Víkurfréttir - 13.04.2022, Side 23
Það skein gleðin úr vonarstjörnum
íslensks körfuknattleiks sem tóku þátt
í Nettómótinu í Reykjanesbæ um síðustu
helgi. Mótið var haldið í íþróttahúsum
bæjarins og að auki var var reistur
glæsilegur skemmtigarður í Nettó
höllinni þar sem hægt var að fá
útrás í ótal hoppuköstulum.
Jóhann Páll Kristbjörnsson, ljósmyndari Víkur
frétta, fangaði stemmninguna og eins og sést
á meðfylgjandi myndum ríkti mikil kátína meðal
keppenda og þá mátti sjá stórkostleg tilþrif í
bland við hæfilegt kapp.
Enn fleiri myndir má sjá á vf.is
LÍF OG FJÖR Á NETTÓMÓTINU
Nokkrar stöður tollvarða í Reykjavík og í Keflavík eru lausar til
umsóknar hjá Skattinum - Tollgæslu Íslands. Störf tollvarða eru
fjölbreytt og lifandi og þau henta fólki af öllum kynjum.
Í tengslum við ráðningu tollvarðar þarf að þreyta inntökupróf/þrekpróf,
en nánari upplýsingar um það er að finna á vefslóðinni
https://www.skatturinn.is/um-rsk/tollskoli-rikisins/inntokuprof/inntokuprof
Starf tollvarðar felur m.a. í sér:
• Greiningu á áhættu í vöru- og farþegaflæði og úrvinnslu gagna.
• Sérhæfðar leitir, svo sem í bílum, með hundum, gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv.
• Almennt tolleftirlit á vettvangi, svo sem í skipum, flugvélum, bílum, gámum,
póstsendingum og með farþegum.
Menntunar– og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða menntun sem má meta til jafns við það.
• Greiningarhæfileikar.
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Gott andlegt og líkamlegt atgervi.
• Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Almenn ökuréttindi.
Umsækjendur um störf tollvarða þurfa auk ofangreinds að hafa náð 20 ára aldri sem og
að geta framvísað hreinu sakavottorði.
Reynsla og þekking úr öðrum störfum nýtist vel í starfi tollvarða. Háskólamenntun
er einnig eftirsóknarverð þar sem í mörgum verkefnum er áhersla á greiningarhæfni,
talnalæsi, tölfræði, skýrslugerð og tölvufærni.
Umsóknir skulu fylltar út á vef Starfatorgs, starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar
upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf
að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Tollvarðafélags Íslands. Um starfskjör, réttindi og skyldur
gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Nánari upplýsingar um störfin í Reykjavík veitir Baldur Búi Höskuldsson í síma
442-1000 eða með tölvupósti á baldur.b.hoskuldsson@skatturinn.is, en upplýsingar
um störfin í Keflavík veitir Guðrún Sólveig Ríkharðsdóttir í síma 442-1000 eða með
tölvupósti á gudrun.s.rikardsdottir@skatturinn.is
Tollverðir
Spennandi störf í lifandi umhverfi
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is
Golfklúbbur Suðurnesja auglýsir eftir fólki til starfa
LEIRUKAFFI GOLFSUMARIÐ 2022
Starfið felur í sér afgreiðslu í veitingasölu
og golfbúð, vinnu á grilli, þrif o.fl.
Við leitum eftir glaðlyndum og þjónustu-
lunduðum einstaklingum 18 ára og eldri sem
búa jafnframt yfir hæfni í mannlegum sam-
skiptum, stundvísi, ábyrgð og samviskusemi.
Reynsla af þjónustustörfum er kostur.
Byrjað verður strax að vinna úr umsóknum
og eru áhugasamir hvattir til að sækja um sem fyrst.
Umsóknir sendist á leirukaffi@gs.is.
Nánari upplýsingar í sama netfangi eða í síma 421-4100.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 23