Fréttablaðið - 24.01.2023, Side 13
Oft hafa okkar menn
búið yfir leiktækni,
getu og líkamlegum
þrótti til jafns við and-
stæðingana, en hafa
samt tapað. Oft, þegar
leikir hafa verið langt
komnir.
Berserkir koma fyrir í mörgum
Íslendingasögum. Í Eyrbyggjasögu
segir af bræðrunum Halla og Leikni:
„Þeir gengu berserksgang og voru
þá eigi í mannlegu eðli er þeir voru
reiðir og fóru galnir sem hundar og
óttuðust hvorki eld né járn.“ (Hug-
vísindi).
Ynglingasaga er saga Uppsala-
konunga og byrjar á Óðni. Í henni
segir m.a. þetta: „Óðinn kunni svo
gera að í orrustu urðu óvinir hans
blindir eða daufir eða óttafullir,
en vopn þeirra bitu eigi heldur en
vendir, en hans menn (Óðins) fóru
brynjulausir og voru galnir sem
hundar eða vargar, bitu í skjöldu
sína, voru sterkir sem birnir eða
griðungar. Þeir drápu mannfólkið,
en hvorki eldur né járn orti á þá.
Þetta er kallaður berserksgangur.“
(ÍF 1941, Hermann Pálsson 1994).
Þessi upprifjun um berserki er
sett á blað eftir tapleik Íslands gegn
Svíþjóð, 30:35, en líkur má leiða að
því, að markvörður Svía, Andreas
Palicka, hálfur Tékki, hálfur Svíi,
hafi í leiknum gengið berserks-
gang, og, að Svíar hafi unnið leikinn
mikið út á berserksgang Palicka.
Á nútíma máli, mætti kannske
tala um berserksgang sem eitraðan
baráttu- og sigurvilja. Andlega ofur-
getu og sálarlega grimmd, ekki endi-
lega líkamlega, þó að hún kunni
oftast að fylgja með.
Vert er líka, að veita þeirri frásögn
Ynglingasögu athygli, að Óðinn hafi
kunnað „svo að gera að í orrustu
urðu óvinir hans blindir eða daufir
eða óttafullir“, líka með Svíaleikinn
í huga. M.ö.o. kunna berserkir að
hafa hálf lamað andstæðinga sína
með berserksgangi sínum.
Í íþróttum og kappleikjum eru
góðir meðfæddir eiginleikar, hæfi-
leikar, og mikil og góð kennsla,
líkamleg þjálfun, ásamt með mestri
mögulegri keppnisreynslu, fyrsta
forsendan fyrir góðum árangri.
Okkar landsliðsmenn eru allir í
háum flokki, f lottir og fínir, hvað
þetta varðar.
En til að verða afreksmenn og
sigurvegarar á stórum alþjóða-
mótum, komast á toppinn, þarf
meira til. Þeir þurfa að vera minnst
hálf berserkir.
Í íslenzka liðinu fannst mér varla
nema einn sýna það stig baráttu-
þreks og eitraðs sigurvilja, Gísli
Þorgeir. Bjarki Már var sennilega á
svipuðum stað. Aðrir voru auðvitað
baráttuglaðir og fullir sigurvilja, en
náðu, að mér fannst, ekki berserks-
gangsstiginu. Sumir brostu jafnvel
við mistök og ófarir. Þar var djúpt á
eitrinu. Berserkir hefðu grenjað sem
galnir hundar og bitið í skjaldar-
rendur.
Um áraraðir hefur undirritaður
fylgzt með handbolta og átökum
íslenzka landsliðsins við önnur lið.
Oft hafa okkar menn búið yfir leik-
tækni, getu og líkamlegum þrótti
til jafns við andstæðingana, en hafa
samt tapað. Oft, þegar leikir hafa
verið langt komnir. Eins og við Ung-
verja nú. Þar æstu Ungverjar upp í
sér berserkinn, meðan okkar menn
virtust verða „blindir eða daufir eða
óttafullir“. Því fór sem fór.
Sama sagan hefur endurtekið sig
oft í gegnum tíðina, og á hún líka
við um Svíþjóðarleikinn. Berserkir
eða hálf berserkir leikmenn hefðu
skotið 11 sinnum í mark úr dauða-
færum, skorað, í stað þess að skjóta
í markmann, eða þar sem hann náði
til.
Kannske dáleiddi sannur ber-
serk sgang ur Palicka íslenzka
sóknarmenn. Kannske fengu þeir
þá f lugu í höfuðið, að þeir ættu að
skjóta í hann, ekki fram hjá honum.
Eða, kannske, urðu þeir „blindir eða
daufir eða óttafullir“.
Líkamleg geta í íþróttum ein sér
dugar ekki til að komast á toppinn.
Það er ekki nóg, að kenna og þjálfa
líkamlegt atgervi og hæfni, andleg-
ur styrkur, sjálfsöryggi, baráttuþrek,
baneitraður sigurvilji – andlega og
sálarlega hliðin - verða að fylgja.
Auðvitað eru okkar landsliðs-
menn atvinnumenn erlendis og
njóta kennslu, tilsagnar og þjálf-
unar til að berjast og sigra fyrir sín
lið þar. Þar eru þeir, í sínu daglega
umhverfi, með sínum langtíma
samherjum og vinum, betri og
öruggari. Þessi geta og þetta öryggi
fylgir ekki endilega í landsliðið. Þar
ver og styrkir náinn samherjahópur
ekki lengur.
Hafa HSÍ og landsliðsþjálfarar
tekið þetta nógu vel með í reikning-
inn? Eru þar öflugir sálfræðingar og
andlegir leiðbeinendur með í för?
Óhóflegar væntingar, sjálfra sín
eða annarra, geta líka lagzt eins og
farg á menn og rænt þá krafti í stað
þess að veita.
Alfreð Gíslason og hans menn
í Þýzkalandi höfðu það skýra og
yfirlýsta markmið fyrir mótið, að
komast í 8-liða úrslit. Þeir náðu því
örugglega. Unnu alla sína 5 leiki.
Fyrir mótið virtist styrkur Íslands
og Þýzkalands vera á svipuðu róli.
Íslendingar ætluðu sér frá byrjun
að verða heimsmeistarar, alla vega
að komast á verðlaunapall. Þeir
virðast hafa gleymt því, að Norð-
menn, Danir, Svíar, Þjóðverjar,
Frakkland, Spánn og Egyptaland
eru með í mótinu.
Svona óraunsæi og yfirkeyrsla í
sjálfsmati og stefnumörkun kann
ekki góðri lukku að stýra. Hvorki í
handbolta né öðru. n
Svíar voru með berserk, við bara hálfan
Ole Anton
Bieltvedt
samfélagsrýnir
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
Fréttablaðið skoðun 1324. janúar 2023
ÞRIðJuDAGuR