Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.04.2022, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 13.04.2022, Qupperneq 12
En hvernig var að vera strákur í Keflavík fyrir meira en hálfri öld. „Það var gaman að alast upp í Keflavík en ég man að það var ekki komið klósett alveg strax á mínu æskuheimili við Klapparstíg í Keflavík. Það var bara útikamar. Lífið var samt gott þó það væri ekki mikil velsæld. Það var alveg fátækt víða,“ segir Steinar sem eins og mörg ungmenni á þeim tíma byrjaði að vinna í fiski fyrir fermingu og í fisk- inum kynntist hann eiginkonu sinni, Birnu, þegar þau unnu bæði í fisk- verkuninni Litlu milljón í Keflavík. Ættingi hennar rak málningarfyrir- tæki og hugur okkar manns leitaði þangað. Steinar ætlaði að verða málari og byrjaði að vinna við það. „Ég byrjaði að vinna í slippnum að mála síldarbátana fyrir komandi vertíð. Í hópnum voru skemmtilegir gaurar sem áttu eftir að verða lands- þekktir, m.a. þrír Hljóma meðlimir, Rúnar Júll, Engilbert og Erlingur en þeir munduðu allir penslana um það leyti sem þeir stofnuðu hljóm- sveitina en sá fjórði, Gunni Þórðar keyrði leigubíl. Það var gaman að vera í kringum þá peyja og upplifa stemmninguna í kringum vinsælustu hljómsveit landsins. Þá voru fleiri þarna sem áttu eftir að verða frægir fótboltamenn,“ segir Steinar þegar hann rifjar þetta upp og sýnir blaða- manni mynd af fótboltadrengjum úr Keflavík árið 1959. Á sjóinn Málningarfyrirtækið fór illa og því varð að leita að nýrri vinnu. „Við Birna voru að byrja að búa og það var ekkert annað í stöðunni en að fá aðra vinnu. Ég frétti af því að Örn Erlingsson, skipstjóra, vantaði mann á bát sinn svo ég ákvað að banka upp á hjá honum og bjóða krafta mína. Hann sagðist að vísu vera búinn að ráða í stöðuna en eftir smá spjall sagði hann mér bara að koma líka. Ég fór á síldveiðar með honum og það gekk vel. Ég fékk mjög góðar tekjur en ég man eftir því að hafa lent í miklu óveðri í einum túrnum. Við fengum á okkur brot, ég var hrika- lega sjóveikur en var þó á stýrinu á minni vakt. Við vorum heppnir að komast í höfn,“ segir Steinar sem reyndi aftur við málninguna. Nú á Keflavíkurflugvelli hjá málningar- verktaka en önnur tilraun með máln- ingarpensilinn gekk ekki heldur og hann fór aftur á sjóinn. Fékk pláss á 20 tonna bát sem hét Ver sem var að fara á loðnuveiðar. „Það var allt morandi í loðnu og við mok- veiddum loðnu með tveimur öðrum bátum, ekki stærri en þetta en gekk vel. Reyndar var þetta hörkupúl því veiddum í nót og háfuðum upp úr henni í bátinn. Man meira að segja eftir þegar við lögðum nótina í höfn- inni í Keflavík og mokuðum upp loðnu. Alger þrælavinna því nótin var dregin með höndum.“ Leiðin í eldsneytið Steinar vann í framhaldi af sjó- mennskunni um tíma í hlaðdeildinni hjá Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli áður en Magnús nokkur Magnússon, kenndur við Höskuldarkot, réði hann til starfa til að sjá um innheimtu hjá BP (forvera Olís) sem hann var um- boðsmaður fyrir í Keflavík. Okkar maður fann sig ágætlega hjá Magnúsi og því var leiðin greið til að taka við sem umboðsmaður eftir að Magnús hætti tveimur árum síðar eða árið 1975. „Á þessum tíma var mikil útgerð og svo vorum við að selja olíu til húskyndingar. Á öllum heimilum var kynnt með gasolíu með þar til gerðum brennurum sem voru geymdir í sérstökum kyndiklefum í húsunum. Þannig var neysluvatn hitað sem og ofnar hússins. Ég man eftir að nýir háþrýstibrennarar komu á markaðinn sem voru sparneytnari en þarna var ekki komin hitaveita. Hún kom nokkrum árum síðar sem hafði mikil áhrif á okkar rekstur því olíusala til húsakyndingar var mikil, um 10 millijón lítrar á ári. Þetta var því talsverður skellur fyrir okkur því á nokkrum árum voru nær öll hús á Suðurnesjum orðin hitaveitukynnt.“ Hvað var til ráða hjá nýja umboðs- mannninum? „Sterk útgerð og sjósókn bjargaði okkur. Innan skamms tíma var ég komin með fimm togara og fimmtíu vertíðarbáta í viðskipti og þannig jókst olísala á nýjan leik. Ég man t.d. eftir því þegar það var mikil loðnuveiði. Þá kom hingað mjög stórt birgðaskip sem loðnuskipin lönduðu í og þá urðu mikil uppgrip hjá okkur. Þá vorum við með fimm olíubíla á fullu alla daga að dæla olíu á skipin. Ég man að bara í kringum þetta loðnuævintýri hér seldum við 1,3 milljón lítra af olíu sem var gríðar mikið.“ Tveimur árum eftir að Steinar tók við starfseminni færðist rekstur bensínstöðvarinnar Torgs í Keflavík og smurstöðvar á sama stað undir hann. Salan jókst í gegnum mikil fyr- irtækjatengsl og nokkrum árum síðar tók Steinar við rekstri verslunar- innar á sama stað. Þá stofnaði hann Básinn og elsti sonur hans, Kjartan og kona hans, stýrðu verslunar- rekstrinum, nokkrum árum síðar tók svo Ásgeir sonur hans við þar. Síðan hafa öll börnin og nokkur barnabörn unnið þar. Í mörg ár var Steinar með allan reksturinn í sínu nafni og tekj- urnar voru háar, einhvern tíma var rætt um að hann væri með meiri laun en forstjóri Olís. Steinar hlær að því en segir að árið 2000 hafi verið ákveðið að Olís tæki yfir allan rekstur á nýjan leik en hann myndi starfa áfram fyrir félagið. Lengst af voru húsakynni BP og Olís að Njarðarbraut, við sjóinn skammt frá höfninni í Njarðvík. Í við- tali við Víkurfréttir árið 1990 segir Steinar það hafa verið rætt að opna aðra bensínstöð en áratug síðar var farið í það verkefni þegar skrifstofur Olís fluttu þangað og opnuðu ÓB stöðina ásamt verslun og lager. Lægra verð í sjálfsafgreiðslu „Það voru ekki allir hrifnir af því að við værum að fara að opna þarna en við byrjuðum að byggja árið 2000 á Fitjum. Árið síðar opnuðum við ÓB stöðina á Suðurnesjum en hún var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Suðurnesjum sem var opin allan sólarhringinn. „Við buðum þarna talsvert lægra verð og viðtökurnar voru frábærar. Vörulagerinn var miklu stærri og sömuleiðis opnuðum við góða verslun. Framundan eru núna breytingar með opnun tveggja veitingastaða en við munum einnig sinna vörusölu sem er mjög mikil. Við þjónustum marga stóra aðila eins og bílaleigur, sveitarfélög, sund- laugar, elliheimili, skóla og fyrirtæki á Suðurnesjum með margs konar vörur, allt frá pappír og bleium yfir í smurolíur og hreinsivörur. Undir merkjum nýs eiganda Olís eru vöru- tegundirnar orðnar nokkrir tugir þúsunda. Í gamla daga var þetta mun einfaldara. Þá vorum við mest að afgreiða tvist, grysju og smurolíu,“ segir olíukóngurinn og hlær og bætir því við að starfsemin í nágrenni Olís á Fitjum eigi eftir að aukast á næst- unni með opnun annarra aðila eins og Byko og World Class. Situr við tölvuna og breytir bensínverði Það er ekki hægt að ræða við Steinar öðruvísi en að ræða bensín- og olíu- verð. „Já, það eru margir sem halda ég sitji við tölvuna og breyti hreinlega verðinu þegar þeir koma en það er ekki alveg svo einfalt. Ég hef ekkert með verð að gera í dag. Það var þannig í gamla daga en þó þannig að verðlagsráð var með málið. Ég fékk í mörg ár símskeyti þegar verðið breyttist. Fyrr mátti ég ekki breyta,“ segir Steinar og þegar hann er spurður um hvað ríkið taki í sinn hlut af hverjum eldneytislítra segir hann það vera í kringum 170 krónur. En þá liggur beint við að spyrja okkar mann út í rafbílana. Stendur til að setja upp hleðslustöðvar hjá Olís og hvernig leggst þessi aukni áhugi á rafbílum í okkar mann. „Í fyrsta lagi er það ekki mikill bísness fyrir bensínstöðvarnar að vera með hleðslustöðvar því lang flestir hlaða sína rafbíla heima hjá sér í flestum tilfellum. Hlutfall raf- bíla hefur hækkað en er ekki hátt og svo er spurning hvernig framhaldið verður því það vantar rafmagn á Ís- landi. Við þurfum að virkja meira ef við ætlum að geta sinnt þessari orkuþörf til framtíðar og frekari raf- væðingu tækja og tóla. Við sóttum um að opna hleðslustöð við Aðaltorg í Reykjanesbæ en það gekk ekki út af veseni með að fá rafmagn.“ Fótbolti og golf Steinar hefur í gegnum tíðina verið duglegur í félagsmálum. Hann er gamall Alþýðuflokksmaður eða Krati en varð sjálfstæðismaður þegar Al- þýðuflokkurinn og Alþýðubanda- lagið sameinuðust í Samfylkingu. Steinar var í fótbolta þegar hann var strákur og lék með 5. flokki Keflavíkur sem lék til úrslita um Ís- landsmeistaratitilinn árið 1959. Þá spilaði hann einnig stundum með 4. flokki sem varð meistari þetta ár en þá voru þrír flokkar að spila um stóra titilinn því 3. flokkur var þarna líka. „Þarna var upphafið að gullaldarliði Keflavíkur. Við vorum með frábæra þjálfara, Hafstein Guðmundsson, Ríkharð Jónsson og Albert Guð- Úr bókinni „Þeir létu dæluna ganga“ – saga Olís. „Það er á engan hallað þó sagt sé að Steinar sé einn af lykilmönnum Olíu- verslunar Íslands á landsbyggðinni, traustur og farsæll, vinsæll í sinni heimabyggð,“ segir í bókinni þar sem farið er yfir sögu Olís í 75 ár.Steinar var í fótbolta sem strákur og hér er hann á frægri mynd með drengjum úr 5., 4. og 3. flokki en hann var í 5. flokki og varamaður í 4. flokki. Á myndinni eru flestir af keflvískum knattspyrnudrengjum sem áttu eftir að gera garðinn frægan með gullaldarliði Keflavíkur á árunum 1964 til 1975. Páll Ketilsson pket@vf.is Steinar Sigtryggsson og Birna Martinsdóttir og börnin fjögur, f.v. Kjartan, Ásgeir, Sigtryggur og Sólrún. Olíubílar frá Olís í gamla daga við höfuðstöðvarnar í Njarðvík. 12 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.