Víkurfréttir - 13.04.2022, Qupperneq 13
mundsson og þetta voru skemmti-
legir tímar.
Steinar segist hafa átt skemmti-
lega tíma í félagsmálum í kringum
knattspyrnuna. Hann var t.d. vara-
formaður Ungmennafélags Kefla-
víkur á áttunda áratugnum. „Það
var happaskref hjá okkur þegar
við réðum Hauk Hafsteinsson sem
framkvæmdastjóra UMFK 1975 og
það eru margar góðar miningar frá
þessum tíma. Ein ferð er mér ofar-
lega í huga þegar við fórum í keppn-
isferð vestur á firði, lékum nokkra
leiki en kepptum m.a. á Súgandafirði
og þegar við mættum þurfti ég að
fara í dómaragallann en slapp við að
dæma bara fyrri hálfleik. Um kvöldið
var skemmtun þar sem Sumargleðin
með Ragga Bjarna var að skemmta.
Meðal atriða var bingó og það var
ekki vinsælt hjá heimamönnum
þegar ég vann stærsta vinning
kvöldsins sem var utanlandsferð
fyrir tvö. Raggi Bjarna ætlaði að af-
henda mér gjafabréfið en fann það
ekki og skrifaði nafnið mitt á serví-
ettu til staðfestingar á vinningnum.
Þetta var ekki flókið og ég mætti á
ferðaskrifstofuna með undirritaða
servíettu frá Ragga Bjarna og fór
nokkru síðar í þessa fínu ferð,“ segir
Steinar og hlær þegar hann rifjar
þetta upp.
Heillaðist af golfinu
Okkar maður kynntist svo golf-
íþróttinni 1980 og fór í sína fyrstu
golfferð til Skotlands með Herði
Guðmundssyni, þáverandi formanni
Golfklúbbs Suðurnesja.
„Ég féll algerlega fyrir golfinu og
hef ekki sleppt kylfunni í fjörutíu ár.
Golfið er búið að vera frábært fyrir
mig í öll þessi ár. Það hefur verið
gaman að spila í útlöndum, við
erum hópur sem hefur farið árlega
til Skotlands, Englands eða Írlands
á vorin. Svo hef ég verið duglegur að
fara í Leiruna hér heima með góðum
vinum. Hólmsvöllur í Leiru er gott
dæmi um frábært sjálfboðaliða-
starf en svæðið væri ekki til ef þeir
bræður Hörður og Hólmgeir Guð-
mundssynir hefðu ekki unnið krafta-
verk við uppbyggingu vallarins og
síðar klúbbhúss. Ég var í stjórn GS í
nokkur ár og m.a. þegar klúbburinn
stækkaði völlinn í 18 holur og opnaði
nýtt klúbbhús. Leiran er alger perla
og einn fallegasti staður landsins.“
Það er stundum sagt að börnin
fylgi foreldrunum en þriðji sonur
Steinars, Sigtryggur sem hefur
starfað hjá Olís mun taka við um-
boðsmannastarfinu af föður sínum
og pabbinn er ánægður með það.
Steinar hefur verið heppinn með
heilsuna alla tíð en síðustu árin
hefur hún aðeins dalað og okkar
maður er að glíma við hægfara
krabbamein sem hefur verið haldið
niðri. „Þetta er aðeins að trufla mig.
Ég þarf að fara til Svíþjóðar til lækna
þar sem vilja skoða þetta en maður
vonar bara að þetta gangi vel. Ég er
alla vega nokkuð hress og veikinda-
dagarnir í fimmtíu ár hafa ekki verið
margir,“ segir Steinar Sigtryggson,
olíukóngur Suðurnesja og vildi að
lokum senda öllu samstarfsfólki og
viðskiptavinum í gegnum tíðina
bestu þakkir.
Það hefur oft verið barátta í kringum
eignarhaldið á Olíuverslun Íslands,
Olís. Steinari er það mjög minnistætt
þegar Óli K. Sigurðsson keypti fyrir-
tækið.
„Það var umtalað þegar Óli K.
Sigurðsson eignaðist Olís með eftir-
minnilegum hætti. Það varð fræg
saga um að Óli hafi borgað kaupin á
Olís þannig að hann reiddi fram inni-
stæðulausa ávísun á föstudegi eftir
lokun banka en Óli hafi síðan tekið
helgarsöluna hjá nýja fyrirtækinu
sínu til þess að innistæða yrði fyrir
ávísuninni þegar hún yrði innleyst
á mánudagsmorguninn. Hann stóð
síðan í hellings baráttu í framhaldinu
um að halda fyrirtækinu. Umboðið
mitt í Keflavík var stórt og með góða
veltu þannig að Óli var í miklu sam-
bandi við mig því hann þurfti að
nota hverja krónu til að halda fyrir-
tækinu gangandi næstu mánuði og
ár. Ég þurfti að vera með allar klær
úti til að halda góðu peningaflælði
fyrir kallinn. Sú barátta endaði
nokkru síðar með því að Texaco
varð stór hluthafi í Olís og þá kom
ró á reksturinn.
Steinar er með skemmtilega mynd
af Óla heitnum við skrifborðið sitt í
húsakynnum Olís í Njarðvík.
Sterk útgerð og
sjósókn bjargaði
okkur. Innan
skamms tíma var ég komin
með fimm togara og fimmtíu
vertíðarbáta í viðskipti og
þannig jókst olísala á nýjan
leik ...
BARÁTTAN UM OLÍS
Steinar steinlá fyrir golfíþróttinni þegar
hann var kominn til vits og ára og hér
á myndinni má sjá hann með einum af
golffélögum sínum úr golfferðahópi
Golfklúbbs Suðurnesja, Jóni Birni
Sigtryggssyni. Þeir félagar fáru báðir
holu í höggi í Skotlandi, í Mekka golfsins
árið 2002. „Leiran er minn besti
staður en það er mjög skemmtilegt að
heimsækja golfvelli úti í heimi,“ segir
kylfingurinn Steinar sem hefur leikið
golf víða um heim, m.a. á Indlandi.
Steinar sýnir blaðamanni Víkurfrétta teikningar
af starfsemi Olís við Aðaltorg í Keflavík, við
Marriott hótelið. Þar eru nú þegar komnar
nokkrar dælur frá Olís sem m.a. sinna vel
ferðamönnum sem koma til Íslands.
Steinar í viðtali í Vikurfréttum
eftir opnun nýrrar aðstöðu og ÓB
sjálfsafgreiðslustöðvar á Fitjum í Njarðvík.
Viðtökurnar voru framar öllum vonum.
Steinar og Birna kona hans með starfsfólki og viðskiptavinum
á árshátíð Olís fyrir mörgum árum á Hótel Sögu.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 13