Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 24
Mundi
Hvort er betra að fara í pottinn
eða á Paddy’s til að hitta Jodie?
TÍMABUNDIÐ LEYFI TIL SÖLU SKOTELDA Í SMÁSÖLU OG LEYFI TIL SKOTELDASÝNINGA
Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu og leyfis til skoteldasýninga frá og með
28. desember 2022 til og með 6. janúar 2023.
Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölustað skotelda í smásölu í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum fyrir og
eftir áramót 2022–2023, ber að sækja um slíkt leyfi til lögreglunnar á Suðurnesjum í síðasta lagi miðvikudaginn 30. nóvember fyrir
kl. 14:00.
Leyfi eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda.
Athugið:
• Umsóknaraðilar skila inn umsókn í síðasta lagi 30. nóvember
2022, til lögreglu að Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ.
• Fylgigögn umsókna skulu berast slökkviliði viðkomandi sveitarfélags.
• Umsóknir um sölustaði sem berast eftir 30. nóvember
2022 verða ekki teknar til afgreiðslu.
• Umsóknaraðilar skulu vera komnir með leyfin í
hendur föstudaginn 23. desember 2022.
• Óheimilt er að hefja sölu, nema söluaðilar hafi
í höndum leyfisbréf frá lögreglu.
• Söluaðilar sæki leyfisbréf á lögreglustöðina við Hringbraut
föstudaginn 23. desember 2022, fyrir kl. 12:00.
Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
1. Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn viðkomandi
slökkviliðs til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaði.
Einnig liggi fyrir leyfi lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef um-
sækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að
fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun
skotelda.
2. Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga
frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, föstudaginn 16. desember 2022 svo
lokaúttekt geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu
vera minnst 25 fermetrar og búnir samkvæmt kröfum slökkviliðs við-
komandi sveitarfélags.
Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað, sem hefur sérþekkingu á skoteldum og hefur náð 18 ára aldri.
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að sala og meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember 2022 til og með 6. janúar 2023.
Gjald fyrir sölustað skotelda í smásölu er kr. 6.000, skoteldasýningar er kr. 11.000
og greiðist við innlögn umsóknar hjá lögreglu. Sækja þarf um skoteldasýningar með fimm vikna fyrirvara.
Athugið: Kynningarfundur með væntanlegum umsækjendum verður
haldinn miðvikudaginn 30. nóvember 2022, kl. 18:00 í húsakynnum
Brunavarna Suðurnesja að Flugvellir 33, Reykjanesbæ.
Reykjanesbær 2. nóvember 2022.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum.
Brekkustíg 39 - 260 Reykjanesbæ - Sími 444 2200
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Börnin í Innri-Njarðvík eru dugleg
að klæða sig upp á hrekkjavökunni
og ganga á milli húsa og bjóða upp
á grikk eða gott. Yfirleitt fá börnin
gott, því fullorðnir taka enga áhættu
þegar kemur að grikk barnanna.
Meðfylgjandi myndir tók ljósmyndari
blaðsins, Hilmar Bragi, af flottum
krökkum og fylgdarfólki en öll gáfu
þau góðfúslegt leyfi fyrir mynda-
tökunni. Grikk eða gott?
Fyrirmyndarlandið
Eins og ekki hefur farið framhjá
dyggum lokaorðalesendum fluttum
við fjölskyldan til Parísar fyrir rúmu
ári. Við lifum eins og blóm í eggi,
ég hef sagt það og segi það enn að
ég er algjör forréttindapési. Ég er
í draumavinnunni minni þar sem
ég hef tækifæri til að hafa áhrif á
stefnumótun og þróun mikilvægra
málaflokka og leiða fólk saman sem
allt hefur það að meginmarkmiði
að gera heiminn að betri stað. Ég
er umkringd fólki sem bætir mig
upp alla daga og veit miklu meira
en ég um alls konar. Þannig fæ ég
tækifæri til þess að læra nýja hluti,
aðferðir, kynnast stórkostlegu fólki
og ferðast til framandi menningar-
heima. Ég segi bara eins og Gummi
Ben forðum „…aldrei vekja mig af
þessum draumi“.
Það skemmir svo ekki fyrir að
vinnustöðin er í París, þvílík borg.
Og okkur fjölskyldunni líður vel,
allir strákarnir komnir í spennandi
skóla og verkefni og Lubbi orðinn
algeltandi á frönsku. Tempóið er
annað og við litla fjölskyldan náum
einhvern veginn að kjarna okkur, svo
ég grípi til Hjallastefnuorðalags. Það
er hollt að taka sig upp og skoða sig
um í heiminum.
Auðvitað saknar maður fólksins
síns og vina…sem eru þó búin að
vera ótrúlega dugleg að koma og
heimsækja okkur. En svo saknar
maður líka allskonar skrýtinna
hluta, mjög „random“ hluta sem af
einhverjum ástæðum fást ekki hér.
Margt af því er auðvitað matartengt
– og hreint ótrúlegt að í þessari miklu
matarkistu, Frakklandi, finnum við
ennþá ekki smjör sem toppar ís-
lenskt smjör, við flytjum Chilli Mæjó
frá Fabrikkunni með okkur í lítratali
og íslenski brauðosturinn er ein-
faldlega alltaf bestur. Maður verður
auðvitað aldrei meiri Íslendingur en
þegar maður býr í útlöndum. Það er
til dæmis, eins og ég hef áður gert að
umtalsefni, einhver „þetta reddast“
þjóðarsál sem ég sakna mjög í Frökk-
unum – það að ganga bara í verkin
án þess að ofhugsa þau og láta vaða.
Svo eru löngu sturturnar, heitur mið-
stöðvarofn og opinn gluggi eitthvað
sem mann dreymir um.
En það sem við höfum hér og ég
myndi sakna er í fyrsta sæti auð-
vitað veðrið, það eru þvílík lífsgæði
í því fólgin að búa við logn og þægi-
legt hitastig nánast allt árið, geta
borðað úti á svölunum og gengið í
vinnuna. Svo er það bíllausi lífstíllinn
sem við tókum upp alveg óvart. Við
ætluðum að kaupa okkur bíl þegar
við værum búin að koma okkur fyrir,
en áttuðum okkur á því mörgum
mánuðum síðar að við hefðum aldrei
þurft á bíl að halda. Á þessu rúma
ári höfum við tvisvar leigt okkur bíl,
annars förum við allra okkar ferða
gangandi, í metró eða í leigubíl þegar
það þarf. Og það eru lífsgæði.
Fyrirmyndarlandið er svo eitt-
hvert sambland af þessu öllu saman
– þar sem menningarheimarnir
mætast.
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Upplifðu – Vertu – Njóttu
OPNUNARTÍMAR
Mán–Fös 12–18
Lau 11–16
Hólmgarður 2A
230 Keflavík
s. 861 7681
marionehf@gmail.com
Við erum hér!