Rökkur - 01.09.1927, Blaðsíða 17

Rökkur - 01.09.1927, Blaðsíða 17
Rökkur. 63 og vinsælli konungslijón í Evrópu. Snemma var Albert I. ljóst í hverri hættu Belgía myndi verða stödd, ef ófriður yrði milli Frakka og þjóðverja. þegar þýskaland svo krafðist þess þ. 2. ágúst 1914, að stjórnin leyfði, að þýskir herir fengju að fara yfir Belgíu, þá var þvi harðlega neit- að. Vakti það fádæma athygli um allan heim, hve fást þeir stóðu á rétti sínum og hve vasklega þeir vörðust gegn ofureflinu, og mun fátt, sem í ófriðinum gerðist, hafa vakið aðra eins samúðaröldu og hrifni í hlutlausu lönd- unum og svar Belgíumanna. Konungurinn tók nú að sér yfirstjórn hersins og var nú búist til varnar. Er sú vöm heimsfræg og er álit fróðra manna, að ef þeim hefði eigi tekist að tefja eins lengi og raun varð á fyrir þjóðverjum við Liége og víðar, þá hefði þjóðverjar vaðið inn í Frakk- land áður en Frakkar gátu búist til varnar svo trygt væri. Sumir hernaðarsöguritarar halda því fram, að ef Belgíu- menn hefðu ekki varist svo vasklega og tafið framsókn þjóðverja, þá hefði þeir unnið á Frökkum innan 3—6 mán- aða. A undanhaldinu stjórnaði Albert hernum vel og slapp þ. 9. okt. úr Antwerpen, sem þjóðverjar þá sátu um, með meiri hluta hersins. Herinn tók þá að sér vörn á þeim hluta Belgíu, sem eigi var í hershöndum og hélt honum, uns belgiski herinn hóf sókn sína haustið 1918. þ. 1. okt. hélt Albert konungur innreið sína með hernum í Ostende. þ. 20. nóv. í Antwerpen og þ. 23. í Bruxelles (Brussels eða Brussel). Var honum allstaðar tekið með fádæma fögnuði. Mátti svo heita, að hann og þjóð hans hefði samúð alls heimsins í raunum sínum á styrjaldarárunum. Er Albert I. talinn eitt af mikilmennum vorra daga. A n d e n n e. Borg í Namur-héraði við Meuse, ib. á 9. þúsund. Bærinn er við járnbrautina á milli Liége. og Namur, 40 km. fyrir suðvestan Liége. Járnvinslu-, marm- ara-, og pappírsverksmiðjur. Koparnámur. Leirvarnings- gerð. þjóðverjar brendu borgina þ. 19. ágúst 1914. Anderlecht, ein af útjaðraborgum Bruxelles, að suð- vestan. Anseele, Eduard, f. ’1856, kunnur jafnaðarmaður. Lærði prentiðn, en varð siðar rithöfundur og ritstjóri.

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.