Rökkur - 01.03.1938, Blaðsíða 14
46
R Ö K K U R
landabréf eru notuS í skólunum,
til þess aS gefa börnum og ung-
lingum hugmynd um „Siam fram-
tíSarinnar".
Frakkar þurfa því ekki að fara
í neinar grafgötur um hvaS Siams-
búar ætla sér.
Frakkar hafa 25.000 manna her,
aSallega innfæddra manna, í
Frakkneska Indó-Kína, en Siam
hefir 60.000 manna fastaher og vel
æfSan og 300.000 manna varaliS.
Mikill hergagnaflutningur fer
fram frá Frakkneska Indó-Kína til
Chiangs Kai-shek á járnbrautinni
Hanoi til Yunnan í SuSur-Kína.
Til þess aS þóknast Japönum
bönnuSu Frakkar aS nota járn-
brautina til slíkra flutninga. (En
mikill hergagnaflutningur fer þó
aS sögn enn fram til Kína — frá
Frakkneska Indó-Kína, en eftir
öSrum leiSum, eftir bílvegum inn
í Kwangsi).
Almenningur í Frakklandi, segir
amerískt blaS, veit lítiS um hversu
alvarlega horfir í Frakkneksa
Indó-Kína. En frakkneskir stjórn-
málamenn hafa af því miklar á-
hyggjur og leitast viS aS ná sam-
komulagi viS Siam og gera nýan
samning viS Siamstjórnina.
MIÐJARÐARHAFSMÁLIN OG
MARKMIÐ ÍTALA.
Bretar og ítalir eiga nú í samn-
ingum um deilumál sín og vitaS
er, aS þaS muni aSallega vera
MiSjarSarhafsmálin, sem um er
rætt. Hafa nýlega borist fregnir
um, aS samkomulagshorfur sé
góSar. En enn sem komiS er, er
meS öllu ókunnugt urn, hverjar til-
slakanir kunna aS hafa veriS
gerSar. En þaS hefir í rauninni
veriS lítiS leyndarmál hvaS fyrir
ítölum heíir vakaS, hvort sem þeir
kunna nú aS hafa slakaS eitthvaS
til, en þaS, sem þeir hafa stefnt
aS, er aS verSa svo Öflugir sjó-
hernaSarlega á MiSjarSarhafi, aS
þeir þyrfti þar hvorki aS óttast
Breta eSa Frakka eSa jafnvel ekki
sameiginlegan flota beggja þess-
ara stórvelda. Og þetta verSur
ljóst, segir ameriskur blaSamaSur,
sem hefir kynt sér þessi mál ræki-
lega, ef athuguS eru áform þau um
aukinn vígbúnaS á sjó, sem kunn-
gerS voru á ítalíu í janúar s.l. 4>a
var tilkynt, aS ítalski flotinn yrSi
aukinn um samtals 120.000 smá-
lestir, og eru þaS mestu herskipa-
smíSaáform, sem ítalir hafa nokk-
uru sinni ráSist í. En meS þessu
verður enn þungur baggi lag'Sur
a herSar ítalskra skattgreiSenda,
því aS samkvæmt áætlunum sér-
fræSinga, þarf aS verja til her-
skipasmíSanna sem svarar til 260
miljóna amerískra dollara, og er
þá aSeins taliS þaS sem þarf aS
leggja til af efni, í vinnulaun o. s.
frv., en ekki ýmiskonar útbúnaS-
ur, en til hans fara áreiSanlega