Rökkur - 01.03.1940, Page 10

Rökkur - 01.03.1940, Page 10
42 RÖKKUR Það kendi nú sársauka í rödd hennar — það var engu líkara en út væri að brjótast eitthvað, sem hún hafði hælt niður, en hafði kvalið hana, valdið henni sársauka árum saman — og nú yrði að brjóta sér leið upp á yfirborðið. Hún starði á hann og það var ásökun í augum hennar og hann fölnaði, því að honum varð ljóst þegar, að hann varð að horfast í augu við beiskan, óþægilegan sannleika. „Dolores“, sagði hann. — „Veistu hvað þú ert að fara?“ En andartakið, sem hún hafði freistast til þess að segja alt af létta, var liðið. Hún lokaði augunum andar- tak, og þegar hún opnaði aug- un aftur, var svipur hennar all- ur annar. „Ó, eg sé, að þú ert alveg eins ímyndunargjarn og flestir karl- menn, vinur minn — svo fljót- ur til að álykta að konumar syrgi þá árum saman ef þeir bregðast þeim. En þú þarft ekki að ásaka þig um neitt gagnvart mér. Eg hefi verið þátttakandi í svo mörgum æf- intýrum, elskað svo oft — síð- an er við vorum saman i Corn- wall.“ Hún hló eins og lienni væri skemt — eins og til þess að skopast að honum fyrir að ótt- ast einhverjar hræðilegar ásak- anir, sem hún mundi bera fram á hendur honum. En hlátur hennar fór i taug- arnar á honum. „Eg efast ekki um, að þú haf- ir átt marga elskhuga“, sagði hann reiðilega. „En það fer fjarri því, að eg vilji, að Tony verði einn í þeirra tölu. Eg kom hingað til þess að fara fram á, að þú sleptir tilkalli til hans.“ „En hvers vegna?“ spurði hún og var undrunarhreimur í röddinni.“ „Þú veist hvers vegna. Ástæð- urnar eru margar og veiga- miklar.“ Hún hristi höfuðið. „Við elskum hvort annað. Hér á Ítalíu eru menn slyngari í þeirri list en í úrkomu- og þokulandinu ykkar, Englandi.“ „Ef þú elskar hann, sleppirðu tilkalli til hans“, sagði Peter á- kafur. „Gefðu honum frelsi sitt, Dolores“. „Hefir liann beðið um það?“ spurði hún rólega. Hann varð að viðurkenna, að svo var ekki. „Nei. Hann lítur svo á, að hann sé bundinn þér.“ Hún varð einkennileg á svip- inn. „Hann er eftir þessu heiðar- legri maður en faði r hans“, sagði hún. „Og ætlarðu þér að krefjast

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.