Rökkur - 01.09.1927, Side 14

Rökkur - 01.09.1927, Side 14
60 Rökkur. frjálslegra, sérstaklega fyrir þá, er ferðast með ung börn. Gasvél, „vaskur“, ískældur skápur, áhöld til þess að þvo upp og þurkur voru í litlu eldhúsi í öðr- um enda vagnsins. Var snyrtilega um þetta gengið af ferðafólkinu. Þarna gátu menn soðið sér egg eða steikt, hitað sér te eða kaffi eða hitað pela handa krökkum sínum o. s. frv. Sæti eru þannig gerð, að búa má úr þeim rúm, og annast negi’a-þjónn það. Er einn um nokkra vagna. Eru látin hrein lök og koddaver í hvert „rúm“ í upphafi ferðarinnar. Þykk fyrirhengi eru svo fyrir dregin og geta menn svo háttað í makindum eins og heima hjá sér. Samferða- fólkið var flest breskir innflytjendur og var alúð- legt fólk. Við komum til Winnipeg seint um kvöld. Frost var allmikið og snjór yfir öllu. Frostið fanst okkur nap- urt í fyrstu. Þórður bróðir minn tók á móti okkur. Hann hafði eigi breyst til verulegra muna, þó hann hafi nú dvalið lengi vestra. Fór hann í stríðið 1915 og var illa særður tvisvar, sérstaklega í seinna skift- ið, og lá meira en ár í sárum sínum. Gaman þótti mér að hitta Þórð eftir öll þessi ár og höfðum við um margt að ræða fyrstu dagana; þessa vikuna var íþróttamót mikið í Winnipeg og var því erfitt að fá inni nokkurs staðar. Urðum við að fara á gistihús fyrsta kvöldið, en með aðstoð Lögbergsmanna feng- um við húsnæði von bráðar. Reyndu þeir að greiða fyrir okkur eftir mætti og mega véstur-íslenskir blaðamenn það eiga, að þeir eru tnjög hjálpsamir, ef aðstoðar þeirra er leitað. Húsnæði fengum við í húsi Sigurðar Þorsteinssonar (Thorsteinson) málara á Simcoe St. Leigðum við lengst af hjá honum

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.