Rökkur - 01.06.1935, Page 2

Rökkur - 01.06.1935, Page 2
82 R O K K U R ættum. Hann gerðist yfirforingi í stórskotaliðinu og árið 1893 varð hann kapteinn í herráðinu. Hann var ákærður fyrir að hafa látið liernaðarleg leyndarmál í liendur erlendri þjóð og þegið fé fyrir. Var liann leiddur fvrir lierrélt og í desember 1894 var hann dæmdur, sem fyrr segir, til ævilangrar dvalar í fanganý- lendunni á Djöflaey undan Cay- enne-strönd og var áður sviftur tignarmerkjum sínum, cins og venja er, þegar hermenn eru sekir fundnir um landráð, sverð lians var tekið af honum og brotið, heiðursmerki hans og jakkaeinkenni rifin af honum. Fór sú atliöfn fram þ. 5 janúar 1895. Alt af meðan á rannsókn málsins og réttarhöldunum stóð, liélt Dreyfus ákveðið fram, að liann væri saklaus af þeim glæp, er hann var ákærður fyrir, og þ. 5. janúar, er hann var óvirtur svo sem að framan greinir, liélt. hann því eindregið fram, að hann væri algerlega saldaus. Miklar æsingar voru í Frakk- landi út af þessu máli og það voru sannast að segja sárfáir, sem þá trúðu á sakleysi Dreyf- usar. En nokkrir vinir lians og þróðir hans Matliieu Dreyfus, efuðust aldrei um það, að hann hafði vcrið dæmdur saklaus. Árið 1896 atvikaðist þannig, að Picquart ofursti, sem þá var yfirmaður eftirgrenslimarstarf- semi lierráðsins, komst að því, hvernig í öllu lá, og' að Dreyfus mundi saklaus. Ivomst hann að þessu, að því er fullyrt er, af tilviljun. Gerði hann kröfu til þess, að málið yrði tekið upp á nýjan leik. Þessari kröfu neitaði lierráðið. Urðu nú miklar deilur um málið og var það nú alment rætt um heim allan. Majór nokkur, Esterhazy að nafni, var grunaður um að vera sá, sem landráðabrotið hafði framið, en hann var sýknaður. Þótti rann- sóknin í því máli og meðferð þess öll stórhneykslanleg. Var það árið 1898, sem Esterhazy var sýknaður. En nú fengu vinir Dreyfusar óvænta liðshjálp. Skáldið heimsfræga Emile Zola gekk í lið með þeim og birti hina frægu grein sína, „J’accuse“ (Eg ákæri -—). 1 henni ákærði hann Esterhazv og' aðstoðarmenn hans fvrir glæp þann, sem Dreyfus var dæmdur fyrir. Zola var stefnt fyrir grein- ina og var dæmdur fyrir hana, en við rekstur þeirra mála sann- aðist, að lierréttinum 1894 hafði orðið margt á í sambandi við meðferð málsins, sem með engu móti var hægt að réttlæta. Auk þess sannaðist fyllilega að fölsuð sönnunargögn höfðu verið lögð fram gegn Dreyfusi. Vakti j>etta alt miklar æsingar í Frakklandi

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.