Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 17
Tónlistarkonan Elíza Newman gaf út breið-
skífuna Wonder Days þann 28. október. Breið-
skífan samanstendur af tólf frumsömdum
lögum en þau voru samin og tekin upp þegar
Elíza var að vinna sig upp úr erfiðum veik-
indum. „Ég átti ekkert inni í bankanum af orku
en þessi tónlist verður til þar. Það bjargaði
einhvern veginn sálinni minni, ég lifnaði við,“
segir Elíza.
Hún segir að veikindi sín hafi verið ákveðinn
núllpunktur í lífi hennar en jafnframt veitt
henni innblástur að plötunni. „Þetta sprettur
allt frá hugsuninni um það hvort það komi
eitthvað þegar maður er algjörlega búinn á
því. Fyrst samdi ég fullt af einhverjum hræði-
legum lögum en svo allt í einu kom þessi tíma-
punktur þar sem maður áttar sig á að þetta er
ennþá þarna. Það er ótrúlega mikið þakklæti
og einlægni sem fylgir því. Innblásturinn er í
rauninni bara sá að þetta sé þarna ennþá. Ég
er að semja um von og að maður eigi alltaf
að halda áfram, ekki gefast upp og að trúa á
góðu hlutina. Þetta er mjög jákvæð, opin plata
jafnvel þó hún hafi verið samin á erfiðu tímabili,
það er mjög gott í hjartað,“ segir Elíza.
Notar tónlist til þess að tjá sig
Elíza hefur alltaf haft gaman af tónlist enda
gefur hún henni leiðir til að opna sig. „Ég hef
alltaf notað tónlist til að tjá mig og var frekar
feimið barn en í tónlistinni gat ég alltaf fundið
einhverjar leiðir til þess að opna mig sem svo
þróaðist ennþá meira þegar ég varð unglingur
og stofnaði hljómsveit og fór að semja lög.
Tónlist hefur alltaf talað rosalega til mín frá
því ég man eftir mér, ég get ekki ímyndað mér
heiminn öðruvísi en fullan af tónlist.“
Elíza segir að á nýju plötunni sé hún að fara
aftur í kjarnann þar sem gleðin við að búa til
tónlist er í forgangi. „Ég er að njóta þess og er
ekki að afsaka það. Þó ég sé ekki tvítug lengur,
þá þýðir ekki að ég, og konur almennt, vilji ekki
skapa eða búa til hluti. Ég ætla að standa með
þessari plötu og njóta þess að hafa búið hana
til og vonandi hefur einhver gaman af þessu
líka, það er bara bónus. Ég hlakka til að spila,
ég ætla að flytja þetta og leyfa plötunni að lifa
sínu lífi,“ segir hún.
Óður til kvenna
Lag hennar Ósýnileg, sem er að finna á breið-
skífunni, hefur vakið athygli fyrir kröftugan
boðskap. Hugmyndin að laginu kviknaði í fram-
haldi af #METOO byltingunni og segir Elíza
það endurspegla líf kvenna í nútímasamfélagi.
Lagið öðlaðist meiri dýpt eftir veikindi sem hún
gekk í gegnum á Covid tímabilinu en því fylgi
mikil einangrun sem leiddi til þess að henni
fannst hún í raun ósýnileg.
„Þetta lag er eitt af þessum lögum sem kom
bara til mín. Stundum gerist það, maður er
kannski að hugsa um eitthvað málefni og þetta
sinn var ég að hugsa um #METOO byltinguna
og allt sem var að koma fram og fór að velta
fyrir mér hvernig þetta endurvarpaðist á
mig sem tónlistarmann og hvernig allt er að
breytast. Ég samdi þá þetta lag sem kona yfir
fertugt, ennþá að skapa og gera hluti. Þetta
var mín leið til þess að koma þessum skila-
boðum til skila - að við eigum öll rétt á því að
vera hérna og eigum öll að taka pláss, ungar
konur, eldri konur. Ég hugsaði með mér, annað
hvort er þetta hræðilegt lag eða rosalega flott
lag. Lagið segir manni svolítið að standa með
því sem maður gerir og taka pláss og því ákvað
ég bara að láta það standa eins og það er og er
mjög ánægð með það,“ segir Elíza.
Hún segir viðtökurnar á laginu hafa verið góðar,
þá sérstaklega frá konum. „Þær taka mjög
sterkt í þetta og segja mér að þetta tali til sín
og ég er rosalega glöð að heyra það. Því þetta
er eiginlega samið til kvenna sem hvatning
eða óður til kvenna,“ segir Elíza.
Tími rokkara konunnar
Tónlistarmyndbandið við lagið er tekið
úr heimildarmyndinni #Hashtag Tour,
eftir Margréti Seemu Takyar, sem
kemur út á næsta ári en myndin
gerist á sama tíma og metoo
braust út árið 2017. „Margrét
tók myndina sem er framan á
plötunni. Við vorum búnar
að vera að ræða það að
gera myndband saman
líka og þegar hún
hlustaði á plötuna
varð hún fyrir svo
miklum hughrifum
af þessu lagi
og fékk hug-
myndina að
þessu. Hún
hringir
svo í
mig og
segist
vera
búin
að gera
mynd-
bandið.
Hún átti
þetta atriði
úr myndinni og fannst það passa sem mynd-
band fyrir þetta lag og það kom svona ótrúlega
vel út og gaf laginu aðra vídd,“ segir Elíza. „Ég
leik mér oft að fyrirfram ákveðnum hugtökum
og klisjum í verkum mínum,“ segir Margrét
og bætir við: „Hérna skipti ég út gamla karl
rokkaranum einan á hótel herberginu sínu, sem
við höfum séð allt of oft í allskonar myndum,
og ákvað að tími rokkara konunnar væri komin
til að taka sitt pláss og gera þetta á sinn hátt.“
Verður að vera gaman
Elíza segist stefna að því að koma fram og
spila plötuna á næstunni en einnig að spila
með bandinu Kolrassa Krókríðandi sem gerði
garðinn frægan á
sínum tíma.
„Það eru
nokkrir
hlutir að gerast í tónlistinni hjá mér
á næstunni. Mig langar að spila
plötuna og koma fram. Þetta er í
fyrsta skiptið sem ég er að spila
á ensku, þannig að það getur vel
verið að ég fari eitthvað með þetta
til útlanda líka ef það er stemning
fyrir því. Kolrassa vaknaði úr
værum blundi en við vorum að
spila fyrir stuttu síðan og erum að
fara að spila á AirWaves helginni
líka. Við höfum aðeins verið að
dunda okkur við það að semja og
það má búast við því að við séum
að fara að spila meira. Það er líka
þannig að það verður að vera
gaman, við erum búin að gera
allt hitt. Þannig að ef það heldur
áfram að vera gaman, þá getur
vel verið að það komi eitthvað
nýtt frá okkur,“ segir Elíza
að lokum.
SAMDI BREIÐSKÍFU
Á NÚLLPUNKTI
ELÍZA NEWMAN MEÐ WONDER DAYS
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.isSMELLTU Á MYNDSKEIÐIÐ TIL AÐ HORFA OG HLUSTA
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
HÉR MÁ NÁLGAST TÓNLIST ELÍZU Á STREYMISVEITU
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 17