Rökkur - 01.03.1938, Page 8

Rökkur - 01.03.1938, Page 8
40 R Ö K K U R Belgiska skólaskipið ,Mercator heimsækir ísland öðru sinni. Viðtal við José Gers. \ Hið fagra, belgiska skólaskip „Mercator“ kom hingað fyrir skemstu og var hér nokkura daga. — Skip þetta kom hingað í fyrrasumar og vakti mikla athygli, enda er skipið nýtt og fagurt. Það er smíðað í Leith 1932. Héðan fer skipið til Norð- ur-Noregs. — Útg. Rökkurs hefir fundið að máii belgiska rithöfundinn og íslandsvininn José Gers, sem nú er fastur starfsmaður á skipinu, skipsfulltrúi og skrifari skipstjórans. José Gers, sem lætur í Ijós mikla gleði yfir að vera kominn til íslands enn einu sinni, segir svo frá ferðum skipsins: „Við komum hingað frá Ant- werpen í Belgíu, þar sem aðset- ur skips okkar er. Höfðum við áður verið í fjögurra mánaða leiðangri um Suður-Atlantshaf — heimsóttum nýlendur Frakka og Portúgalsmanna í Vestur- Afríku og Belgiska Kongo, enn- fremur ætluðum við til St. Hel- ena, en oss til mikilla leiðinda gat ekki orðið af þvi, þar sem skipið varð að snúa við vegna alvarlegra veikinda eins skip- verja, er varð að flytja til lands til uppskurðar. — Mercator er skólaskip, sem kunnugt er, og þess vegna er lögð á hersla á að fara sem víðast. Tilgangur- JOSÉ GERS.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.