Fréttablaðið - 24.01.2023, Page 4

Fréttablaðið - 24.01.2023, Page 4
Rannsókn sýnir að 2,2 pró- sent íslenskra barna treysta sér ekki til að mæta í skólann. Kvíði og þunglyndi eru helstu áhættuþættir. margret@frettabladid.is Skólamál Um þúsund íslensk börn glíma við skólaforðun og treysta sér ekki til að mæta í skólann. Unn- steinn Jóhannsson, verkefnastjóri hjá Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL), segir að áætla megi að fjöldinn sé mun meiri. Kennsla og nám á tímum Covid-19 hafi boðið fram ýmsar lausnir sem gætu hentað þessum hópi. Velferðarvaktin gerði í síðustu viku rannsókn um skólaforðun fyrir árið 2019 og kom þá í ljós að 2,2 prósent íslenskra barna þjást af skólaforðun og treysta sér ekki, af fjölbreyttum orsökum, til að mæta í skólann. Guðrún Erla Hilmarsdóttir, verk- efnastjóri hjá BUGL, bendir á að mögulegt geti verið að einstaklingar hafi einangrast enn frekar á tímum Covid „og dvelji því í sínum geðrösk- unum heima við,“ segir hún. Kvíði og þunglyndi eru helstu áhættuþættir þegar kemur að skóla- forðun, auk tilfinningavanda og hegðunarörðugleika. „Skynáreiti er einnig erfitt fyrir einhverja,“ segir Unnsteinn. „Það eru börn sem eiga til dæmis erfitt með lykt, hávaða eða birtu og finna fyrir miklum óþægindum við það að mæta í skólann,“ bætir hann við. Þau segja að mikilvægt sé að mennta- og heilbrigðiskerfi vinni saman, grípi inn í og finni lausnir. Skólinn Ásgarður er með alla sína kennslu á netinu og sinnir nem- endum hvaðanæva af landinu. Hann er úrræði sem hefur reynst mörgum vel enda fer kennsla fram í gegnum Það eru margir að byggja og selja sem hafa ekki vit á þessu en eru að reyna að komast í peninga. Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur hjá RK Design, Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618 info@arcticstar.is - www.arcticstar.is SÆBJÚGNAHYLKI +D3 FYRIR HEILSUNA Þjáist af liðverkjum og stirðleika? Viðkvæmt ónæmiskerfi? - Of hár blóðþrýstingur? Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótar- fæði og notuð til bóta á mörgu meini. Vítamín D: • Stuðlar að eðlilegri upptöku kalsíums og fosfórs. • Stuðlar að viðhaldi beina, tanna og vöðva. • Stuðlar að bættri starfsemi ónæmis- kerfisins. • Eining hefur D-vítamín hlutverki að gegna við frumuskiptingu. ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar fast á www.arcticstar.is Arctic Star Sæbjúgnahylki +D3 Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is ser@frettabladid.is Sjávarútvegur Þrír loðnubátar og tvö rannsóknarskip Hafrann- sóknastofnunar eru á leið í loðnu- leit. „Já, við erum bjartsýnir,“ segir Guðmundur J. Óskarsson fiski- fræðingur. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson hafi kannað miðin úti fyrir Norðurlandi gróf lega og þar hafi fundist umtalsvert magn af loðnu. Loðnuskipin Ásgrímur Halldórs- son og Jóna Eðvalds frá Hornafirði þátt í leitinni ásamt Heimaey úr Eyjum og halda þau austur fyrir land en rannsóknarskipin Árni og Bjarni Sæmundsson fara norður. n Góðar fréttir af loðnu í vændum ser@frettabladid.is laNDBúNaÐur Svokölluð parainflú- ensa hefur greinst í nautgripum á einum bæ á Norðausturlandi segir á vef Matvælastofnunar. Pestarinnar varð vart í haust. Kýr á bænum veiktust af skitu í annað sinn á ári. Dýrin voru jafnframt með krankleika í öndunarfærum, sem þótti á skjön við hefðbundna veiru- skitu. Um var að ræða þurran hósta, mæði við áreynslu og blóðnasir. Rannsóknir Tilraunastöðvarinnar á Keldum leiddu í ljós að um svokall- aða parainflúensu er að ræða. Er það landlæg veira víða um álfur. n Parainflúensa í nautgripum Skipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæ- mundsson eru komin á miðin. Þurr hósti, mæði við áreynslu og blóðnasir þjaka nautgripi. benediktboas@frettabladid.is meNNtamál Alls bíða 55 börn, sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd, eftir að hefja grunnskóla- göngu hér á landi. Þetta kemur fram í svari Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, við fyrirspurn frá Eydísi Ásbjörns- dóttur á Alþingi í gær. Börn sem hingað koma hefja ekki skólagöngu fyrr en þau hafa lokið heilbrigðisskoðun og því má skipta hópnum í tvennt, annars vegar eru þau sem bíða eftir heilbrigðis- skoðun og hafa því ekki hafið skóla- göngu og hins vegar þau sem hafa lokið heilbrigðisskoðun og bíða eftir að hefja grunnskólagöngu. Alls eru 22 börn sem hafa lokið heilbrigðisskoðun en ekki hafið skólagöngu. Þau tvö börn sem hafa beðið lengst eftir að hefja skóla- göngu hafa beðið síðan í október, eða þrjá mánuði. Hin 20 hafa beðið frá því í nóvember eftir að hefja almenna skólagöngu. Lengsti tími sem ráðuneyti Ásmundar veit um að barn hafi beðið eftir skólagöngu er frá apríl 2022 til október 2022 eða hálft ár. Í svarinu segir að almennt sé miðað við að börn sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd séu komin í almennan skóla eða annað úrræði til menntunar innan fjögurra vikna frá því að þau hófu að fá þjónustu Vinnumálastofnunar. n Tugir flóttabarna bíða skólavistar Eitt barn þurfti að bíða í hálft ár eftir skólavist hér á landi. Fréttablaðið/EPa Kvíði og þunglyndi eru helstu áhættuþættir þegar kemur að skólaforðun, auk tilfinningavanda og hegðunarörðugleika. Fréttablaðið/Ernir Þúsund börn glíma við skólaforðun Mögulega getur verið að einstaklingar hafi einangrast enn frekar á tímum Covid og dvelji því í sínum geðrösk- unum heima við. Guðrún Erla Hilmarsdóttir, verkefnastjóri hjá BUGL netið og nemendur geta sinnt nám- inu heima. Guðrún Erla og Unnsteinn segja að samræmd skráning þurfi að ná yfir landið allt svo hægt sé að grípa inn í, en borið hefur á að skólastjórnendur og kennarar vilji gjarnan ekki skrá fjarvistir því þeir halda að þeir séu að hjálpa einstakl- ingnum með því að draga ekki niður mætingareinkunn. Á föstudag heldur BUGL ráð- stefnu um skólaforðun þar sem rætt verður um ýmsar lausnir sem eru í boði og ungt fólk sem glímt hefur við skólaforðun mun deila reynslu sinni. n nánar á Fréttavaktinni á Hringbraut klukkan 18.30 í kvöld. kristinnpall@frettabladid.is iÐNaÐur „Menn halda að það sé dýrara að byggja vel, sem getur verið raunin ef maður notar dýr- ustu efnin til að byggja vel en ef markmiðið er að byggja hús vel sem stenst allar þær kröfur sem þörf er á hér á landi þarf það ekki að vera dýrt,“ segir Ríkharður Kristjánsson, verkfræðingur hjá RK Design, en hann var einn viðmælenda á ráð- stefnu um rakaskemmdir og myglu í Háskólanum í Reykjavík í gær. Sérstök áhersla var lögð byggingar- galla og fúsk í nýlegum byggingum á ráðstefnunni og talaði Alma D. Möller landlæknir meðal ann- ars um áhrif myglu á heilsu fólks. „Það eru margir að byggja og selja sem hafa ekki vit á þessu en eru að reyna að komast í peninga. Þessir aðilar vita kannski ekki að það þarf að borga fyrir hönnun,“ segir Rík- harður og nefnir dæmi um afreks- íþróttafólk. „Traustir verktakar hafa ekki áhuga á að fá stimpil fúskara og þeirra hagur er að gera þetta vel. Þetta er eins og í íþróttunum, þú verður ekki heimsmeistari í fyrstu tilraun. Það tekur þúsundir æfinga áður en þú nærð afrekinu.“ Ríkharður segir eftirsjá af Rann- sóknastofu byggingariðnaðarins. „Það var mikill missir að missa hana sem var lokað á sama tíma og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Það er samhugur innan stéttarinnar um að það sé þörf á stofnunum sem þess- um. Í fortíðinni vorum við að glíma við ýmis vandamál sem okkur tókst að leysa með aðstoð rannsókna- stofunnar og ég tel að það hafi verið mikil skammsýni að loka henni.“ n Traustir verktakar hafa ekki áhuga á fúskarastimpli 4 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 24. jAnúAR 2023 ÞriÐJUDAGUr

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.