Rökkur - 01.06.1935, Qupperneq 13
R Ö K K U R
93
yðar göfgi,“ sagði flugmaður-
inn, „að vert væri að nota sér
það hvað þeir eru líkir. Paul
Jouperts hefir látið okkur i té
mjög mikilvægar upplýsingar
— mikilvægari en nokkur ann-
ar njósnari, sem starfar fyrir
okkur á þessum hluta vígstöðv-
anna. Og enska lierstjórnin
veit það. Sá, sem nær í Paul
Jouperts, dauðan eða lifandi,
fær 5000 franka. Tvisvar liafa
þeir handtekið hann, en í bæði
skiftin slapp hann. Allir deildar-
foringjarnir hafa mynd af lion-
um og nákvæma lýsingu. —
Hann hefir gert þeim mikið
ógagn.“
„Nú?“, spurði maðurinn með
lieiðursmerkin.
Flugmaðurinn fór að tala í
hvíslingum: ,
„Ef þeir nú fyndi lík Paul
Jouperts ?“
„Nú?“, sagði liinn aftur.
„Tillaga mín er þessi: Á
morgun, eins og þér vitið, ætla
Bretar að gera árás á hæð nr.
701, sem við höfum dregið lið
olckar frá, án þess þeir viti. Ef
þeir — að árásinni lokinni —
finna lík Paul Jouperts, 1 ann-
ari skotgrafaröð til dæmis, þá
munu þeir ekki rannsaka mál-
ið frekara. Eg veit hve óná-
kvæmir þeir eru. Eg þekki þá
frá því eg var í Oxford — um
tveggja ára skeið. Þar af leið-
andi getnr sá rétti Paul Jouperts
haldið áfram störfum sínum
fyrir okkur óáreittur — ef til
vill um langt skeið.“
Stóri maðurinn með heiðurs-
merkin fór að snúa upp á
skeggið og setti á sig spekings-
svip.
„Hvar er Paul núna?“, spurði
hann svo. ,
„Hann er sem stendur garð-
yrkjumaður í St. Elviseklaustri
skamt frá Mailleton-en-haut,
sem er, eins og þér vitið, í 100
metra fjarlægð frá aðalbæki-
stöð breska herforingjaráðsins“.
Yfirmaður flugmannsins fór
að ganga um gólf. Er hann nam
staðar sagði hann:
„Tillagan er ágæt, Hause-
mann. Það er að eins hængur á.
Bretar gerðu árásina, sem þér
mintust á, i dögun í morgun.“
„I morgun,“ sagði flugmað-
urinn undrandi.
„Já,“ svaraði hinn, „og það
kom okkur mjög á óvart. Við
höfum þegar hörfað úr fyrstu
varnarlínu. Við hörfum úr
annari varnarlínu kl. 11.50. Nú
er klukkan 10.15. En kannske
er enn tími til að framkvæma
áform yðar.“
Hann snéri sér við snögglega
að Sam, eins og slátrari, sem
virðir fyrir sér verðlaunaskepnu
á gripasýningu, og mælti:
„Já, þcir eru nauðalíkir. Það