Víkurfréttir - 13.04.2022, Page 21
Siggi Raggi segir að sér lítist bara vel á tímabilið þrátt fyrir að mikil meiðsli hafi verið að hrjá liðið á
undirbúningstímanum. „Vonandi verða einhverjir komnir til baka fyrir mót. Ég held bara að við höfum
verið pínu óheppnir en fyrir utan það þá höfum við hagað undirbúningstímabilinu þannig að öllum hefur
verið gefið tækifæri til að spila,“ sagði Siggi í spjalli við Víkurfréttir nú skömmu fyrir Íslandsmót. „Ungir
og efnilegir strákar fengu að spila mikið í vetur og síðan þegar nær dró móti fóru erlendu leikmennirnir
okkar að koma til landsins og þá fór að koma meiri mynd á liðið og úrslitin urðu betri. Heilt yfir er búið að
ganga mjög vel í síðustu leikjunum á undirbúningstímabilinu og liðið verið að spila vel – undantekningin
er leikurinn á móti ÍBV, síðasti leikur, en það eru bara ofboðslega mikil meiðsli í liðinu og við erum að vinna
í að fá leikmenn inn til að styrkja okkur því deildin verður enn sterkari í ár en hún var í fyrra.“
Besta deildin
– fleiri leikir, lengra tímabil
Nú lengist tímabilið með þessari úr-
slitakeppni, hvernig líst þér á það
fyrirkomulag?
„Mér líst mjög vel á að það sé verið
að fjölga leikjum, að mótið sé núna
27 leikir. Það er þessi úrslitakeppni
sem bætist aftan á og það er, held
ég, vilji allra þjálfara að leikjum sé
fjölgað. Það eru svo skiptar skoð-
anir hvaða aðferð sé best við það
en ég held að það sé flott að prófa
þetta fyrirkomulag og sjá hvernig
gengur. Ég held að allir séu spenntir
fyrir því. Hvort að þetta sé hin full-
komna lausn á eftir að koma í ljós,
það gætu aðrar lausnir komið seinna
en mér finnst fínt að prófa þetta og
sjá hvernig það gengur.
Svo lengir þetta mótið og maður
fær vonandi að sjá að ungu mönn-
unum verði gefnir fleiri sénsar til
að spila, kannski meira en áður. Við
erum búnir að spila óvenju mikið
á uppöldum strákum, allt að 60%
leiktímans hefur farið til leikmanna
sem eru uppaldir í félaginu. Það er
ofboðslega hátt hlutfall og er í raun
helmingi hærra hlutfall en hjá þeim
liðum sem eru best í að ala upp leik-
menn í Noregi. Við höfum verið
að gefa okkar strákum mikinn
séns í vetur og núna getum við
horft á tímabilið þannig að menn
séu að fá nýja áskorun. Það er að
verða meiri samkeppni um stöður
þegar núna þegar tímabilið er að
byrja og menn að koma til baka –
vonandi stíga þessir strákar upp,
allir sem einn, og vaxi og eflist með
verkefninu.“
Siggi segir það líka vera mjög
spennandi að sjá fram á að hafa
stuðningsmenn á leikjum en þeir
hafa verið af sárlega skornum
skammti í Covid-faraldrinum. „Það
er öðruvísi að spila fyrir framan
þúsund manns en þegar það eru
engir áhorfendur. Það gefur deildinni
mikið skemmtilegri blæ og okkur
hlakkar til þess.“
Maður veltir fyrir sér með því að
lengja tímabilið svona og fjölga
leikjum, vantar ekki meiri breidd
í liðið?
„Jú og við erum einmitt að vinna
í að fjölga leikmönnum. Við höfum
náttúrlega selt frá okkur leikmenn
eins og Davíð Snæ [Jóhannsson] til
Lecce, Björn Boga [Guðnason] til
Heerenveen og svo Ástbjörn Þórð-
arson í FH. Í staðinn verðum við
að styrkja liðið eitthvað og fá menn
inn sem hafa einhverja reynslu og
koma meira jafnvægi á liðið. Við
höfum gert það með mönnum eins
og Dani Hatakka, finnskum hafsent,
og Patrik Johannesen, A-landsliðs-
manni frá Færeyjum en þeir passa
mjög vel inn í liðið okkar. Þar að
auki höfum við fengið efnilega
leikmenn frá öðrum liðum, eins og
Ásgeir Pál Magnússon sem kemur
með góða reynslu úr 2. deildinni
og verður gaman að sjá hvernig
spjarar sig í sumar. Svo fengum við
Erni Bjarnason úr Leikni og Sindri
Snær [Magnússon] sneri aftur en
hann er reyndar búinn að vera
óheppinn með ökklameiðsli. Við
söknum hans en Sindri er búinn að
vera duglegur í endurhæfingunni og
hlakkar til að komast inn á völlinn
aftur og spila fyrir Keflavík. Ég er
ánægður með þær styrkingar sem
við höfum fengið, samt vantar okkur
aðeins fleiri. Við héldum að við
myndum eiga náðuga daga á leik-
mannamarkaðnum en bæði þessi
miklu meiðsli í hópnum og svo að
missa leikmenn frá okkur sem voru á
samningi þegar að við fórum við inn
í undirbúningstímabilið hefur sett
strik í reikninginn. Við seldum leik-
menn og þurfum að fá aðra í staðinn
og það er áskorun að finna rétta leik-
mennina sem passa inn í það sem
við erum að gera en við höfum til
ellefta maí og ætlum að vanda valið.“
Þið takið nú varla mark á þeim
bölspám (að Keflavík falli) sem
hafa verið að birtast í fjölmiðlum
undanfarið?
„Nei, við höfum fulla trú á okkur
sjálfum og liðinu. Við vorum náttúr-
lega bara einu stigi frá fallsæti í fyrra
en við sýndum það með frammi-
stöðu okkar í bikarkeppninni [þar
sem Keflavík komst í undanúrslit] að
á góðum degi og allir eru heilir erum
við jafngóðir og jafnvel betri en flest
lið í deildinni. Það var lærdómurinn
á síðasta ári að þegar vantaði fjóra,
fimm leikmenn í liðið þá var
bilið orðið of mikið til að veita
sterkustu liðunum samkeppni.
Við vorum í kringum sjötta
sæti um mitt mót en svo dalaði
það aðeins þegar við fórum að
missa menn í meiðsli.“
Mikil tilhlökkun
fyrir tímabilinu
Siggi segir að öll liðin séu búin að
vera að styrkja sig og hann telur
að deildin eigi eftir að vera tals-
vert sterkari í ár en á síðasta ári.
Hann segir önnur lið hafa verið að
nota sjónvarpspeninginn sem þau
fengu í fyrra til leikmannakaupa en
af öllum liðunum í Bestu deildinn
hafi Keflavík sennilega úr einna
minnstu að moða. „Þannig að við
þurfum helst að detta niður á ein-
hver kjarakaup, finna leikmenn sem
geta sprungið út með okkur. Svo er
það áskorun að halda þeim áfram ef
það gerist.
Við verðum bara að sníða okkur
stakk eftir vexti,“ segir Siggi; „og
taka eitt skref í einu. VIð byggjum
upp liðið jafnt og þétt, bæði innan
frá með því að gefa uppöldum leik-
mönnum tækifæri, öðlast reynslu
og gera mistök til að læra af, svo
utan frá með því að styrkja hópinn
með góðum og reynslumiklum leik-
mönnum.
Annars hlakka ég mikið til
mótsins. Við eigum erfiða byrjun,
fyrsti leikur verður útileikur á móti
Breiðabliki á þriðjudaginn (19. apríl
kl. 19:45) og svo eigum við Val heima,
þá Víking og KA úti. Einhvern
tímann verðum við að mæta þessu
sterku liðum líka við gerum bara
eins vel og við getum – mér sýnist
allir vera staðráðnir í að standa sig í
sumar og það stefna í að við verðum
með lið sem spilar skemmtilegan
fótbolta. Svo vona ég að stuðnings-
mennirnir séu búnir að fá nóg af
inniveru út af Covid og verði dug-
legir að mæta á völlinn til að styðja
við bakið á liðinu. Það munar um
tólfta manninn.“
– SEGIR SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON,
ÞJÁLFARI MEISTARAFLOKKS KARLA Í
KNATTSPYRNU HJÁ KEFLAVÍK SEM ER
SPÁÐ FALLI Í SUMAR.
Við höfum fulla trú á okkur sjálfum– en það munar um tólfta manninn
Fyrirkomulag keppninnar í efstu
deild karla í knattspyrnu, Bestu
deildinni, verður með öðru sniði
í ár en áður. Fyrst verða leiknar
hefðbundnar 22 umferðir þar sem
öll lið mætast á heima- og útivelli.
Eftir það verður deildinni skipt í
efri og neðri hluta, sex efstu liðin
annars vegar og sex neðstu liðin
hins vegar, þar sem liðin leika
fimm umferðir til viðbótar.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Sindra Snæ hlakkar til að komast inn á völlinn
aftur en hann hefur glímt við meiðsli á ökkla.
Æfing hjá meistaraflokki karla. Haraldur Guðmundsson,
aðstoðarþjálfari, sýnir að hann hefur engu gleymt.
VF-myndir: JPK
Tólfti leikmaðurinn kemur ekki til með að
þurfa að fela sig á bak við grímu í sumar.
sport