Rökkur - 01.03.1938, Qupperneq 4

Rökkur - 01.03.1938, Qupperneq 4
36 RÖKKUR semi þessa félags. Forseti hins nýja félags er Edward B. Olson, sonur Björns Olson, héraðsdóm- ara frá Gimli“. VIÐSKIFTI. „Er áhugi rikjandi fyrir framtíðarviðskiftum milli Is- lendinga vestra og liér heima?“ „Þau mál eru altaf á dagskrá hjá oss —■ vér erum altaf reiðu- búnir til samstarfs á því sviði, undir eins og fært þykir að hef j- ast handa í þessu efni“. MANNASKIFTI. „íslendingar vestra hafa liaft milcinn áhuga fyrir því, að fá góða menn og konur vestur til þess að halda fyrirlestra um ís- land. Er sami áhugi ríkjandi i þessum efnum?“ „Vissulega. Vér Vestur-íslend- ingar teljum slíkar ferðir hafa ómetanlegt gildi. Hafa nokkrir kunnir, islenskir mentamenn komið vestur þessara erinda og nú síðast hefir hin ágæta ís- lenska kona, Halldóra Bjarna- dóttir, verið vestan hafs undan- farna mánuði og flutt fjölda fyrirlestra og sýnt íslenskan heimilisiðnað — i flestum Is- lendingabygðum, alt vestur á Kyrrahafsströnd. Hún hefir hlotið mikið lof íslenskra og annara þjóða manna og íslensk- ur heimilisiðnaður vakið al- menna aðdáun. Hún var okk- ur samferða til London, en þaf ætlar hún að sýna íslenskan heimilisiðnað — og ef til vill einnig i Glasgow, þar sem Skot- landssýningin mikla stendur yfir“. SÝNINGIN I NEW YORK. „Hefir fyrirhuguð þátttaka ÍS' lendinga i sýningunni í NeW York vakið athygli meðal landa vestra ?“ „Vissulega. Það mál var rætt á þjóðræknisþinginu og -sU stefna tekin, að stvðja það niál eftir megni“. HÓPFÖR VESTAN UM HAF NÆSTA SUMAR? „Eru margir Vestur-Islend- ingar væntanlegir heim í suin' ar?“ „Strjálingur — eins og vana- lega. En komið hefir til orða> að heill hópur færi næsta suni' ar, ef liægt væri að fá hentuga1 ferðir i samhandi við heimS' sýninguna i New York. Tíða1' lieimsóknir milli þjóðarhrot- anna vestra og hér heima eru oss lífsskilvrði — og ætti að vera ykkur það eigi síður — því að ekki getur neinum íslendingun1 staðið á sama hvað verður uiu þann fjórðung íslensku þjóðaf' innar, esm sest hefir að í Vest- urheimi".

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.