Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 12
Síðustu daga októbermánaðar
var eitthvað skuggalegt í gangi
í skólum á Suðurnesjum. Upp-
vakningar, blóðslettur, hræðileg
fréttablöð og auglýsingar um
útsölur á líkamspörtum prýddu
veggi skólanna á uppskeru-
hátíðum vegna verkefnisins
Skólaslit 2, Dauð viðvörun. Á
hverjum degi í október kom út
nýr kafli í sögunni sem birtist á
heimasíðunni skolaslit.is. Nem-
endur grunnskólanna fylgdust
grannt með framgangi hroll-
vekjunnar út mánuðinn og gerðu
hin ýmsu verkefni samhliða því.
Víkurfréttir fóru á stúfana og
skoðuðu þau flottu verkefni sem
nemendur grunnskólanna hafa
verið að vinna í síðustu vikur.
Hræðilegar myndir og skreytingar
mátti finna á göngum skólanna
og mikið var um metnaðarfull
og flott verkefni. Sumir skólarnir
tóku upp á því að hafa svo kallað
Skólaslitaráð þar sem meðlimir
fengu það verkefni að upplýsa
hina nemendurna, koma með
hugmyndir að verkefnum og
kynna verkefni fyrir samnem-
endum. Verkefni skólanna voru
eins misjöfn og þau voru mörg
en draugahús og hin ýmsu lista-
verk mátti finna víða á göngum
skólanna. Þess má geta að sjötti
bekkur Myllubakkaskóla gerði
nokkuð frumlegt verkefni þar
sem nemendur bekkjarins höfðu
búið til fréttablaðið FRÉTTASLIT
(sjá á forsíðu Víkurfrétta) en þar
var blað Víkurfrétta notað sem
innblástur fyrir fréttaefni og útlit
blaðsins.
viðvörun aflýst
Dauðri
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Nánar verður fjallað um Skólaslit 2
í næsta þætti af Suðurnesjamagasíni.
12 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM