Fréttablaðið - 24.02.2023, Qupperneq 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Ragnhildur, sem er 26 ára gömul
og hefur verið í fremstu röð golf-
kvenna á Íslandi undanfarin
ár, kemur til með að spila á LET
Access mótaröðinni sem er sú næst
sterkasta í Evrópu.
Spurð hvað hafi orðið til þess að
hún hafi tekið þá ákvörðun að fara
út í atvinnumennsku á þessum
tímapunkti segir Ragnhildur:
„Það er búið að blunda í mér í
nokkur ár hvenær ég ætti að taka
skrefið. Eftir að ég kláraði háskóla-
styrkinn minn síðasta vor þá vildi
ég taka sumarið og haustið sem
áhugamaður þar sem það voru svo
mörg stórmót í boði eins og heims-
meistaramótið og EM einstakl-
inga. Þegar þessi mót voru búin þá
ákvað ég að spila næsta mót sem
atvinnumaður og nú er komið að
því,“ segir Ragnhildur.
Reynir við opna bandaríska
Ragnhildur og Guðrún Brá Björg-
vinsdóttir eru fulltrúar Íslands á
LET Access-mótaröðinni í ár og
verða þær í eldlínunni á móti á
Spáni í næstu viku.
„Dagskráin á mótaröðinni er
ekki alveg fullmótuð í mars og
apríl. Það er eitt mót í byrjun mars,
annað vikuna eftir páska og síðan
er mót í maí. Ég ætti að verða með
á næstu tveimur mótum en þegar
mótið verður í maí verð ég í Banda-
ríkjunum að útskrifast og í leiðinni
ætla ég að taka þátt í úrtökumóti
fyrir opna bandaríska meistara-
mótið,“ segir Ragnhildur.
Finnst þér þú alveg vera tilbúin
að takast á við atvinnumennsk-
una?
„Já mér finnst það og ég tel að
tímapunkturinn sé réttur. Ég sá
það í úrtökumótunum bæði fyrir
LPGA í ágúst og LET Evrópumóta-
röðina í desember að ég þarf bara
aðeins að fínpússa hlutina, hafa
trú á því sem ég er að gera og vita
í raun að maður eigi heima þarna.
Um leið og maður finnur fyrir
því er ekkert sem getur stoppað
mann.“
Ragnhildur var í æfingaferð
með afrekshópi GR á Spáni í
síðasta mánuði en undanfarnar
vikur hefur hún verið við æfingar
í Básum í Grafarholti og í Golf-
stöðinni Glæsibæ.
„Ég var í tvær vikur á Spáni í
janúar en mínir staðir undan-
farnar vikur þar sem ég dvel stóran
hluta dagsins er í Básum, í Korpu
og í Glæsibæ. Ef fólk hefur verið að
leita að mér þá hef ég verið á einum
af þessum stöðum og þess á milli
hef ég farið í World Class.“
Atvinnumennskunni fylgir
mikill kostnaður og Ragnhildur
segist vera meðvituð um það. „Ég
er með góða styrktaraðila eins og
er og er alltaf að líta í kringum mig
hvort ég geti bætt fleirum við. En
ég er líka með gott bakland heima.
Ég bý enn þá heima hjá foreldrum
mínum og útgjöldin hjá mér dags
daglega eru ekki rosalega mikil.
Mest útgjöldin eru þegar kemur að
þessum ferðalögum.“
Tölur liggja vel fyrir mér
Ragnhildur er að ljúka námi við
Eastern Kentucky-háskólann í
Bandaríkjunum og útskrifast í maí
með MBA gráðu í fjármálum. „Ég
hef alltaf haft áhuga á fjármálum
og var til að mynda á hagfræðisviði
í Verzló. Tölur yfir höfuð liggja vel
fyrir mér og ég er stundum kölluð
tölfræðivitleysingur úti í Banda-
ríkjunum. Það hefur sínar góðu og
slæmu hliðar,“ segir Ragnhildur og
hlær.
Ragnhildur átti góðu gengi
að fagna með skólanum á golf-
vellinum og í fyrra var hún valin
íþróttakona háskólans.
„Upphaflega átti ég að klára
námið á fjórum árum en þetta
endar í fimm árum vegna Covid,
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Ragnhildur með verðlaunagrip eftir sigur á móti í
Mossouri þar sem hún lék á 12 höggum undir pari og
bætti skólametið um þrjú högg. MYNDIR/AÐSENDAR
Ragnhildur með foreldrum sínum, Kristni Tómassyni og Þorbjörgu Jóhönnu
Gunnarsdóttur, eftir sigur á síðasta mótinu með skóla sínum þar sem hún
tryggði sér sigur með fuglapútti á síðustu holunni.
Ragnhildur með
skólaliði sínu
eftir sigur þess
í fyrra. Ragn-
hildur heldur
á verðlaunum
sínum fyrir sigur
í einstaklings-
keppninni.
Ragnhildur með högg úr sandinum á síðasta mótinu með EKU-skólanum á svæðismóti NCAA í Michigan.
sem kom sér bara vel fyrir mig þar
sem ég fékk þetta aukaár. Þetta er
búinn að vera skemmtilegur tími
og það var mikill heiður að verða
fyrir valinu sem besta íþróttakona
skólans. Það var svona rúsínan í
pylsuendanum.“
Ragnhildur hefur stundað golf-
íþróttina frá unga aldri og íþróttir
almennt hafa verið fyrirferðar-
miklar í nánasta umhverfi hennar.
Bróðir hennar er vel kunnur knatt-
spyrnumaður en hann er mark-
vörðurinn Ögmundur Kristinsson,
sem hefur verið atvinnumaður í
tæpan áratug. Hann er hjá gríska
liðinu Olympiakos en Ögmundur
á að baki 19 leiki með íslenska A-
landsliðinu.
Á nokkra titla í handboltanum
„Ég var fimm eða sex ára gömul
þegar ég fékk mínar fyrstu golf-
kylfur en þá voru tveir bræður
mínir byrjaðir í golfinu. Ég var
síðan skráð á sumarnámskeið hjá
GR og þá var ekki aftur snúið,“
segir Ragnhildur, sem einnig
reyndi fyrir sér í handboltanum.
„Ég hætti í handboltanum 18
ára gömul og á nokkra Íslands-
meistaratitla með Fram í 3. og 4.
f lokki. Íþróttir hafa á mínu heimili
verið númer eitt, tvö og þrjú frá
því ég man eftir mér en mamma
og pabbi hafa alltaf verið með þá
skoðun að við þyrftum að mennta
okkur. Mamma var í mörg ár liðs-
stjóri hjá Fram og kvennalands-
liðinu í handbolta og Ögmundur
bróðir hefur gert það gott á sínum
ferli. Við Ögmundur erum dugleg
að fylgjast með hvort öðru. Hann
er með þeim fyrstu að senda mér
skilaboð þegar það gengur vel
eða illa og ég sömuleiðis gagnvart
honum. Ég reyni að horfa á alla
leiki sem hann spilar.“ n
Ég er með gott
bakland heima. Ég
bý enn þá hjá foreldrum
mínum og útgjöldin hjá
mér dags daglega eru
ekki rosalega mikil.
Ragnhildur Kristinsdóttir
2 kynningarblað A L LT 24. febrúar 2023 FÖSTUDAGUR