Rökkur - 01.03.1938, Blaðsíða 2
34
RÖKKUR
AFKOMA
VESTUR-ÍSLENDING A.
„Hver er afkoma landa vestra
um þessar mundir?“
„Afkoma almennings vestra
hefir yfirleitt verið heldur slæm
og eiga erfiðleikarnir rót sina
að rekja til kreppunnar miklu,
sem skall á árið 1929, en nokk-
uð hefir úr ræst s.l. ár. Afkoma
íslendinga vestra er þó síst verri
en manna af öðrum þjóðum,
enda hafa þeir öll skilyrði til að
standast samkepni annara. Þeir
voru aldir upp við fremur
þröngan kost og erfið lífsbar-
átta vestra stælti þá og jók þol
þeirra og þeir eru vanir þvi að
móti blási. Siðastliðið ár var
hagstætt mörgum í Manitoba,
einkum bændum og fiskimönn-
um. Kornuppskera varð ágæt í
fylkinu og verðlag hátt á hveiti,
alt að einn dollar og 35 cents
mælirinn (60 pund), og flest-
ir seldu meðan verðið var hæst
og höfðu fyrsta flokks hveiti til
þess að senda á markaðinn.
Heyskapur gekk líka ágætlega í
Manitoba og varð nýting hin
besta. Fiskveiðar eru mjög
stundaðar í Winnipegvatni og
Manitobavatni, nálega eingöngu
af íslendingum, og var aflinn
óvanalega góður og verðlag
hátt, en það fer sjaldan saman.
En í Saskatchewan-fylki og Al-
berta-fylki, þar sem íslendingar
eru einnig allfjölmennir, eink-
anlega í Saskatchewan, varð
nærri alger uppskeruhrestur>
vegna þurka. Gátu bændur 1
Manitoha selt þangað mikið af
heyi, sem kevpt var góðu verði
með aðstoð hins opinbera.
HÁTT VERÐLAG.
ATVINNULEYSISSTYRKIR-
„Verðlag á nauðsynjum hefn'
h.ækkað og fer enn hækkand1
og hefir það vitanlega bitnað a
þeim, sem í borgunum búa og
eiga við atvinnuleysi að stríða-
Stjórnir fylkjanna og saiö'
handsstjórnin eru að verða &
tregari til þess að veita atvinnU'
leysisstyrki. Samhandsstjórni11
hefir viljað færa þá niður, e°
geta fylkisstjórnanna og borS'
anna er takmörkuð, ef stuðn'
ings sambandsstjórnarinnar
nýtur ekki í þessum efnum •
WINNIPEG.
„Er mikið aðstreymi fólks h
Winnipeg?"
„Vestra sem víða annarsstá
ar er þá sömu sögu að segja> a
fólk streymir til bæjanna. Ihua
tala Winnipegborgar er nú ha
á þriðja hundrað þúsund
mun íhúatalan standa nokku
i stað, enda reynt að sternn11
stigu við innflutningi fólks
borgina“.