Fréttablaðið - 24.01.2023, Síða 26
Myrkir músíkdagar er
ein elsta tónlistarhátíð
landsins, stofnuð árið
1980 af Tónskálda-
félagi Íslands.
Sunna Dís segist svífa um á bleiku skýi eftir að hún fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör
um helgina fyrir ljóðið Á eftir þegar þú ert búin að deyja. Fréttablaðið/anton
Sunna Dís við afhendingu Ljóðstafs Jóns úr Vör í Salnum ásamt Elísabetu
Sveinsdóttur og Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra. Mynd/leiFur Wilberg
Sunna Dís skrifaði verðlauna-
ljóð Ljóðstafs Jóns úr Vör eftir
andlát föðurömmu sinnar.
Hún segir keppnina vera
mjög mikilvæga fyrir sam-
félag skrifandi fólks.
tsh@frettabladid.is
Ljóðskáldið Sunna Dís Másdóttir
hlaut um helgina Ljóðstaf Jóns úr
Vör 2023 fyrir ljóðið „Á eftir þegar
þú ert búin að deyja“ auk þess sem
hún fékk viðurkenningu í sömu
keppni fyrir ljóðið „Villisveppir í
Pripyat“. Sunna Dís er rithöfundur,
gagnrýnandi og þýðandi og með-
limur í skáldakollektífinu Svika-
skáldum.
Hvernig var tilfinningin þegar þú
fréttir þetta?
„Ég er svolítið á bleiku skýi, þetta
var bara ótrúlega gaman. Hún stóð
sig reyndar svo vel, Kristín Svava
sem var formaður dómnefndar,
þegar hún hringdi að ég hélt fyrst að
hún væri að hringja til að skamma
mig yfir einhverju, hún var svo
alvarleg,“ segir Sunna og hlær. „Þetta
kom mér alveg tvöfalt á óvart.“
Að sögn Sunnu var verðlauna-
ljóðið búið að liggja ofan í skúffu í
dágóðan tíma áður en hún dró það
fram og sendi í keppnina í haust.
„Þetta er svona fimm ára gamalt
ljóð og hitt sem ég sendi og fékk
viðurkenningu líka er enn þá eldra.
En svona er þetta ferli oft, maður
skrifar eitthvað og stingur ofan í
skúffu og svo tekur maður það upp
aftur og fiktar aðeins í því. Frumút-
gáfan er alveg fimm ára en svo er ég
búin að koma aftur að því og leika
mér aðeins að því,“ segir hún.
Dýrmæt og falleg stund
Sunna sendi í haust frá sér sína
fyrstu ljóðabók sem ber titilinn
Plómur. Spurð um hvort sigurljóðið
sverji sig í ætt við þá bók segir Sunna
það gera það að vissu leyti.
„Sigurljóðið er rosalega persónu-
legt og beint upp úr minni reynslu.
Það eru náttúrlega svona prósaljóð
líka í Plómum, ég hef mjög gaman
af því formi, að leika mér aðeins
með f læði og hrynjandi í þessum
prósaramma,“ segir hún.
Hvað fjallar ljóðið Á eftir þegar þú
ert búin að deyja um?
„Frumútgáfan varð til mjög
snemma eftir að föðuramma mín
dó. Mér finnst ég hafa verið svo
heppin og lánsöm að hafa fengið
að vera mikið með henni síðustu
dagana. Við sátum mikið saman
fjölskyldan og ég las fyrir hana ljóð
úr bókinni hans Sigurðar Pálssonar
sem var þá nýfallinn frá. Þetta var
eitthvað svo ótrúlega dýrmæt og
falleg stund og eitthvað sem ég hafði
aldrei upplifað áður, að fá að fylgja
manneskju í dauðann. Það snerti
mig rosalega djúpt að fá að taka þátt
í því með fjölskyldunni.“
Innblásin af Tsjernobyl
Eins og áður sagði fékk Sunna Dís
ekki aðeins fyrstu verðlaun í ljóða-
samkeppninni heldur hlaut hún
einnig viðurkenningu fyrir ljóðið
Villisveppir í Pripyat sem hún skrif-
aði fyrir sjö árum.
„Það sprettur upp úr því að ég
hnaut um svo rosalegar ljósmyndir
frá Prypjat, borginni við Tsjernobyl.
Þær höfðu svo mikil áhrif á mig og
ég skrifaði upp úr því. Það er annað
ljóð sem maður tekur upp aftur og
aftur og svo núna þegar ég kom að
því þegar ég ætlaði að fara að senda
það inn í keppnina þá var það búið
að öðlast einhverja svona auka-
merkingu sem var ekki endilega til
staðar fyrst. Sem er svo áhugavert,
hvernig tíminn einhvern veginn
víkkar og stækkar ljóðin,“ segir
Sunna og vísar þar til stríðsins í
Úkraínu.
Finnst þér mikilvægt að leyfa ljóð-
unum þínum að gerjast og vaxa með
tímanum?
„Stundum og stundum ekki.
Ég er náttúrlega líka rosa mikið
fyrir kraftinn í þessu hráa sem við
erum svolítið að vinna með í Svika-
skáldum, að vera einhvern veginn í
frumkraftinum. En þessi tvö höfðu
alla vega gott af því, ég held að það
hafi styrkt þau bæði að fá að gerjast
aðeins og hvíla sig og að ég kæmi
nokkrum sinnum að þeim aftur.“
Byr undir báða vængi
Ljóðstafur Jóns úr Vör hefur verið
veittur árlega af Kópavogsbæ síðan
2001 í minningu skáldsins sem lést
2000. Auk Sunnu Dísar hlutu ýmis
önnur skáld verðlaun og viður-
kenningu í keppninni, þar á meðal
Solveig Thoroddsen sem hlaut 2.
verðlaun fyrir ljóðið „Lok vinnu-
dags í sláturtíð“ og Helga Ferdin-
andsdóttir sem hlaut 3. verðlaun
fyrir ljóðið „Annað líf“. Samhliða
keppninni eru veitt verðlaun í
Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópa-
vogs.
Eru svona keppnir mikilvægar
fyrir ljóðskáld?
„Já, mér finnst það bara ótrúlega
mikilvægt og mér fannst þetta líka
bara eitthvað svo f lott athöfn. Það
var svo vel að þessu öllu staðið og
svo gaman að heyra öll þessi ljóð
lesin upp sem fengu viðurkenn-
ingar, líka í Ljóðasamkeppni grunn-
skólanna sem er náttúrlega þarna á
sama tíma. Það gerir held ég alveg
ótrúlega mikið fyrir samfélag skrif-
andi fólks að hafa svona keppnir.“
Hvað er næst á döfinni hjá þér?
„Ég er að vinna í handriti sem
hefur verið að malla í svolítinn
tíma og ég finn að nú er ég bara æst
í að geta hellt mér í það af fullum
krafti. Maður fær svona einhvern
byr undir báða vængi, mér líður
alla vega þannig. Nú þarf ég bara að
hreinsa borðið af öðrum verkefnum
og einhenda mér í þetta.“ n
Tíminn víkkar og stækkar ljóðin
Á eftir þegar þú ert búin að deyja
Á eftir þegar þú ert búin að deyja ætla ég að taka þig með mér héðan,
sveipa um þig dimmrauða teppinu sem þú felur þig undir, hylja þig nep-
alskri jakuxaull og stinga tönnunum þínum í vasann. Vatnið drýpur úr
svampinum á náttborðinu. Hann er tannholdsbleikur á hvítum pinna
og þú læsir kjálkunum um hann eins og ungbarn um móðurbrjóst þegar
hann strýkst við varir þínar. Fyrsta viðbragðið er það síðasta sem
hverfur. Á eftir þegar þú ert búin að deyja förum við í sirkus og borðum
kandíflos sem límist í góminn klístrast við tannholdið spunninn sykur á
pappírsvafningi, hann leysist upp á tungunni eins og tíminn og ég rétti
þér tennurnar og sé hendur þínar verða f leygar á ný.
Ég er svolítið á bleiku
skýi, þetta var bara
ótrúlega gaman.
tsh@frettabladid.is
Tónlistarhátíðin Myrkir músík-
dagar 2023 hefst í dag og stendur
yfir út vikuna víðs vegar um höfuð-
borgarsvæðið. Myrkir músíkdagar
er ein elsta tónlistarhátíð landsins,
stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi
Íslands. Tónlistarhátíðin fer fram á
myrkasta tíma ársins en leiðarljós
hátíðarinnar er að kynna íslenska
og erlenda samtímatónlist, tónskáld
og flytjendur.
Á meðal flytjenda sem koma fram
á hátíðinni í ár eru Bozzini kvar-
tettinn frá Kanada, p.e.r.s.o.n.a.l.
c.l.u.t.t.e.r frá Bretlandi, Skerpla,
óperan Mörsugur með söngkon-
unni Heiðu Árnadóttur, Nordic
Affect, Bára Gísladóttir, Strok-
kvartettinn Siggi, Caput, Tríó Ísak,
söngkonan Rosie Middleton frá
Bretlandi, píanóleikarinn Andrew
Zolinsky frá Bretlandi, Kammersveit
Reykjavíkur, Strengjakvartetinn
Gró, Hljómeyki og kammeróperan
Ástin ein taugahrúga, enginn dans
við Ufsaklett, með Tinnu Þorvalds
Önnudóttur söngkonu og Júlíu
Mogensen sellóleikara.
Þá heldur Sinfóníuhljómsveit
Íslands tvenna tónleika á hátíðinni,
Myrkir músíkdagar hefjast í dag
Söngkonan Heiða Árnadóttir flytur óperuna Mörsögur eftir Ásbjörgu Jóns-
dóttur og Ragnheiði Erlu Björnsdóttur í Norðurljósum 25. janúar. Mynd/aðsend
annars vegar Flekaskil fimmtudag-
inn 26. janúar, með fimm verkum
eftir íslensk tónskáld, og hádeg-
istónleikana Hringla, með verkum
Báru Gísladóttur, föstudaginn 27.
janúar.
Dagskrá Myrkra músíkdaga 2023
er með alþjóðlegum blæ og kemur
fjölbreyttur hópur íslenskra og
erlendra listamanna fram á hátíð-
inni. Þá er hátíðin sögð endurspegla
þann kraft og nýsköpun sem ein-
kennir íslenska samtímatónlist á
líðandi stundu.
Í tilkynningu frá Myrkum músík-
dögum segir að hátíðargestir muni
upplifa þversnið þess sem ber hæst
í íslenskri samtímatónlist. Strengja-
kvartettar verða í fyrirrúmi á
hátíðinni í ár, auk nýrra óperu- og
söngverka. Mörk hins mögulega í
samtímatónlist verða áfram könnuð
á hátíðinni með áhugaverðum til-
raunum og blöndun mismunandi
tækni. n
22 menning FRÉTTABLAÐIÐ 24. jAnúAR 2023
ÞRiÐJUDAgUR