Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.2022, Side 6

Víkurfréttir - 13.04.2022, Side 6
Nettó í Grindavík mun þann 13. apríl næstkomandi opna dyrnar að nýrri og endurbættri grænni verslun. Um ræðir umfangsmiklar breytingar sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur en verslunin hefur stækkað talsvert, eða um 280 fm2 og fer þar ríflegur hluti undir veglega græn- metis- og ávaxtadeild, þá hefur pláss fyrir ferskvöru stóraukist og búið er að útbúa einkar glæsilega heilsu- vörudeild. „Nettó í Grindavík er nú orðin græn verslun og þar með eru grænar verslanir Nettó orðnar þrjár. Með því að gera verslunina græna, erum við að draga stórkostlega úr kolefnis- sporinu sem er mikilvægt skref fyrir okkur, en umhverfismál og sam- félagsleg ábyrgð hafa verið í brenni- depli hjá Samkaupum undanfarin ár. Þessi græna breyting felur til að mynda í sér að búið er að skipta út öllum kælum og fyrstum sem ganga fyrir freoni og nú eru einungis notuð tæki sem ganga fyrir koltvísýringi. Þá eru allir kælar og frystar lokaðir og notast er við svokallað CO2 kæli- kerfi. LED lýsingin er sömuleiðis allsráðandi, en auk þess að vera um- hverfisvænni kostur en önnur lýsing, þá tryggir hún betri vörugæði. Við flokkum allt sorp og höfum alfarið hætt að notast við útprentaða verð- miða á hillur og erum því algjörlega stafræn í þeim efnum,“ segir Hallur Geir Heiðarsson, rekstrarstjóri Nettó. Samhliða stórtækum og umhverf- isvænum breytingum er verslunin sem fyrr segir nú talsvert rýmri og því fylgir stóraukið vöruúrval. Einnig hefur hefur allt aðgengi verið bætt til muna. Rekkar hafa verið lækkaðir og allt skipulag endurskoðað, auk þess sem sjálfsafgreiðslukassar hafa verið settir upp. Á næstu vikum verður svo hraðhleðslustöð frá Ísorku tekin í gagnið á planinu við verslunina. „Verkefnið hefur tekið dágóðan tíma og við höfum haft verslunina opna á meðan á breytingum stóð. Við erum afskaplega þakklát bæjar- búum fyrir auðsýnda þolinmæði og starfsfólki fyrir frábært starf. Það verður því gaman að opna dyrnar formlega á miðvikudaginn og sýna viðskiptavinum afraksturinn. Við hlökkum mikið til og munum bjóða upp á köku og kaffi og ís fyrir börnin meðan birgðir endast. Einnig verða kynningar á appinu auk þess sem viðskiptavinir sem nýta sér appið dagana 13.–19. apríl komast í lukku- pott og geta unnið veglega vinninga í formi inneigna,“ bætir Hallur við. NETTÓ OPNAR GRÆNA VERSLUN Í GRINDAVÍK Sebastian Boguslaw Rebisz, verslunarstjóri Nettó í Grindavík, í stærri og endurbættri verslun. Frá kassasvæði verslunarinnar. Þarna má sjá sjálfsafgreiðslustöðvar. Úr heilsuvörudeildinni. Grænmetis- og ávaxtatorgið. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sýningarpláss. Með umsókn þarf að fylgja greinargóð lýsing á þeirri sýningu sem fyrirhuguð er og ljósmynd með sýnishorni af þeim verkum sem til stendur að sýna. Margs konar listform kemur til greina svo sem málverk, grafík, teikningar, ljósmyndir, skúlptúrar o.fl. Ekki er þó gert ráð fyrir rafrænni miðlun að þessu sinni. Notast verður við sýningakerfi Bíósalar sem eru brautir með nælonþráðum. Ekki er heimilt að negla í veggi. Val á sýnendum er í höndum Listasafns Reykjanesbæjar. Sýnendur bera sjálfir ábyrgð á sýningunni og sjá um uppsetningu með aðstoð frá Listasafni Reykjanesbæjar. Sýnendur fylgja þeim reglum sem gilda um starfsemi í Duus Safnahúsum. Listasafnið áskilur sér rétt til að velja úr verkum sýnenda í samstarfi við þá. Allir sem stunda myndlist af einhverju tagi geta sótt um en þeir sem ekki hafa sýnt í húsunum áður hafa forgang. Hópar geta einnig tekið sig saman og sótt um í einu nafni. Þá er yngra fólk einnig sérstaklega hvatt til að sækja um. Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið helga.a.palsdottir@reykjanesbaer.is í síðasta lagi 9. maí. Í efnislínu (subject) skal skrifa: Sumarsýning í Bíósal. Öllum umsóknum verður svarað. Með umsókn skal fylgja: n Greinargóð lýsing á fyrirhugaðri sýningu, svo sem hvernig verk, fjöldi, stærð, efnisinntak o.s.frv. n Ljósmynd/ljósmyndir með sýnishorni af verkum n Ferilskrá umsækjanda Má bjóða þér að sýna í Duus Safnahúsum? Duus Safnahús og Listasafn Reykjanesbæjar vilja bjóða til samstarfs í sumar við fólk sem ástundar myndlist og býr á Suðurnesjum. Hugmyndin er að bjóða Bíósal undir myndlistarsýningu frá 4. júní til 27. ágúst. Það ræðst af fjölda og eðli umsókna hvort um eitt eða tvö sýningartímabil verður að ræða, eins geta sýnendur reiknað með að taka þátt í samsýningu. 6 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.