Rökkur - 01.03.1940, Blaðsíða 3

Rökkur - 01.03.1940, Blaðsíða 3
K 0 K Iv U R 35 eldíi hefði viljað svo til, að Bar- bara Grey hefði ekki orðið á vegi hans þá. Hún var látlaus í framkomu og aðlaðandi, bláeyg og ljóshærð, drengileg i fram- komu, frjiálsmannleg og félags- leg, eins og títt er um ungar, enskar stúlkur. Og hann fann til skyldleika með henni, sem hann hafði aldrei orðið var við, er hann hugsaði um Dolores. Þessi skyldleiki dró þau saman, hann og Barböru. Ósjálfrátt hneigðist hugur Bettington svo fljótlega til hennar, að áSur langt var liðið, þegar hann hafði gerhugsaS þetta alt og sá það alt í skýru ljósi, var hann farinn að furða sig á því, að hann skyldi nokkuru sinni hafa getað orðið svo ástfanginn í hinni suðrænu ,skapheitu, örvandi konu, Dolores, að hann hafði ætlað sér að kvongast henni. Hann sannfærðist um, að þau voru óskyld, að illa mundi fara. Hann hafði töfrast í svip — en nú var ljóminn horfinn — hann hafði vaknað af draumi. Það var alt og sumt. Þegar þau höfðu opinberað trúlofun sína Peter Bettington og Barbara Grey hafði Dolores verið fyrst til þess að óska þeim til hamingju — af svo miklum innileik og kæti, að engum hefði getað dottið í húg, að hún hefði tekið nærri sér, að Peter hafði trúlofast Barböru. — Menn liéldu því, að lienni hefði ekki verið meiri alvara en Peter. Og næstu árin — en Pe- ter var mjög hamingjusamur í hjónabandi sínu, gleymdi hann Dolores að mestu. Hann hugs- aði sjaldan um hana — og nú rámaði hann að eins í, að hann hefði einhverntíma heyrt eitt- hvað um, að hún liefði gifst, og enn síðar, að hún hefði skilið við manninn — eða hann við hana — og hvorugt hafði haft nein áhrif á hann. Þetta var ait orðið svo fjarlægt og ókunnugt, fanst lionum. Og nú kom þessi alvarlega að- vörun frá Jim Burnaby, og i því var nefnd kona, sem Dolo- res hét, og nafnið minti hann á það, sem móða áranna hafði lagst yfir og hulið sjónum hans, að minsta kosti að mestu leyti. Vitanlega var það tilviljun ein, að konan, sem hafði son hans að leiksoppi hét Dolores. — Hann mintist yndislegra daga, við strendur Cornwall, þar sem hrikalegir en sérkennilegir og fagrir klettar rísa sem veggur frá bláum, glitrandi sæ. Þar höfðu þau unað saman, hann og Dolores, á dögum ævintýr- isins. Hann strauk sér um enni — lagði hönd á augun sem snöggv- ast — eins og til þess að sjá ekki þessa mynd, sem kom

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.