Rökkur - 01.09.1927, Blaðsíða 8
54
Rökkur.
hjartagæsku fólks vestra, en læt þetta nægja, þó
mér sé kunnugt um, að á hverjum þeim stað, sem
eg þekki, þar er margt fólk, sem æ er fúst til að
greiða fyrir náunganum. Og eftirtektarvert fanst
mér, að ef getið var t. d. í blöðum um einhvern, sem
hjálpar var þurfi, þá var þess oft getið, að einhver
væri að reyna að útvega hinum hjálparþurfa at-
vinnu. Enda er það sannasta og skynsamlegasta
hjálp hverjum manni eða konu, sem góða heilsu
hefir. K. F. U. M. deildir eru í hverjum bæ vestra
og er minna lagt stund á að troða í menn kristileg-
um fróðleik, heldur er aðaláherslan lögð á að veita
mönnum tækifæri á að iðka íþróttir og böð og að
greiða fyrir mönnum að fá atvinnu. K. F. U. M.
lætur kenna ýmislegt nytsamlegt í skólum sínum.
Eg vík nú aftur sögunni að starfi mínu hjá Fred
Smith, er var orðhákur talsverður, en prúðmenni
að öðru leyti og drengur góður. Er á leið sumar
varð hann að draga inn seglin og varð hann að
segja mér og öðrum upp vinnunni, nema 'bróður sín-
um, enda er lítið að gera í Pittsfield í þessari grein
á vetrum, því þar er snjóþungt mjög og bifreiðar
þá lítið notaðar og háveturinn alls ekki.
Vetur var ekki langt undan og okkur óaði við
vinnuleysisvetri, söfnun skulda o. s. frv.
Var þá nær enga vinnu að fá í Pittsfield, sem víð-
ar, enda hefir meginþorri íbúanna viðurværi sitt frá
General Electric og þegar þar er alt í hálfgerðu dái,
er ekki í önnur hús að venda. Leitaði þá fólk burt í
hópum, það, sem ekki hafði ráð á að bíða vinnunnar
heima. Okkur langaði ekki burt frá Pittsfield, en þó
varð það úr að við fórum, vinnuleysis eins vegna,