Rökkur - 01.09.1927, Side 18
Rökkur.
64
Hann heíir setið á þjóðsamkundu lands síns og verið leið-
togi hægfara jafnaðarmanna. Vann hann mikið og þarft
verk í þarfir alþýðu manna í Ghent (Gent, Gand), en þar
var hann fæddur og þar hefir hann lengst alið aldur sinn.
Bækur.
Iðunn Xl„ 2. hefii. Efni: ísland fullvalda riki, eftir Sigurð
Þórðarson, fyrverandi sýslumann. Hvalveiðar í Suðurhöfum,
eftir Magnús Jónsson. Nóttin dregur, kvæði eftir Böðvar frá
Hnifsdal. Húsið hennar Evlaliu, smásaga eftir Henry Harland,
þýdd af Sigurði Gunnarssyni. Þjóðmálastefnur, í itgerð, ágætlega
skrifuð, eft'ir Jónas Þorbergsson ritstjóra.
Ritstjóri Iðunnar er nú Arni Haligrimsson og heldur hann
vel á lofti heiðri hennar.
Eimreiðin XXXIII., 2. h. Efnið i þessu hefti er fjölbreytt og
skemtilegt. Ber sérstaklega að nefna eftirtektarverða grein um
Þorgeir Ljósvetningagoða, eftir dr. Valtý Guðmundsson og
ágæta grein um Islandsvininn Dr. W. A. Craigie, málfræðinginn
fræga. Sú grein er eftir Snæbjörn Jónsson. Loks má nefna fróð-
legt yfirlit með myndum um ríkjaskipun i Evrópu nú. Ritsjáin
er góðra gjalda verð að vanda. Eru fáir ritdómar í henni, en
jtarlega skrifað um hverja einstaka bók. Ýmislegt fleira^er i
heftinu, en hér er hið merkasta talið.
Afgreiðsla Rökkurs er fyrir nokkru flutt heim til útgef-
anda, í hús Jóhanns Ólafssonar við Garðastræti. Er hún
opin kl. 3—5 og 8—9 síðd. alla virka daga. Sími 1558.
Til áskrifendanna. Framtíð Rökkurs er undir skilvísi á-
skrifendanna komin. þeir, sem eigi hafa greitt fyrir þenna
árg., eru því beðnir að gera það nú þegar. VI. árg. hefst
með árinu 1928 og kostar aðeins kr. 3.00 alt árið (12 blöð).
Efni verður svipað og áður, mikið af æfintýrum og mynd-
um. — I næsta hefti verður grein með mörgum myndum
um Jóhannes glímukappa Jósefsson.
Prentsmiðjan Actn.