum og segi já og amen
við öllu því sem oddviti sjálfstæðis-
manna leggur á borð fyrir mig. Því
vísa ég algjörlega til föðurhúsanna og
það vita þau sem sem sitja með mér í
bæjarstjórn að það er ekki rétt.“
„Ég hef líka heyrt útundan mér
að það vanti meiri átök á bæjar-
stjórnarfundunum en ég er maður
samvinnu, tel að flokkar þurfi að
geta unnið saman og þá þarf að gera
málamiðlanir. Auðvitað er tekist á en
á endanum verðum við að komast að
niðurstöðu og þar hefur samstarfs-
flokkurinn þurft að gefa jafn mikið
eftir og ég svo ég vísa þessari já-hygli
algerlega til föðurhúsanna.“
Sigurður vissi ekki annað en hann
væri að fara starfa næstu fjögur árin
hið minnsta við bæjarstjórnarmálin.
„Það er margt í þessu sem mér
finnst bera vott um döpur vinnu-
brögð, t.d. tímasetningin. Eins hef
ég litlar sem engar skýringar fengið
en ég hef ennþá bara getað talað við
einn þeirra þriggja sem eru í uppstill-
ingarnefndinni, Pál Jóhann. Hvorki
Guðmundur Karlsson né Bryndís
Gunnlaugsdóttir hafa svarað mér.
Þetta með tímasetninguna er líka
dapurlegt finnst mér en ég á litla
möguleika á að gefa kost á mér í
öðrum flokkum eða fara sjálfur fram.
Eins og ég segi, það er allt frekar
dapurt við þetta að mínu mati.“
Sigurður rekur MUSTAD Autoline
í Grindavík en fyrirtækið sinnir
línuútgerð víðsvegar um land. Eitt
helsta áhugamál Sigurðar eru ferðir
á leiki í enska boltanum og hefur
hann verið ófáum Íslendingunum
innan handar varðandi miðakaup.
Hvað tekur við fyrst bæjarpólitíkin
er kominn á ís?
„Þegar einar dyr lokast þá opna
nýjar, þannig er það bara. Ég hef
rekið farsælt fyrirtæki undanfarin
tvö ár og mun halda þeirri uppbygg-
ingu áfram en við þjónustum línuút-
gerðina, allt frá litlum handfæra-
bátum yfir í stóru línuskipin. Ég er
með umboð fyrir MUSTAD króka og
beitningarvélar og sömuleiðis seljum
við beitu. Stórt áhugamál hefur
verið fótbolti og þá kannski helst
enski boltinn. Ég var alþjóðlegur
fótboltadómari í tíu ár og kynntist
fjölmörgum í þeim ótalmörgu verk-
efnum og hef ég verið fólki innan
handar við að útvega miða á leiki.“
„Framsóknarfólk samþykkti
þennan lista samhljóða og er ég
sannfærð um að þetta er sterk liðs-
heild sem er tilbúin að vinna að því
að gera góða bæ enn betri,“ segir
Bryndís Gunnlaugsdóttir í uppstill-
ingarnefnd Framsóknar í Grindavík
þegar hún er spurð út í brotthvarf
núverandi oddvita flokksins.
„Uppstillingarnefnd tók viðtöl við
alla einstaklinga er höfðu áhuga á
sæti ofarlega á lista, þ.e.a.s. 1.–8. sæti.
Við tókum viðtöl við tíu einstaklinga
og kom þá í ljós að fjórir aðilar höfðu
áhuga á fyrsta sæti en því miður var
of seint að boða til prófkjörs sam-
kvæmt reglum Framsóknarflokksins.
Í störfum undirbúningsnefndar var
því rætt við Framsóknarfólk og al-
menna kjósendur og reynt að átta
sig á því hvernig hægt væri að stilla
upp sterku liði til árangurs í sveitar-
stjórnarkosningum. Í þeirri vinnu
var meðal annars rætt við Fram-
sóknarfólk í Grindavík sem og al-
menna kjósendur.
Uppstillingarnefnd lagði síðan til-
lögu sína fyrir félagsfund en öllum er
auðvitað heimilt að koma með aðrar
tillögur á félagsfundi þar sem greitt
er atkvæði um listann. Á félagsfundi
Framsóknar í Grindavík komu engar
tillögur um breytingar á lista og var
tillaga uppstillingarnefndar sam-
þykkt samhljóða. Það er því ljóst að
frambjóðendur og félagsmenn fengu
tækifæri til þess að breyta tillögu
uppstillinganefndar og leggja fram
aðrar tillögur.“
Eins og áður segir þá er óvenju-
legt að oddvita sé ýtt svona til hliðar
og hann fái ekki neinar skýringar.
Bryndís hvatti blaðamann til að
spyrja Sigurð hvers vegna hann hefði
ekki mætt á félagsfundinn þar sem
hann hefði getað óskað eftir stuðn-
ingi áfram í fyrsta sætið.
„Eftir að hafa hitt stjórn Fram-
sóknarfélags Grindavíkur þá sá ég
í hvað stefndi og því hvarflaði ekki
að mér að mæta á þann fund. Þessu
máli er því bara lokið hjá mér, áfram
gakk,“ segir Sigurður Óli.
Þrjú sætin hjá Framsóknar-
flokknum í Grindavík:
Ásrún Helga Kristinsdóttir,
kennari, Sverrir Auðunsson, fram-
kvæmdastjóri, og Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir, kennari.
- segir Bryndís
Gunnlaugsdóttir
„Sterk
liðsheild“
Ósáttur oddviti framsóknar
í Grindavík út í kuldann
Sigurbjörn Daði Dagðbjartsson
sigurbjornd@gmail.com
16 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM