Víkurfréttir - 13.04.2022, Page 15
Suðurgötu 2
421 3200
PÁSKAOPNUN
Í APÓTEKARANUM KEFLAVÍK
www.apotekarinn.is
Keflavík
Skírdagur 10–14
Föstudagurinn langi Lokað
Páskadagur Lokað
Annar í páskum 10–14
GLEÐILEGA
PÁSKA
„Það er ánægjulegt að hér á HSS hefur verið tekið til hendinni og unnið að uppbyggingu á innviðum
stofnunarinnar. Það er nauðsynlegt því mikil fólksfjölgun hefur orðið á svæðinu undanfarin ár sem kallar
jú á aukna starfsemi og stærra húsnæði. Nú er komið að þeim tímamótum að fyrsti áfangi húsnæðis-
breytinganna er tilbúinn sem er ný röntgendeild. Hún var flutt til að vera við hliðina á nýrri slysa- og
bráðamóttöku en framkvæmdir við hana hefjast á næstu vikum,“ sagði Alma D. Möller, landlæknir,
þegar ný röntgendeild var formlega opnuð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í síðustu viku.Landlæknir
hvatti starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja til að halda áfram á þeirri vegferð að efla þjónustu
HSS, gæði hennar og öryggi.
„Það hefur verið mótvindur hér og
erfið umræða. Mig langar að segja
það að það er mikill vilji til umbóta
hjá stofnuninni. Það sé ég sem land-
læknir því við höfum gert hér út-
tektir bæði á starfsemi heilsugæslu
og legudeildar. Það er mín trú að hér
verði aukin gæði og aukið öryggi
sjúklinga. Svo má nefna það að það
er afar mikilvægt að almenningur,
þar með talið stjórnendur í sveitar-
félögum og þingmenn taki utanum
stofnunina og vinni með henni í
þessari gæða- og umbótavegferð,“
segir Alma í viðtali við Víkurfréttir
þegar hún er spurð út í umræðuna
sem hefur verið mjög erfið um Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja í nokkuð
langan tíma.
Það eru ákveðin tímamót núna
með umbótum á húsnæði og að-
stöðu.
„Það er verið að endurbæta hús-
næðið mjög og þetta er fyrsti áfangi
að opna nýja og glæsilega röntgen-
deild. Síðan verður haldið áfram
með bráðamóttöku og fleira. Þetta er
afskaplega mikilvægt því húsnæði er
mikilvægur þáttur starfsumhverfis
og hér hefur vantað á mönnun, ekki
síst lækna. Mínar vonir eru að þetta
geri stofnunina eftirsóttari vinnu-
stað.“
Margt hefur gengið á hérna í langan
tíma. Hvaða leiðbeiningar hefur þú
verið með til stofnunarinnar vegna
þessa?
„Við höfum brýnt fyrir stofnuninni
að ráðast í þær umbætur sem þarf,
því við höfum greint bæði styrkleika
og veikleika. Það er mikilvægast
þegar erfið umræða kemur upp er
að hlusta og líta inná við á hvað þurfi
að laga og vinda sér í það. Ég sé að
það er vilji til umbóta en umbætur
eru ekki hristar fram úr erminni, þær
taka tíma og í rauninni lýkur þeim
aldrei. Mikilvægast er að hlusta og
bregðast við eins og þarf.“
Nú gerðuð þið úttekt á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Hver var ykkar
helsta niðurstaða í fáum orðum?
„Það er bara eins og víðast hvar í
heilbrigðiskerfinu, það þarf að efla
mönnun og það hjá flestum starfs-
stéttum og ég nefni sérstaklega
lækna. Það þarf að efla teymisvinnu
og almennt gæða- og öryggisstarf.
Fleira mætti telja en þetta eru aðal-
atriðin.“
Ertu að segja að Suðurnesjamenn
geti horft björtum augum til fram-
tíðarinnar hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja?
„Ég hef fulla trú á því að hér verði
bætt þjónusta og það er mikilvægt.
Við sjáum hvað íbúum hér hefur
fjölgað og það er afar mikilvægt að
bæta þjónustuna og stækka húsnæði
eins og við erum að sjá hérna í dag.“
Er það ekki kostur fyrir stjórnvöld
eða þá sem skaffa fjármunina að
sjá sjúkrahúsin fyrir utan höfuð-
borgarsvæðið styrkjast til að bæta
þjónustuna fyrir heimamenn og
létta álagi af Landspítalanum?
„Jú, ég held að það sé afar mikil-
vægt. Við sjáum að það er gríðarlega
mikið að gera á Landspítala og það
er töluvert í nýjan spítala. Það er
mikilvægt að nýta nágrannasjúkra-
húsin sem allra best. Við höfum
æfst mjög í slíku samstarfi í gegnum
faraldurinn og ég sé ekkert annað en
að slíkt samstarf haldi áfram.“
- segir Alma D. Möller, landlæknir
Mikill vilji til umbóta hjá HSS
Píratar og óháðir bjóða fram lista til sveitarstjórnarkosninga þann
14. maí n.k.
Í fyrsta sæti er það Ragnhildur L. Guðmundsdóttir kennari sem leiðir
listann fyrir hönd óháðra, í öðru sæti er Margrét Sigrún Þórólfsdóttir
kennari, í þriðja sæti er Svanur Þorkelsson og í því fjórða er Vania
Cristína Late Lopes. Helstu áherslur framboðsins er: íbúalýðræði, um-
hverfis og húsnæðismál, virkni fyrir alla og stuðningur við fólk með
fötlun svo eitthvað sé nefnt af þeim mörgu málefnum sem tengjast okkar
ágæta bæjarfélagi.
Listinn í heild:
1. Ragnhildur L Guðmundsdóttir, kennari og náms- & starfsráðgjafi
2. Margrét S Þórólfsdóttir, leik- og grunnskólakennari
3. Svanur Þorkelsson, leiðsögumaður
4. Vania Cristína Leite Lopes, félagsliði
5. Daníel Freyr Rögnvaldsson, nemi.
6. Ragnar Birkir Bjarkarson, leiðbeinandi
7. Sædís Anna Jónsdóttir, lagerstarfsmaður
8. Jón Magnússon, sjálfstætt starfandi
9. Marcin Pawlak, aðst.vaktstjóri
10. Tómas Albertsson, nemi
11. Hrafnkell Hallmundsson, tölvunarfræðingur
12. Þórólfur Júlían Dagsson, vélstjóri
Píratar og óháðir bjóða
fram í Reykjanesbæ
AÐ KVÖLDI PÁSKADAGS
Á HRINGBRAUT OG VF.IS
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 15